Noregur

Nadal vann opna franska í fjórtánda sinn
Spænska tennisgoðsögnin Rafael Nadal vann öruggan sigur á Norðmanninum Casper Ruud á opna franska meistarmótinu og skráði sig enn einu sinni á spjöld sögunnar.

Norska lögreglan lýsir eftir fanga sem er dæmdur fyrir tvö morð
Norska lögreglan hefur lýst eftir fanga, sem var dæmdur fyrir tvo morð, eftir að hann skilaði sér ekki í fangelsið í Þrándheimi eftir dagsleyfi. Lýst hefur verið eftir fanganum alþjóðlega. Lögregla segir grun um að hann hafi farið til Ósló.

Apabóla greinist í Noregi
Norskur ríkisborgari greindist í dag með apabólu eftir ferðalag í Evrópu. Um er að ræða fyrsta smitið sem greinist í Noregi.

Orð Jens Garðars sjókvíaeldismanns eldast illa
ISA veiran sem veldur hinum banvæna sjúkdómi blóðþorra í laxi hefur nú verið greind í sjókvíum Fiskeldis Austfjarða í Berufirði.

Rostungsbein sem enduðu í Kænugarði fyrir þúsund árum fóru líklega um Ísland
Ný rannsókn sýnir að rostungstennur, sem fundust í Kænugarði fyrir fimmtán árum, eru komnar úr norrænu byggðinni á Grænlandi og eru frá tímum víkinga. Fornleifafræðingur telur mjög líklegt að Íslendingar hafi komið að verslun með grænlensk rostungabein.

Að minnsta kosti þrír særðir eftir stunguárás vestur af Osló
Að minnsta kosti þrír eru særðir, þar af einn alvarlega eftir stunguárás í Numedal, um áttatíu kílómetra vestur af norsku höfuðborginni Osló, í morgun.

Játaði að hafa stungið fimm til bana og reynt að myrða aðra með boga og örvum
Andersen Bråthen, játaði í morgun að hafa myrt fimm manns í Noregi í fyrra. Í dómsal í dag gekkst hann við öllum ákærum gegn sér en auk morðanna fimm er hann sakaður um ellefu morðtilraunir og ýmis önnur brot.

Norskir úlfar borða ítalskar ömmur
Meðlimir Subwoolfer eru komnir áfram í aðalkeppni Eurovision sem fer fram annað kvöld í Tórínó og virðast þeir vera að safna orku fyrir stóra daginn með því að gæða sér á ítölskum ömmum og kúra.

„Einhvern veginn tókst mér ekki að sjá þetta“
„Ég er í góðum málum, en það þarf að vinna að því. Það var alls ekki þannig fyrst,“ segir Gunnar Valdimarsson um lífið í Osló eftir skilnaðinn við barnsmóður sína.

Segir af sér eftir að upp komst um samband við mun yngri konu
Varnarmálaráðherra Noregs, Odd Roger Enoksen, hefur sagt af sér ráðherraembætti eftir að í ljós kom að hann átti í sambandi við sér mun yngri konu frá árinu 2005. Enoksen var þá fimmtugur en konan aðeins átján ára.

Þrír látnir eftir snjóflóð í Noregi
Þrír eru látnir eftir að snjóflóð féll í firðinum Lyngen í Troms í Noregi í dag.

Íslendingur slasaðist í snjóflóði í Noregi
Íslenskur ríkisborgari var í hópi þeirra sem slösuðust í snjóflóði í Lyngen í Troms í Noregi í gær. Einn maður fórst og fjórir slösuðust í snjóflóðinu.

Einn fórst og nokkrir slösuðust í snjóflóðum í Noregi
Einn fórst og þrír slösuðust í snjóflóði sem féll í firðinum Lyngen í Troms í Noregi um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Um var að ræða hóp erlendra ferðamanna en einn til viðbótar komst úr flóðinu án meiðsla.

Aftur skekur fjárdráttur Íslensku kirkjuna í Noregi
Gjaldkeri Íslensku kirkjunnar í Noregi hefur látið af störfum og honum vikið úr stjórn safnaðarins vegna mögulegs fjárdráttar. Kirkjan segir rökstuddan grun fyrir fjárdrættinum og gjaldkerinn hefur verið kærður til lögreglu.

Foreldrarnir hafa tekist á fyrir dómstólum í Noregi og á Íslandi
Íslensk kona, sem nam þrjá syni sína á brott af heimili þeirra í Noregi á mánudag, var árið 2020 dæmd af norskum dómstólum í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa meinað föðurnum að hitta börnin.

Lögreglan í Noregi rannsakar brottnám íslenskra bræðra
Lögreglan í Noregi hefur til rannsóknar brottnám þriggja íslenskra drengja á grunnskólaaldri frá Noregi í gær. Móðir drengjanna flutti drengina þrjá frá Noregi til Íslands í gær í óþökk föðurins.

Stoltenberg mun ekki taka við sem seðlabankastjóri Noregs
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO og fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, mun ekki taka við stöðu seðlabankastjóra Noregs í október líkt og til stóð.

Segja Stoltenberg verða ár lengur í embætti
Jens Stoltenberg mun framlengja tíð sína sem framkvæmdastjóri NATO um eitt ár en til stóð að hann myndi láta af embætti næsta haust. Ástæðan er ástandið vegna innrásar Rússa í Úkraínu sem hófst fyrir sléttum mánuði.

Fjórir látnir eftir að herþyrla hrapaði í NATO-æfingu
Fjórir bandarískir hermenn létust þegar bandarísk herþyrla sem tók þátt í NATO-æfingunni Cold Response hrapaði í Norðurlandi í Noregi í gær.

„Ég held að ég hafi drukkið hálft Atlantshafið“
Ragnar Axelsson myndaði eitt sinn lífið í Lofoten í Noregi þar sem fólk stundar sjósund og brimbrettaiðkun af kappi.

RAX Augnablik: „Ég var mjög ánægður að ná þessu“
Ragnari Axelssyni var eitt sinn boðið til Lofoten í Noregi til þess að kafa með og mynda háhyrninga.

Gulldrottning Vetrarólympíuleikanna í Peking er hætt
Norska skíðagöngudrottningin Therese Johaug hefur ákveðið að setja keppnisskíðin sín upp á hillu. Hún keppir í síðasta skiptið á ferlinum á morgun.

Norski olíusjóðurinn með meira en 30 milljarða undir á Íslandi
Olíusjóður Noregs, stærsti fjárfestingasjóður í ríkiseigu í heiminum, jók talsvert við verðbréfaeign sína á Íslandi á síðasta ári. Eignir sjóðsins, sem eru einkum skuldabréf á ríkissjóð og íslensk félög, námu samtals 246 milljónum Bandaríkjadala í árslok 2021, jafnvirði um 32 milljarða króna, og hefur verðbréfaeign olíusjóðsins ekki verið meiri hér á landi í liðlega fimmtán ár.

Rússar áhyggjufullir um samskipti Norðmanna og Dana vegna breytinga á götuheiti
Rússneska sendiráðið í Danmörku hefur lýst yfir áhyggjum af samskiptum Norðmanna og Dana vegna umræðna um að breyta heiti götunnar Kristianiagade í Ukrainegade. Rússneska sendiráðið stendur við fyrrnefnda götu og einn borgarstjóra Kaupmannahafnar hefur lýst yfir vilja til að skoða það að breyta götuheitinu í Ukrainegade.

Missti ömmu sína daginn eftir að hún varð drottning Ólympíuleikana
Hin norska Marte Olsbu Røiseland átti magnaða Vetrarólympíuleika í Peking þar sem hún vann alls fimm verðlaun í skíðaskotfimi. Engin kona vann fleiri verðlaun á leikunum. Eftir að Marte vann síðustu verðlaun sín bárust henni hins vegar sorgarfréttir frá Noregi.

Lítur út fyrir að tölvuþrjótar hafi stolið 252 milljónum króna af Rosenborg
Íslensk félög hafa mörg fengið fínan pening þegar uppaldir leikmenn liðanna eru seldir áfram. Þau verða hins vegar að passa sig að peningurinn rati inn á þeirra reikninga. Það er komið upp víti til varnaðar í Noregi.

Banana óðir úlfar í Eurovision frá Noregi
Noregur hefur valið banana óða úlfa sem búa á tunglinu sem framlag sitt í Eurovision 2022. Subwoolfer sigruðu norsku söngvakeppnina með laginu Give That Wolf a Banana sem haldin var um helgina. Meðlimir Subwoolfer hafa farið huldu höfði en enginn veit hver er á bak við grímurnar. Söngvararnir og lagahöfundarnir kalla sig þó Keith og Jim.

Freyja dregur norskt loðnuveiðiskip í höfn
Varðskipið Freyja hefur síðan í gærkvöld haft norskt loðnuskip í togi sem fékk veiðarfæri í skrúfuna.

Leiðtogafundur um stöðu fólks með fötlun
Í vikunni var haldinn í Ósló alþjóðlegur leiðtogafundur um stöðu fólks með fötlun. Talið er að 15 prósent jarðarbúa, einn milljarður manna, sé með fötlun. Af þeim búa 80 prósent í lág- og millitekjuríkjum.

Fyrir níu mánuðum stórslasaður á sjúkrahúsi en fékk nú Ólympíugull um hálsinn
Sverre Lunde Pedersen varð Ólympíumeistari í liðakeppni karla í skautaati á Vetrarólympíuleikunum í Peking sem er ótrúleg staðreynd miðað við það hvernig hlutirnir litu út hjá honum síðasta sumar.