Venesúela

Ólíkar meiningar um valdsvið Trump og dómstóla
Áhyggjur manna af árekstrum milli Donald Trump Bandaríkjaforseta og dómstóla virðast vera að raungerast en Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Trump, sagði í yfirlýsingu í gær að dómstólar hefðu ekki vald til að skipta sér af aðgerðum forsetans í utanríkismálum.

Stefna á víðtækar ferðatakmarkanir
Stjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, stefnir á að gefa út víðtækar ferðatakmarkanir fyrir ríkisborgara 43 landa. Löndunum er skipt í þrjú stig en ríkisborgum ellefu landa verður alfarið bannað að ferðast til Bandaríkjanna.

Bannaði Trump að nota lög frá átjándu öld
Bandarískur alríkisdómari meinaði í gærkvöldi Donald Trump, forseta, að nota lög frá lokum átjándu aldar til að gera auðveldara að flytja farand- og flóttafólk úr landi. Skipaði hann ríkisstjórn Trumps að snúa við flugvélum með fólki sem verið var að flytja úr landi.

Brottvísuninni frestað fram yfir aðgerð
Brottvísun hinnar venesúelönsku Emmu, þriggja ára stúlku sem þarf að fara í nauðsynlega aðgerð vegna mjaðmaliðhlaups, og fjölskyldu hennar hefur verið frestað þangað til hún er búin í aðgerðinni.

Brottvísunin endanleg og nær ekki aðgerðinni
Þriggja ára stúlku með heilsufarskvilla og foreldrum hennar verður að öllu óbreyttu vísað úr landi fyrir helgi. Stúlkan er bókuð í nauðsynlega skurðaðgerð hérlendis í febrúar.

Maduro leggur fé til höfuðs keppinauti sínum
Ríkisstjórn Venesúela býður hverjum þeim sem getur veitt upplýsingar sem leiða til handtöku forsetaframbjóðanda stjórnarandstöðunnar á annan tug milljóna króna í verðlaun. Frambjóðandinn hefur heitið því að snúa aftur úr útlegð fyrir embættistöku Nicolás Maduro forseta.

Framúrskarandi Íslendingur sendur úr landi
Margmenni kom saman á Skúlagötu þar sem kærunefnd útlendingamála er til húsa til að mótmæla yfirvofandi brottvísun systra sem komu hingað til lands til að flýja borgarastyrjöld í Sýrlandi. Systurnar verða aðskildar frá fjölskyldu sinni og segir eldri systirin það blendnar tilfinningar að hafa fengið viðurkenningu frá forsetanum á dögunum áður en henni verður vísað úr landi.

Hvert er „útlendingavandamálið“?
Á fyrstu níu mánuðum ársins 2024 hafa 894 einstaklingar frá Úkraínu fengið mannúðarleyfi til dvalar hér á landi vegna stríðsástandsins og 158 einstaklingar samanlagt frá stærstu hópum annarra landa sem hafa hlotið alþjóðlega vernd. Stærstu hóparnir sem hafa fengið alþjóðlega vernd samanstanda af 56 einstaklingum frá Venesúela og 38 frá Palestínu.

Aftur rafmagnslaust á Kúbu
Kúba varð rafmagnslaus í annað sinn á rúmum sólahring í dag. Tilkynnt var um það í gærkvöldi að landið væri allt rafmagnslaust vegna bilunar í einu stærsta orkuveri landsins. Í frétt á Guardian segir að rafmagnskerfið hafi svo hrunið í annað sinn eftir að yfirvöld voru byrjuð að koma rafmagni aftur á.

Lygar sem kosta mannslíf
Stjórnmálamenn án stjórnmála snúa sér að útlendingahatri. Það hefur gerst á Íslandi og kostnaðurinn er mannslíf saklaus fólks sem hefur komið til Íslands og er vísað frá Íslandi án þess að rök séu fyrir slíku.

Flúði þegar sveitir Maduro ætluðu að grípa hann
Edmundo González, forsetaframbjóðandi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, segist hafa flúið land þegar hann fékk upplýsingar um að öryggssveitir Maduro forseta ætluðu að taka hann höndum. Hann hefði getað verið handtekinn og pyntaður.

Hafna því að CIA hafi reynt að ráða Maduro af dögum
Bandaríkjastjórn hafnar ásökunum stjórnvalda í Venesúela um að bandaríska leyniþjónustan CIA hafi reynt að myrða Nicolás Maduro forseta og aðra háttsetta embættismenn.

Hét því að vísa haítískum innflytjendum til Venesúela
Donald Trump, forsetaframbjóðandi repúblikana, hét því að vísa þúsundum löglegra haítískra innflytjenda frá einni tiltekinni borg í Ohio úr landi í dag. Hann virtist ruglaður í ríminu þegar hann sagðist ætla að senda fólki „aftur til Venesúela“.

Stjórnarandstöðuleiðtoginn flúinn til Spánar
Edmundo Gonzalez leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela er flúinn úr landi og lentur á Spáni. Handtökuskipun á var gefin út á hendur honum í vikunni.

Handtökuskipun á mótframbjóðanda Maduro gefin út
Dómari í Venesúela gaf út handtökuskipun á hendur forsetaframbjóðanda stjórnarandstöðunnar í gær. Leiðtogum hennar hefur ítrekað verið hótað fangelsun eftir umdeildar forsetakosningar í sumar.

Lögðu hald á einkaþotu Venesúelaforseta
Bandarísk yfirvöld lögðu hald á einkaþotu sem Nicolas Maduro forseti Venesúela hefur nýverið flogið með í Dóminíska lýðveldinu í dag. Flugvélinni var í framhaldinu flogið til Flórída en bandamenn Maduro eru grunaðir um að hafa fest kaup á henni með ólögmætum hætti.

Þátttakendur í mannréttindakreppunni sem við fordæmum
Venesúela var eitt sinn fimmta stærsta hagkerfi Suður-Ameríku en hefur nú undanfarin ár gengið í gegnum eitt versta efnahagshrun í sögu þjóðarinnar. Efnahags- og stjórnmálakreppan sem hefur heltekið þjóðina stafar í grunninn af verðhruni á olíu, en olía er lykilútflutningsvara þjóðarinnar.

Fimmfaldur Ólympíufari kafnaði í íbúð sinni
Fyrrum afreksíþróttakonan Daniela Larreal Chirinos er látin aðeins fimmtug að aldri. Hún lifði viðburðaríku lífi en endalokin voru mjög sorgleg.

SÞ fordæma ógegnsæi í kosningunum í Venesúela
Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja að forsetakosningar sem fóru fram í Venesúela í síðasta mánuði hafi skort gegnsæi og heilindi. Þeir gagnrýna kjörstjórn landsins harðlega fyrir að lýsa yfir úrslitum án þess að birta tölur frá hverjum kjörstað.

Mannréttindastjóri gagnrýnir óhóflega beitingu valds í Venesúela
Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna lýsti í dag miklum áhyggjum af áframhaldandi geðþótta-fjöldahandtökum í Venesúela. Jafnframt telur hann beitingu valds óhóflega að loknum forsetakosningum í landinu.

Treystir Útlendingastofnun fullkomlega
Um sjö fjölskyldum frá Venesúela var vísað úr landi í gær þrátt fyrir óöldina þar í landi eftir umdeildar forsetakosningar fyrir rúmri viku síðan. Formaður allsherjar- og menntamálanefndar segist treysta mati útlendingayfirvalda í málaflokknum.

Mótmæla brottvísun stórs hóps hælisleitenda
Hópur fólks frá Venesúela er staddur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar til að mótmæla brottvísun samlanda sinna. Fjöldi hælisleitenda frá Suður-Ameríku ríkinu flýgur frá Íslandi í kvöld og er byrjað að innrita hópinn.

„Þið vitið ekki hver raunveruleikinn þarna er“
Hælisleitendur óttast um líf sitt verði þeir sendir til baka til Venesúela frá Íslandi. Lögmaður segir útlendingayfirvöld ekki taka mið af óöldinni sem ríkir í Venesúela eftir endurkjör forsetans. Flugvél full af hælisleitendum frá Venesúela flýgur frá Keflavíkurflugvelli í kvöld.

Maduro lokar X í tíu daga
Nicolas Maduro, nýendurkjörinn forseti Venesúela í kosningum sem hafa verið harðlega gagnrýndar, hefur ákveðið að slökkva á samfélagsmiðlinum X, sem áður hét Twitter, í tíu daga hið minnsta.

Brennandi hús
Í komandi viku ætla íslensk stjórnvöld að smala fjölskyldum frá Venesúela í flugvélar og senda beint í fangið á ólögmætum stjórnvöldum þar í landi. Nicolas Maduro, sem er eftirlýstur fyrir fíkniefnasmygl og sakaður af Sameinuðu þjóðunum um glæpi gegn mannkyni, tapaði kosningum síðasta sunnudag en neitar að viðurkenna það.

Hefur sakamálarannsókn á stjórnarandstöðunni
Ríkissaksóknari Venesúela hóf sakamálarannsókn á leiðtoga og forsetaframbjóðanda stjórnarandstöðunnar fyrir að vefengja opinber úrslit forsetakosninganna og að hvetja lögreglu og her til lögbrota. Yfirvöld hafa enn ekki birt öll kjörgögn sem kallað hefur verið eftir.

Tók þátt í mótmælum þrátt fyrir hótun Maduro um handtöku
Leiðtogi venesúelsku stjórnarandstöðunnar tók þátt í fjöldamótmælum vegna umdeildra forsetakosninga í höfuðborginni Caracas þrátt fyrir að Nicolás Maduro forseti hafi hótað að láta handtaka hann. Opinberar tölur um úrslit kosninganna liggja enn ekki fyrir að fullu.

Blinken segir González réttkjörinn forseta en Maduro situr sem fastast
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir sönnunargögn sýna að Edmundo González hafi borið sigur úr býtum í forsetakosningunum í Venesúela gegn Nicolás Maduro, sitjandi forseta.

Einn látinn í mótmælunum
Mótmælaalda geisar enn í Venesúela eftir að endurkjör Nicolasar Maduro forseta var staðfest á sunnudag. Einn hefur látið lífið í mótmælunum.

Mótmæli vegna endurkjörs Venesúelaforseta
Efnt hefur verið til mótmæla víða í Venesúela vegna endurkjörs Nicolás Maduro í embætti forseta. Maduro hlaut 51 prósent atkvæða, þvert á það sem útgönguspár gerðu ráð fyrir og hefur stjórnarandstaðan þar í landi sagt kosningarnar meingallaðar.