![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2018-10-22T153245.909Z-Manchester_City_FC_badge.svg.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/gracenote/4087.png)
Hinn 42 ára gamli Shreeraj Laturia, sem missti eiginkonu sína og ungbarn í bílslysi við Núpsvötn, segir að langhlaup hafi hjálpað honum mikið við að vinna úr sorginni sem fylgdi þessum mikla missi.
Ökumaður bifreiðar sem fór út af brúnni yfir Núpsvötn þann 27. desember 2018 ók of hratt og virti ekki viðvörunarmerki við brúna.
Minningarsjóður Jennýjar Lilju Gunnarsdóttur afhendir í dag Björgunarsveitinni Kyndli þrjú loftdýnusett til að auðvelda sveitinni störf á vettvangi slysa.
Fólkið sem slasaðist í banaslysinu á brúnni yfir Núpsvötn er ferðafært og heldur til síns heima í Bretlandi á morgun. Þar verða þau öll lögð inn á sjúkrahús þó áverkar þeirra séu mis alvarlegir.
Banaslys eða önnur alvarleg slys hafa orðið á fjórtán einbreiðum brúm frá aldamótum.
Karlmaður sem ók Toyota Land Cruiser jeppa sem fór útaf brúnni yfir Núpsvötn þann 27. desember með þeim afleiðingum að þrír týndu lífi man fátt um málsatvik.
Þeir sem slösuðust í slysinu sagðir á batavegi.
Ekki hefur enn verið hægt að taka skýrslu af ökumanni bílsins sem fór út af brúnni við Núpsvötn síðastliðinn fimmtudag með þeim afleiðingum að þrír létust og fjórir slösuðust alvarlega.
Fréttastofa Sky í Bretlandi segir brýr á Íslandi hafa verið gagnrýndar lengi í aðdraganda alvarlegs banaslyss á brúnni yfir Núpsvötn þann 27. desember.
Börnin tvö sem slösuðust þegar bifreið fór út af brúnni yfir Núpsvötn eru á batavegi, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Lögreglunni´á Suðurlandi.
Eiginkonur þeirra létust í slysinu, ásamt 11 mánaða gömlu barni. Mennirnir og tvö önnur börn voru flutt þungt haldin á Landspítala.
Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir barnabílstóla veita mikla vörn en óvíst sé hvort að það hefði breytt einhverju í banaslysinu við Núpsvötn í gær.
Lögregla og rannsóknarnefnd samgönguslysa unnu í dag að rannsókn umferðarslyssins sem varð við Núpsvötn í gær. Bílstóll fannst laus í Land Cruiser-jeppanum sem fór út af veginum við Núpsvatnsbrú og barnið sem lést var ekki í stólnum. Blóðsýni á ökumanni bifreiðarinnar leiddi í ljós að hann var ekki undir áhrifum áfengis.
Nokkrir breskir fjölmiðlar hafa í dag birt nöfn og myndir af konunum tveimur sem létust í umferðarslysinu við Núpsvötn í gær.
Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir erfitt að fullyrða um það hversu miklu bílstóll hefði getað bjargað en bílstólar veiti börnum gríðarlega mikla vörn.
Utanríkisráðuneytið og þar til bærar stofnanir munu gefa út flýtiáritun fyrir bróður og fjóra aðra ættingja mannanna tveggja sem voru í umferðarslysinu við Núpsvötn í gær.
Tilkynning frá lögreglunni á Suðurlandi vegna banaslyssins við Núpsvötn.
Segir litla frænku sína hafa farist í slysinu.
Vonir eru bundnar við að samtöl við mennina, sem og rannsókn á bílnum, varpi ljósi á tildrög slyssins.
Eiginmenn kvennanna eru alvarlega slasaðir ásamt tveimur börnum sem voru í bílnum sem fór fram á brúnni yfir Núpsvötn í morgun. Auk kvennanna fórst ungt barn.
Guðmundur Valur Guðmundsson forstöðumaður hjá Vegagerðinni segir að slysið í dag þrýsti á framkvæmdir við Súlu sem fyrst.
Fjölskyldur tveggja bræðra voru í bílnum sem fór fram af brúnni yfir Núpsvötn í morgun. Þrír eru látnir og fjórir alvarlega slasaðir.
Ólafur Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur segir um tíu til fimmtán brýr hér á landi ekki uppfylla öryggiskröfur.
Aðstæður á slysstað við Núpsvötn í dag voru afar erfiðar og aðkoman hræðileg. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Herdísi Gunnarsdóttur, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU), sem hún sendi fjölmiðlum laust fyrir klukkan 16.
Verið er að opna Suðurlandsveg á ný.
Akkúrat ár liðið frá því að rúta með 44 kínverska ferðamenn innanborðs fór út af Suðurlandsvegi í Eldhrauni, um sex kílómetra vestur af Kirkjubæjarklaustri, með þeim afleiðingum að tveir létust og fjölmargir slösuðust alvarlega.
Þrír eru látnir og fjórir alvarlega slasaðir eftir að Toyota Land Cruiser jeppi fór út af brúnni yfir Núpsvötn á tíunda tímanum í morgun.
Á meðal fyrstu frétta hjá stærstu miðlunum.
Allir breskir ríkisborgarar sem voru í bílnum.
Adolf Ingi Erlingsson, leiðsögumaður, sem var einn af þeim fyrstu á vettvang á slysstað við Núpsvötn í morgun ásamt tveimur lögreglumönnum segir aðkomuna hafa verið mjög ljóta.