Færeyjar

Færeyjar

Höfuðborg: Þórshöfn. Mannfjöldi 56 þúsund (2025). Flatarmál: 1.399 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“

Ný yfirlýsing sem snýr að áhrifum nýrrar tækni á börn og ungmenni var undirrituð á fundi forsætisráðherra Norðurlanda í dag, þann 27. október, sem er í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs sem fram fer í Helsinki þessa dagana. Kristrún Frostadóttir segir jákvætt að þjóðirnar, sem hafi oft verið frumkvöðlar þegar kemur að velferðarmálum, taki höndum saman um að bjóða tæknirisum birginn.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Arnar­fell dregið til Fær­eyja

Bilun kom upp í Arnarfelli, gámaflutningaskipi Samskipa, er það silgdi á milli Hjaltlandseyja og Færeyja í gær. Skipið var á leið til Rotterdam í Hollandi. Skipið verður dregið í land til Runavíkur í Færeyjum. Engan sakaði að sögn Samskipa, sem segja að orsök bilunarinnar sé þekkt.

Innlent
Fréttamynd

Atlantic Airways gefur eftir í sam­keppni við Icelandair

Færeyska flugfélagið Atlantic Airways, eða Atlantsflog eins og það heitir á móðurmálinu, hefur ákveðið að fækka flugferðum milli Íslands og Færeyja í vetur, og raunar leggja Íslandsflug alfarið niður yfir háveturinn. Ástæðan er aukin samkeppni frá Icelandair, sem tilkynnti í lok maímánaðar að það hygðist fljúga allt árið til Færeyja.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Mætt til Græn­lands með pyngju fulla af peningum

Bandaríkjaforseti er ekki einn um það að líta hýru auga til Grænlands. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, er sögð munu í heimsókn sinni í dag boða aukinn fjárstuðning við Grænland. Þetta gerist í skugga hótana Bandaríkjaforseta um að leggja undir sig eyjuna. Erlendir miðlar setja þetta einnig í samhengi við nýafstaðna atkvæðagreiðslu þar sem Íslendingar höfnuðu aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

Erlent
Fréttamynd

Þoka í Fær­eyjum veldur vand­ræðum

Þoka yfir Færeyjum setur leik KÍ Klaksvíkur og Lech Poznan í forkeppni Evrópudeildarinnar í hættu. Þeir pólsku hafa gert tvær tilraunir til að lenda í Þórshöfn án árangurs.

Fótbolti
Fréttamynd

Danir auka víg­búnað í Fær­eyjum

Dönsk stjórnvöld ætla að auka viðveru hersins í Færeyjum. Danski varnarmálaráðherrann Jeppe Bruus og færeyskur strafsbróðir hans, Bárður á Steig Nielsen, sem fer fyrir utanríkis- og sjávarútvegsmálum í Færeyjum, hafa gert samkomuag um þetta.

Erlent
Fréttamynd

Ný þungunar­rofslög taka gildi í Fær­eyjum

Ný lög um þungunarrof tóku gildi á miðvikudaginn síðastliðinn í Færeyjum. Fyrri lög voru ein þau ströngustu í Evrópu en nýju lögin eru afar umdeild og naumt var á milli þegar lögin voru samþykkt í desember síðasta árs. 

Erlent
Fréttamynd

Endaði einn í Fær­eyjum í sögu­legri steggjun

„Þá sögðu þeir: Gjörðu svo vel, þú ert að fara til Færeyja. Nánari upplýsingar um hvað þú átt að gera og hvernig þú kemst heim koma síðar,“ segir steggurinn, leikarinn og lífskúnstnerinn Arnór Björnsson sem var steggjaður af vinum sínum á vægast sagt einstakan hátt um helgina. 

Lífið
Fréttamynd

„Finnst ég komin heim þegar ég er í Fær­eyjum“

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, komu í dag til Færeyja í þriggja daga opinbera heimsókn í boði lögmanns Færeyja og eiginkonu hans. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja náin tengsl Íslands og Færeyja og vinna að frekara samstarfi, meðal annars á sviði sjávarútvegs, orkumála, nýsköpunar og menningarmála.

Innlent
Fréttamynd

Gáma­skip Sam­skipa bilaði við Fær­eyjar

Vélabilun kom upp í gámaskipi Samskipa suðvestur af Suðurey í Færeyjum aðfaranótt laugardags. Færeyska varðskipið Brimil dró skipið Hoffell til Runavíkur þar sem það liggur nú við höfn.

Erlent
Fréttamynd

Lands­stjórn Fær­eyja hvetur til olíu­vinnslu

Ný landsstjórn Færeyja hyggst hefja viðræður við ríkisstjórn Danmerkur um að Færeyingum verði tryggður sjálfsákvörðunarréttur í öllum málum sem varða Færeyjar. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Þórshöfn í dag þar sem oddvitar kynntu samstarfssáttmálann.

Erlent
Fréttamynd

Ný lands­stjórn boðar ó­breytt ríkja­sam­band við Dan­mörku

Víðtækar pólitískar málamiðlanir voru nauðsynlegar, sagði Beinir Johannesen, nýr lögmaður Færeyja, á blaðamannafundi í Þórshöfn laust fyrir hádegi. Þar kynntu formenn flokkanna þriggja, sem mynda nýja landsstjórn í Færeyjum, stjórnarsáttmálann sem ber fyrirsögnina „Ábyrgð, stöðugleiki og breið samstaða“.

Erlent
Fréttamynd

Sam­staða um að Beinir verði lög­maður Fær­eyja

Samkomulag hefur náðst um myndun nýrrar þriggja flokka landsstjórnar í Færeyjum milli Fólkaflokksins, Sambandsflokksins og Javnaðarflokksins. Beinir Johannesen, formaður Fólkaflokksins, staðfesti í viðtali við Kringvarpið í dag að hann myndi leiða stjórnina og verða næsti lögmaður Færeyja.

Erlent
Fréttamynd

Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Ís­lands

Óvenjuleg heræfing fór fram á um páskana í samstarfi danska og franska hersins. Frönsk herflutningavél ferjaði þá danskar herþyrlur milli Danmerkur og Íslands. Verkefnið reyndist krefjandi og þurfti útsjónarsemi til að koma þyrlunum í flutningavélina. Miðað við mælistærðir eru þær of stórar til að rúmast um borð, jafnvel þótt spaðarnir séu teknir af.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land, Græn­land og Fær­eyjar saman hefðu sterka samnings­stöðu

Eldur Ólafsson forstjóri Amaroq Minerals segir að ef Ísland, Færeyjar og Grænland semji um fríverslunarsamning og sameini krafta sína séu þau í afar sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Norður-Atlantshaflöndin skipti nú heiminn máli og það eigi þau að nýta sér fram í rauðan dauðann.

Innlent
Fréttamynd

Vill ljúka stjórnar­myndun í Fær­eyjum í næstu viku

Viðræður um myndun nýrrar landsstjórnar í Færeyjum hófust í gær undir forystu Beinis Johannesen, formanns Fólkaflokksins, stærsta sigurvegara þingkosninganna. Beinir gæti orðið yngsti lögmaður Færeyja, aðeins 29 ára gamall. Færeyingar fengu einnig yngsta þingmann í sögu Lögþingsins, tvítuga konu.

Erlent