

Hvíta húsið tilkynnti í gærkvöldi að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði gripið inn í mál þriggja hermanna sem hafa verið sakaðir og jafnvel dæmdir fyrir stríðsglæpi. Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna voru hins vegar á móti aðgerðunum.
Fjórir létust og 35 slösuðust í átökum mótmælenda og öryggissveita í Írak. Mótmæli hafa staðið yfir í mánuð og yfir 250 hafa manns látið lífið. Stjórnvöld hafa reynt ýmsar leiðir, meðal annars að loka á aðgang að interneti
Yfirvöld í Tyrklandi segja að hermenn hafi handsamað eldri systur Abu Bakr al-Baghdadi, látins leiðtoga Íslamska ríkisins
Mótmæli standa enn yfir í Írak.
Þúsundir mótmæltu ríkisstjórn Íraks í dag. Lögregla mætti mótmælendum með byssum og táragasi.
Yfirvöld Írak segja að bandarísku hermennirnir sem eru komnir til Írak frá Sýrlandi verði að yfirgefa landið innan fjögurra mánaða.
Ríkisstjórn Írak segir að bandarískir hermenn sem hafi verið kallaðir frá Sýrlandi hafi ekki leyfi til að halda til í Írak.
Einhverjar bandarískar hersveitir munu kannski verða eftir í Sýrlandi til að tryggja að olíuakrar muni ekki falla í hendur hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við íslamska ríkið. Þetta sagði Mark Esper, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á mánudag þrátt fyrir að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hafi ítrekað að allar hersveitir Bandaríkjanna muni yfirgefa landið.
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Mark Esper, segir að hersveitir Bandaríkjanna sem eru að yfirgefa Sýrland muni fara til vesturhluta Írak þar sem Bandaríkjaher mun halda áfram að berjast gegn hryðjuverkahópnum sem kennir sig við íslamskt ríki í von um að hópurinn muni ekki ná uppgöngu að nýju.
Hermenn Bandaríkjanna munu afhenda alræmda vígamenn Íslamska ríkisins til yfirvalda Íraks. Um er að ræða tæplega 50 ISIS-liða sem fluttir voru úr haldi sýrlenskra Kúrda eftir innrás Tyrkland á yfirráðasvæði þeirra í Sýrlandi.
Rúmlega hundrað manns hafa látið lífið og yfir 6.000 eru slasaðir eftir blóðug átök í mótmælum í Írak. Kröfur mótmælenda eru útrýming spillingar í landinu og fleiri störf fyrir íbúana.
Undanfarna fimm daga hafa Írakar víða safnast saman á götum úti og mótmælt ríkisstjórn forsætisráðherrans Adil Abdul-Mahdi. Íraskar mannréttindastofnanir segja að um eitt hundrað manns hafi látist í átökum vegna mótmælanna.
Forsætisráðherra Íraks sagði í dag að kröfur mótmælenda í landinu væru réttlátar. Mikill glundroði hefur verið í Írak undanfarna þrjá daga og tuttugu hafa farist.
Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í landinu síðustu daga og hefur komið til skotbardaga á milli öryggissveita og mótmælenda.
Hassan Rouhani, leiðtogi Íran, varar við því utanaðkomandi hersveitir ógni friði og öryggi á Persaflóa.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, gaf í skyn í nótt að Bandaríkin gætu brugðist við árás á olíuframleiðslu Sádi-Arabíu með hernaðaraðgerðum.
Minnst 31 létust í samkomu í tilefni af Ashura, sem er helgur dagur Shia múslima, í íröksku borginni Karbala. Mennirnir voru troðnir niður í öngþveiti.
Tugir þúsunda kvenna og barna frá Kalífadæmi Íslamska ríkisins halda til í al-Hol búðunum þar sem "prinsessur“ ISIS eru sagðar stjórna með hótunum, ofbeldi og grimmilegum morðum.
Ísrael stóð að baki sprengjuárás á íranska vopnageymslu í Írak í síðasta mánuði. Þetta staðfesta bandarísk yfirvöld.
Tyrkneski aðstoðarkonsúllinn í borginni Irbil í Kúrdistan var meðal tveggja sem létust eftir að ráðist var á veitingahúsið HuQQabaz í borginni. Talið er að hinn sem lést sé óbreyttur borgari.
Umm Sayyaf, eiginkona Abu Sayyaf, sem lengi var einn mikilvægasti liðsmaður hryðjuverkasamtakanna ISIS, hefur aðstoðað bandarísku leyniþjónustuna, CIA, sem og leyniþjónustu Kúrda, við það að hafa hendur í hári Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtoga ISIS.
Yfirvöld Frakklands segjast ætla að reyna að koma í veg fyrir að mennirnir verði teknir af lífi vegna andstöðu Frakka við dauðadóma en ríkisstjórn Emmanuel Macron, forseta, hefur ekki viljað taka við frönskum ISIS-liðum sem eru í haldi.
Íran mun verjast öllu hernaðarlegu eða efnahagslegu ofstopi, sagði Mohammad Javad Zarif, utanríkisráðherra Íran, á blaðamannafundi á sunnudag. Hann kallaði einnig eftir því að evrópsk ríki gerðu meira til að viðhalda kjarnorkusamningnum sem Íran skrifaði undir.
Réttarhöld yfir Edward Gallagher eru ekki hafin enn en Donald Trump, forseti, er sagður vera að undirbúa að náða Gallagher sem hefur verið ákærður fyrir þrjú morð.
Yfirvöld Bandaríkjanna hafa skipað flestum starfsmönnum Utanríkisráðuneytisins í Baghdad og Ebril að yfirgefa Írak hið snarasta.
Leiðtogi Íslamska ríkisins reyndi að stappa stálinu í fylgjendur sína og sagði baráttu þeirra ekki lokið.
Ekki er vitað hvenær myndbandið var tekið upp en samtökin segja það hafa verið í apríl.
Paul LaCamera, æðsti hershöfðingi bandalagsins gegn Íslamska ríkinu, segir það sögulegan áfanga að hafa sigrað kalífadæmi ISIS.
Enn standa þó yfir stakir bardagar á milli ISIS-liða og sýrlenskra Kúrda og bandamanna þeirra í austurhluta Sýrlands.
Talið er að hið minnsta 40 hafi farist þegar ferja sökk í Tígrisfljóti nærri íröksku borginni Mósúl í dag.