Björgunarsveitir

Strandveiðibátur strandaði í Súgandafirði
Björgunarsveit á Suðureyri var kölluð út um hálf fimm í dag vegna báts sem sigldi í strand utarlega í Súgandafirði.

Björguðu hundi úr sprungu á Þingvöllum
Björgunarsveitarmenn sigu niður í sprunguna og tókst og koma ólum á hundinn og hífa hann upp.

Björgunarsveit í tvö útköll í Ísafjarðardjúpi
Björgunarsveit á Ísafirði var kölluð út í tvígang seinni partinn í dag vegna slysa í Ísafjarðardjúpi.

Tekjutap fyrir björgunarsveitir ef flugeldasýningum verði hætt
Björgunarsveitir yrðu af tekjum ef bæjarfélög hætta með flugeldasýningar, segir talsmaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Reykjavíkurborg íhugar að hætta með flugeldasýningu á menningarnótt vegna umhverfisáhrifa.

Vélarvana bátur við Maríuhorn í Jökulfjörðum
Búið er að koma farþegum bátsins heilum og höldnu aftur til Ísafjarðar.

Slasaður í hlíðum Búrfells eftir nauðlendingu svifvængs
Um klukkan 12:30 barst Lögreglunni á Suðurlandi hjálparbeiðni gegnum Neyðarlínu vegna manns sem hafði nauðlent svifvæng í norðanverðu Búrfelli.

22 tonna skip strand við Stykkishólm
Björgunarsveitir á norðanverðu Snæfellsnesi voru kallaðar út skömmu eftir hádegi í dag vegna skips sem hafði strandað fyrir utan Stykkishólm.

Samið við undanfara á Flúðum vegna neyðarhjálpar
Björgunarfélagið Eyvindur á Flúðum hefur mikilvægu hlutverki að gegna í Uppsveitum Árnessýslu í neyðartilfellum því félagar þar eru undanfarar og hefja aðstoð á vettvangi og veita fyrstu hjálp þar til sérhæfð aðstoð kemur á staðinn.

Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slasaðs einstaklings í Öræfajökli
Á fjórða tímanum í dag óskaði lögreglan á Suðurlandi eftir aðstoð þyrlu landhelgisgæslunnar vegna slasaðs einstaklings sem var fastur í um 900 metra hæð ofan Sandfellsheiðar í suðvesturverðum Öræfajökli.

Björgunin á Ísafirði: „Hann hékk þarna á klettasyllu og gat sig hvergi hreyft“
Mennirnir höfðu orðið viðskila. Erfitt reyndist að staðsetja þá nákvæmlega en þeir voru í um sjö hundruð metra hæð.

Þyrlan kölluð út vegna manna í sjálfheldu í Naustahvilft
Voru 700 metra yfir sjávarmáli og í miklum bratta.

Fótbrotnaði efst í Reykjadal
Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út um klukkan fimm nú síðdegis.

Leita að konu ofan við Dalvík
Björgunarsveitin í Dalvík freistar þess nú að staðsetja konuna með aðstoð dróna.

Brenndist illa í leðjupytt við myndatöku
Brenndist frá tám og upp að hné.

Björgunarsveitarmanni ekki vikið úr starfi þrátt fyrir nauðgunarkæru
Björgunarsveitarmanni hjá Landsbjörgu, sem annar félagsmaður kærði fyrir nauðgun, var ekki vikið úr sveitinni meðan rannsókn á málinu fór fram. Málið er nú til merðferðar hjá héraðssaksóknara.

Færeyski forstjórinn bætti rör frítt
Björgunarskipi Ísfirðinga, Gísla Jóns, var fagnað í nýrri heimahöfn sinni um hádegi í gær. Það kom frá Bodö í Noregi. Stýrimaður á heimstíminu var Ásgeir Guðbjartsson.

Aukaframlag annað árið í röð til að opna Hálendisvaktina fyrr
Hálendisvaktin fær 900 þúsund krónur í viðbótarframlag frá ferðamálaráðherra til að unnt verði að hefja viðveru á hálendinu hálfum mánuði fyrr en ella.

Þór kjörinn nýr formaður Landsbjargar
Þór Þorsteinsson hefur verið kjörinn nýr formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Þriðja stórslysið á 100 kílómetra kafla á Suðurlandsvegi
Björgunarsveitarfólk sem var á leið á landsþing Landsbjargar á Egilsstöðum í gær var á meðal þeirra sem komu til aðstoðar á slysstað við Hof í gær þar sem að rúta með 32 kínverska ferðamenn auk ökumanns fór út af veginum.

Björgunarsveitir kallaðar út vegna kajakræðara í vanda
Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út eftir að tilkynning barst um kajakræðara í vanda fyrir utan Grafarvog í Reykjavík skömmu fyrir klukkan 20:30 í kvöld.

Viðamikil æfing í hættulegasta fjalli landsins
Um 60 björgunarsveitarmenn komu að viðamikilli æfingu í Kirkjufelli við Grundarfjörð þar sem nokkur banaslys hafa orðið undanfarin ár. Varaformaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar segir fjallið hafa verið valið sem vettvang æfingarinnar það sem það sé hættulegasta fjall landsins.

Æfðu viðbrögð við flugslysi í Grímsey
Staðið var fyrir flugslysaæfingu í Grímsey í morgun þar sem viðbragðsaðilar komu saman til að æfa viðbrögð við flugslysi.

Skemmtibátur dreginn í höfn í Kópavogi
Tveir voru um borð í skemmtibát þegar mótorinn hætti að virka á siglingu í Kópavogi um þrjúleytið.

Sökk á nokkrum mínútum úti fyrir Hvammstanga
Mannbjörg varð þegar bátur sökk úti fyrir Hvammstanga í nótt . Varaformaður björgunarsveitarinnar Húna segir að ekki hefði mátt tæpara standa en báturinn sökk skömmu eftir að sveitin kom að. Þrír bátsverjar voru komnir í flotgalla og var bjargað úr sjónum

Björguðu þremur mönnum þegar bátur sökk við Hvammstanga
Björgunarsveitin á Hvammstanga var boðuð út um klukkan fjögur í nótt vegna báts sem var þá að sökkva úti fyrir bænum.

Sækja stúlku sem slasaðist í Esjunni
Ekki alvarlega slösuð en ófær um að ganga niður sökum meiðsla.

Kyndill nýtur góðs af minningarsjóði Jennýjar Lilju
Minningarsjóður Jennýjar Lilju Gunnarsdóttur afhendir í dag Björgunarsveitinni Kyndli þrjú loftdýnusett til að auðvelda sveitinni störf á vettvangi slysa.

Eldur í bát á Breiðafirði
Landhelgisgæslan og björgunarsveitir á Vesturlandi fengu tilkynningu skömmu fyrir klukkan sex um að eldur hafi komið upp í bát sem staddur er úti á Breiðafirði.

Þakklæðning á hárri byggingu á Keflavíkurflugvelli að fjúka
Á tíunda tímanum barst beiðni um aðstoð til björgunarsveita á Suðurnesjum vegna þaks á hárri byggingu inni á Keflavíkurflugvelli. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, staðfesti að björgunarsveitarfólk væri á leið á vettvang og hafði ekki frekari upplýsingar á þessari stundu.

Björgunarsveitir að störfum í Hafnarfirði
Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út á höfuðborgarsvæðinu vegna veðursins en tilkynnt var um að þakklæðningar séu að losna á tveimur húsum í Vallahverfi í Hafnarfirði.