Norska ríkisstjórnin gefur út 47 ný leyfi til olíuleitar Kristján Már Unnarsson skrifar 12. janúar 2023 11:38 Frá Johan Sverdrup-svæðinu í Norðursjó. Equinor/Espen Rønnevik og Øyvind Gravås. Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Terje Aasland, hefur úthlutað 47 nýjum sérleyfum til olíuleitar og olíuvinnslu á norska landgrunninu. Ráðherrann tilkynnti um úthlutunina á árlegri ráðstefnu norska olíuiðnaðarins í bænum Sandefjord í fyrradag. „
Frekari rannsóknarstarfsemi og nýjar uppgötvanir eru mikilvægar til að viðhalda framleiðslu á olíu og gasi, bæði fyrir Noreg og Evrópu,“ er haft eftir olíumálaráðherranum í fréttatilkynningu norskra stjórnvalda undir fyrirsögninni: „Mikill áhugi á frekari leit á norska landgrunninu.“ Kvaðst hann stoltur af úthlutuninni enda væri um að ræða fjölbreyttan hóp leyfishafa. Leyfin eru til alls 25 olíufélaga, allt frá stórum alþjóðlegum olíurisum til minni norskra leitarfyrirtækja. Tólf fyrirtækjanna býðst fleiri en eitt leyfi og er bindandi verkáætlun tengd öllum leyfum. Flest leyfanna eru í Norðursjó, 29, í Noregshafi eru 16 leyfi og í Barentshafi tvö. Stjórnarskiptin í Noregi haustið 2021, þegar hægri stjórn Ernu Solberg vék fyrir mið-vinstristjórn Jonas Gahr Støre, virðast litlu hafa breytt um þá meginstefnu norskra stjórnvalda að halda fullum dampi í olíuiðnaðinum til langrar framtíðar. Það er helst að dregið sé úr leyfisveitingum á norðlægustu hafsvæðunum í Barentshafi. Terje Aasland, til vinstri, tók við embætti olíu- og orkumálaráðherra í mars í fyrra af Marte Mjøs Persen, til hægri, sem færðist yfir í atvinnumálaráðuneytið. Forsætisráðherrann Jonas Gahr Støre í miðið. Myndin var tekin framan við konungshöllina í Osló eftir sérstakan ríkisráðsfund þar sem ráðherraskiptin fóru fram.Torgeir Haugaard/Forsvaret „Árleg úthlutun leitarsvæða er liður í því að stuðla að stöðugri starfsemi á landgrunninu og til að ná meginmarkmiðum olíustefnu stjórnvalda. Olíugeirinn er mjög afkastamikill iðnaður sem leggur til miklar tekjur, verðmætasköpun og störf. Þessi úthlutun í dag er einnig mikilvægt framlag til að tryggja að Noregur verði áfram öruggur og fyrirsjáanlegur birgir olíu og gass til Evrópu,“ sagði olíumálaráðherrann Terje Aasland en hann kemur úr Verkamannaflokknum. Þótt meira en hálf sé liðin frá upphafi norska olíuævintýrisins eru enn að finnast stórar olíu- og gaslindir í norsku lögsögunni. Eitt nýlegasta dæmið er Johan Sverdrup-svæðið í Norðursjó en þar hófst olíuvinnsla formlega fyrir tveimur árum, eins og sjá má í þessari frétt Stöðvar 2:
Noregur Bensín og olía Tengdar fréttir Jólagjöf Norðmanna sögð stór gaslind í Barentshafi Norska olíufélagið Vår Energi, sem er að meirihluta í eigu hins ítalska Eni, tilkynnti á Þorláksmessu um stóran gasfund á svokölluðu Lupa-svæði nærri Golíat-olíusvæðinu í Barentshafi. Frumathugun bendir til að stærð gaslindarinnar jafngildi 57 til 132 milljónum tunna af vinnanlegri olíu. 27. desember 2022 15:56 Norsk stjórnvöld gefa út 53 ný olíuleitarleyfi Norsk stjórnvöld hafa úthlutað 53 nýjum sérleyfum til leitar og vinnslu olíu á landgrunni Noregs. Á sama tíma er skýrt frá því að aldrei í sögunni hafi tekjur Norðmanna af olíu- og gasvinnslu verið eins miklar og á nýliðnu ári. 23. janúar 2022 13:27 Sylvi Listhaug úthlutar 69 leyfum til olíuleitar Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Sylvi Listhaug, tilkynnti í vikunni um úthlutun 69 nýrra sérleyfa til leitar og vinnslu olíu í lögsögu Noregs. 19. janúar 2020 16:15 Segir að skála ætti í kampavíni fyrir nýja olíuvinnslusvæðinu Norðmenn hafa formlega tekið í notkun eitt verðmætasta olíuvinnslusvæði í sögu Noregs. Erna Solberg forsætisráðherra opnaði svæðið í forföllum Haraldar Noregskonungs. 9. janúar 2020 22:15 Olíuboranir aukast hvergi meira en hjá Norðmönnum Olíufélög hafa ekki borað meira í lögsögu Noregs frá olíuverðfallinu árið 2014. Engin önnur þjóð hefur aukið olíuleit meira en Norðmenn á þessu ári. 16. október 2019 09:33 Skrifar undir loftlagsmarkmið og stóreykur olíuleit á sama tíma Norðmenn eru að stórauka olíuleit í Barentshafi á sama tíma og forsætisráðherra þeirra undirritar yfirlýsingar í Reykjavík um aðgerðir í loftlagsmálum. 31. ágúst 2019 23:12 Fimmtíu ár frá upphafi norska olíuævintýrisins Það var á Þorláksmessu árið 1969 sem ráðamenn Phillips-olíufélagsins hringdu í norska iðnaðarráðuneytið og tilkynntu um að þeir hefðu fundið olíulind á Ekofisk-svæðinu í Norðursjó. 24. desember 2019 12:32 Mest lesið Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús Viðskipti innlent Fegurð er glæpur kom út í mínus Viðskipti innlent Stöðva þurfi rányrkju bílastæðaeigenda Neytendur „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Viðskipti innlent 4,4 milljarðar til borgarinnar vegna framkvæmda á Hólmsheiði Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Atvinnulíf Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Viðskipti innlent Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur Þetta kostar skyndibiti á Íslandi Neytendur Bæta við níunda áfangastað sínum á Spáni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira
Jólagjöf Norðmanna sögð stór gaslind í Barentshafi Norska olíufélagið Vår Energi, sem er að meirihluta í eigu hins ítalska Eni, tilkynnti á Þorláksmessu um stóran gasfund á svokölluðu Lupa-svæði nærri Golíat-olíusvæðinu í Barentshafi. Frumathugun bendir til að stærð gaslindarinnar jafngildi 57 til 132 milljónum tunna af vinnanlegri olíu. 27. desember 2022 15:56
Norsk stjórnvöld gefa út 53 ný olíuleitarleyfi Norsk stjórnvöld hafa úthlutað 53 nýjum sérleyfum til leitar og vinnslu olíu á landgrunni Noregs. Á sama tíma er skýrt frá því að aldrei í sögunni hafi tekjur Norðmanna af olíu- og gasvinnslu verið eins miklar og á nýliðnu ári. 23. janúar 2022 13:27
Sylvi Listhaug úthlutar 69 leyfum til olíuleitar Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Sylvi Listhaug, tilkynnti í vikunni um úthlutun 69 nýrra sérleyfa til leitar og vinnslu olíu í lögsögu Noregs. 19. janúar 2020 16:15
Segir að skála ætti í kampavíni fyrir nýja olíuvinnslusvæðinu Norðmenn hafa formlega tekið í notkun eitt verðmætasta olíuvinnslusvæði í sögu Noregs. Erna Solberg forsætisráðherra opnaði svæðið í forföllum Haraldar Noregskonungs. 9. janúar 2020 22:15
Olíuboranir aukast hvergi meira en hjá Norðmönnum Olíufélög hafa ekki borað meira í lögsögu Noregs frá olíuverðfallinu árið 2014. Engin önnur þjóð hefur aukið olíuleit meira en Norðmenn á þessu ári. 16. október 2019 09:33
Skrifar undir loftlagsmarkmið og stóreykur olíuleit á sama tíma Norðmenn eru að stórauka olíuleit í Barentshafi á sama tíma og forsætisráðherra þeirra undirritar yfirlýsingar í Reykjavík um aðgerðir í loftlagsmálum. 31. ágúst 2019 23:12
Fimmtíu ár frá upphafi norska olíuævintýrisins Það var á Þorláksmessu árið 1969 sem ráðamenn Phillips-olíufélagsins hringdu í norska iðnaðarráðuneytið og tilkynntu um að þeir hefðu fundið olíulind á Ekofisk-svæðinu í Norðursjó. 24. desember 2019 12:32