Björgunarsveitir

Nærstaddir komu konu sem féll í klettum við Stuðlagil til bjargar
Mikill viðbúnaður var hjá björgunarsveitum, lögreglu og sjúkraflutningamönnum á Austurlandi eftir að tilkynning barst um að kona hefði fallið í klettum við Stuðlagil. Nærstaddir gátu komu konunni til bjargar á meðan beðið var eftir aðstoð.

Féll í sjóinn við affall Reykjanesvirkjunar og lést
Karlmaður á fertugsaldri lést á sunnudaginn eftir að hann féll í sjóinn við affall frá Reykjanesvirkjun. Lögregla ítrekar að sjóböð við affallið eru stranglega bönnuð.

Gaf björgunarsveit allt sem honum áskotnaðist eftir deiluna um Legsteinasafnið
Sæmundur Ásgeirsson gaf björgunarsveitinni Brák allan þann pening sem honum áskotnaðist í sættum eftir Húsafellsmálið svokallaða, samtals fimm milljónir króna.

Vonar að eldgosinu í Geldingadölum fari að ljúka
Lögreglan á Suðurnesjum hefur áhyggjur af langvarandi álagi á viðbragðsaðila vegna eldgossins í Geldingadölum sem staðið hefur í um fimm mánuði. Ekki eru áhyggjurnar minni af ferðalöngum sem hætta sér út á nýstorknað yfirborð hraunsins.

Margir vilji „gera eitthvað töff og kúl sem raunverulega er heimskulegt“
Enn berast fréttir af því að ferðamenn við gosstöðvarnar á Reykjanesi ani út á nýstorknað hraun, þvert á tilmæli lögregluyfirvalda og björgunarsveita. Slíkt getur verið lífshættulegt, þar sem hraunið getur gefið eftir og undir niðri getur leynst töluvert mýkra, heitara og hættulegra hraun.

Leituðu við Ölfusá vegna bakpoka sem fannst við ána
Vegfarandi fann bakpoka við Ölfusá, rétt ofan við Ölfusárbrú og skilaði honum inn til Lögreglunnar á Suðurlandi. Bakpokinn var þá búinn að liggja á árbakkanum í yfir klukkustund að sögn tilkynnanda. Mikið af útivistarbúnaði var í bakpokanum en ekkert sem gaf vísbendingar um hver væri eigandi hans. Þetta segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi.

Banaslys varð í Stöðvarfirði í gær
Banaslys varð við Súlur í sunnanverðum Stöðvarfirði um klukkan 17 í gær þegar 18 ára frönsk kona sem var þar á göngu ásamt samferðafólki féll niður bratta hlíð.

Fjögur erfið útköll á sama hálftímanum
Björgunarsveitir á Suður-, Vestur- og Austurlandi voru kallaðar út í fjögur mismunandi en erfið útköll vegna slysa á fólki á sama hálftímanum í kvöld.

Slys í Stöðvarfirði
Um klukkan 17 í dag barst lögreglu tilkynning um slys í Súlum í sunnanverðum Stöðvarfirði.

Mikið að gera hjá björgunarsveitum
Síðastliðin sólarhringur hefur verið nokkuð erilsamur hjá björgunarsveitum á landinu.

Enn hættir fólk sér út á hraunið: „Það virðist bara ekki vera hlustað“
Enn streymir fjöldi fólks að gosstöðvunum á Reykjanesskaga á degi hverjum. Að sögn björgunarsveitarmanns er enn viðvarandi vandamál að fólk hætti sér út á hraunið og óhlýðnist tilmælum lögreglu og björgunarsveita.

Tveir meiddust á ökkla og þurftu aðstoð heim af gosstöðvunum
Tveir þurftu aðstoð björgunarsveita við gosstöðvarnar upp úr hádegi í dag eftir að hafa meiðst á ökkla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Erilsamur sólarhringur hjá björgunarsveitum
Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast síðastliðinn sólarhring. Björgunarsveitir á Austurlandi eru á leið að manni sem óskaði eftir aðstoð í grennd við Snæfell.

Fundu gosfara í svartaþoku eftir tveggja tíma leit
Björgunarsveitir á Suðurnesjum voru kallaðar út í morgun til leitar að tveimur einstaklingum við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Svartaþoka og rigning var á svæðinu en eftir um tveggja klukkustunda leit fannst fólkið.

Tvö útköll vegna vélarvana báta í kvöld
Björgunarskip frá Grindavík og björgunarbátur frá Þorlákshöfn eru nú á leið að vélarvana báti suðvestur af Þorlákshöfn.

Standa í erfiðum björgunaraðgerðum í Jökultungum
Björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli voru kallaðar út í dag, auk hálendisvaktar björgunarsveita, vegna konu sem talin er fótbrotin efst í Jökultungum, milli Álftavatns og Hrafntinnuskers á gönguleiðinni Laugavegi.

Manni bjargað úr sjálfheldu á hálendinu
Björgunarsveitarmenn frá björgunarsveitinni Stefáni á Mývatni ásamt landvörðum Vatnajökulsþjóðgarðs voru ræstir út laust fyrir klukkan fjögur í dag þegar maður í sjálfheldu við Öskju virkjaði neyðarhnapp sinn.

Fullorðin með tvö börn treystu sér hvorki áfram né til baka
Björgunarsveitarfólk á tveimur jeppum er komið að skálanum Klakki undir Kerlingarfjöllum þar sem fjórir einstaklingar sem óskað höfðu eftir aðstoð björgunarsveita biðu.


„Þetta hefði getað farið mjög illa“
Mikið lán var að vanur björgunarsveitarmaður var staddur í anddyri sundlaugarinnar á Flúðum síðdegis í gær, þegar piltur á grunnskólaaldri festist í kafi undir stiga sundlaugarinnar og missti að lokum meðvitund.

Manni bjargað úr sjálfheldu við Hengifoss
Björgunarsveitarfólk frá Egilsstöðum hefur bjargað manninum sem var í sjálfheldu við Hengifoss.

Reyna að bjarga manni úr sjálfheldu við Hengifoss
Maður lenti í sjálfheldu við Hengifoss í dag og eru björgunarsveitarmenn frá björgunarsveitinni á Egilsstöðum á leið að svæðinu.

Bogi afhenti Boga fyrsta Verndarvænginn
Icelandair Group og Slysavarnafélagið Landsbjörg skrifuðu í gær undir áframhaldandi samstarfssamning til næstu fimm ára en félagið hefur frá árinu 2014 verið einn af aðalstyrktaraðilum Landsbjargar. Samningurinn var undirritaður við einn vinsælasta ferðamannastað landsins um þessar mundir, gosstöðvarnar í Geldingadölum.

Bátur strandaði við Harrastaðavík
Húnabjörgin, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var kölluð út um 17:30 í dag vegna strandaðs báts við Harrastaðavík skammt frá Skagaströnd.

Björgunarsveitir taka ökumenn tali
Björgunarsveitarmenn hafa í dag fylkt liði og standa vakt við fimmtíu staði víðsvegar á landinu til að taka ökumenn og aðstoðarökumenn tali. Fram undan er ein stærsta ferðahelgi sumarsins og veðurspáin flestum hvatning til að leggja land undir fót.

Fjöldi barna í risastórum hoppukastala sem tókst á loft á Akureyri
Fjöldi barna var í risastórum hoppukastala sem tókst á loft við Skautahöllina við Naustaveg á Akureyri á þriðja tímanum í dag. Sex voru flutt til skoðunar á sjúkrahús á Akureyri og eitt með sjúkraflugi suður til Reykjavíkur.

Landsbjörg semur um smíði á þremur nýjum björgunarskipum
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur samið við finnsku skipasmíðastöðina KewaTec um smíði á þremur nýjum björgunarskipum. Stefnt er að því að skipin verði tekin í notkun fyrir mitt ár 2023.

Mannlaus bátur mögulega „sorglegur grikkur“
Leit var hætt á Álftavatni upp úr miðnætti í nótt en Vísir greindi frá því í gærkvöldi að björgunarsveitir í Árnessýslu hefðu verið kallaðar út vegna mannlauss báts sem fannst á vatninu.

Fundu mannlausan bát á Álftavatni
Mannlaus bátur fannst á Álftavatni, rétt ofan við Þrastarlund, í kvöld og er óttast að bátsverjar hafi fallið frá borði. Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út vegna bátsins.

„Við urðum bara kærulaus“
Eiginkona bandaríska ferðamannsins sem týndist á gossvæðinu á Reykjanesi á föstudag segir að þeim hafi báðum orðið á ógætileg mistök sem urðu honum næstum að bana. Hún lýsir miklu þakklæti í garð björgunarsveitafólks sem leitaði að manni sínum.