
Myndlist

„Rétta leiðin er sjaldnast sú skemmtilegasta“
„Leiðin í gegn er augljós en þú hefur samt val um að fara inn flókna ganga sem leiða ekki neitt. Mér finnst þeir gangar oft meira spennandi,“ segir listakonan Rakel Tómas um sýninguna Möguleikar sem hún opnar á morgun á Tíu sopum. Blaðamaður tók púlsinn á henni.

„Varð að treysta því að það sem ég elskaði að gera væri nóg“
„Ég hef ekki litið til baka í eina sekúndu,“ segir listræni förðunarfræðingurinn Sunna Björk Erlingsdóttir sem ákvað að leggja allt í listsköpunina og treysta því að það færi með hana í rétta átt.

Listaverkasafn Berlusconi skapar vandræði fyrir afkomendurna
Einn af helstu menningarvitum og listaverkagagnrýnendum Ítalíu hefur hæðst að listaverkasafni sem forsætisráðherrann fyrrverandi, Silvio Berlusconi, skildi eftir sig þegar hann lést í júní síðastliðinn. Safnið hefur skapað ákveðin vandræði fyrir afkomendur og erfingja Berlusconi.

Vill að flugminjasafnið fái sína reisn á safnasvæðinu á Hnjóti
Bútur úr fyrstu flugvél Íslendinga, elsta flugskýlið og gamall Varnarliðsþristur eru meðal gripa sem varðveittir eru á flugminjasafni lengst vestur á Vestfjörðum, á bænum Hnjóti í Örlygshöfn, dalkvos inn af Patreksfirði.

Teiknari Guardian til 40 ára látinn fjúka vegna meintrar gyðingaandúðar
Breski miðillinn Guardian hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við skopmyndateiknarann Steve Bell, eftir að hann skilaði inn mynd sem miðlinum þótti ýta undir fordóma gegn gyðingum.

Kanna hvort grípa þurfi inn í útgáfu Dimmalimm
Menningar-og viðskiptaráðuneytið er með það til skoðunar hvort ný útgáfa af barnabókinni Dimmalimm varði brot á sæmdarrétti og hvort tilefni sé til að grípa inn í.

Vildi klæðast ruslinu sínu
„Ég myndi segja að leikgleði einkenni listsköpun mína og hún er mjög litrík og umhverfisvæn,“ segir vöruhönnuðurinn og plötusnúðurinn Rebekka Ashley, sem finnur notagildi í nánast öllu í kringum sig og fer vistvænar leiðir í sinni listsköpun. Rebekka Ashley er viðmælandi í Kúnst.

„Einhverjir galdrar í pressunni“
„Hafið togar alltaf í mig,“ segir myndlistarkonan Jónína Björg sem stendur fyrir sýningunni Undiralda. Sýningin verður í Mjólkurbúðinni á Akureyri og opnar næstkomandi laugardag.

Opna þrjár sýningar á sama tíma
Mikið stendur til á Hönnunarsafni Íslands í dag þegar þrjár nýjar sýningar verða opnaðar. Þá verður safnið allt opnað eftir lokun á hluta þess eftir viðgerðir á þaki.

„Hef aldrei opnað mig svona áður“
„Ég hef fengið mjög góð viðbrögð og margir að segja að þetta hafi hjálpað öðrum sem eru í svipuðum aðstæðum, sem er alltaf gott að heyra,“ segir fjöllistakonan Gugusar um lagið Vonin sem hún sendi frá sér fyrr á árinu þar sem hún opnar sig um erfitt samband.

Messa sem eykur sýnileika íslenskrar myndlistar
TORG listamessa fer fram dagana 6. - 15. október á Korpúlfsstöðum. Er þetta í fimmta sinn Samband Íslenskra Myndlistarmanna stendur fyrir listamessunni.

Ný Dimmalimm gangi nærri sæmdarrétti og réttmætum viðskiptaháttum
Myndstef - Myndhöfundarsjóður Íslands, telur nýja útgáfu Óðinsauga af barnabókinni Sagan af Dimmalimm eftir Guðmund Thorsteinsson, Mugg, ganga nærri sæmdarrétti höfundarins og réttmætum viðskiptaháttum. Þá telja samtökin álitamál hvort um fölsun sé að ræða og þarf að mati samtakanna að stíga varlega til jarðar við breyttar framtíðarútgáfur verksins.

Feimin að eðlisfari en elskar að koma fram
„Fyrstu tónleikarnir mínir voru á Músíktilraunum sem ég tók þátt í þegar ég var fimmtán. Þá var ég einmitt með stutt dansatriði, þannig að ég byrjaði mjög snemma að gera eitthvað út fyrir kassann á sviði,“ segir fjöllistakonan Gugusar. Hún er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Aðstandendur Muggs andvígir nýrri og breyttri útgáfu af Dimmalimm
Útgáfufyrirtækið Óðinsauga tilkynnti fyrir skömmu að barnabókin Sagan af Dimmalimm eftir Guðmund Thorsteinsson, Mugg, verði gefin út í nýrri útgáfu í október. Aðstandendur Muggs segja ósiðlegt að útgáfan verði undir hans nafni því verkið sé ekki eftir hann þegar myndum hans hefur verið skipt út.

Hlær bara að hrútskýringum
Fjöllistakonan Guðlaug Sóley, jafnan þekkt sem Gugusar, hefur náð miklum árangri sem tónlistarkona á undanförnum árum og meðal annars unnið til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Hún byrjaði fimmtán ára gömul að semja tónlist og pródúsera sjálf en takmarkar sig ekki við einn listmiðil. Gugusar er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Heillaðist af eyðileggingunni
„Ég var með sýningu einmitt hér í Ásmundarsal fyrir þremur árum, keypti risastóran skjá og hann brotnaði en ég heillaðist af eyðileggingunni á skjánum,“ segir Hrafnkell Sigurðsson, myndlistarmaður ársins 2022 en hann stendur að samsýningunni Þing/Thing í Ásmundarsal.

Fer nýjar leiðir í myndlistinni samhliða glænýju föðurhlutverki
Myndlistarmaðurinn Árni Már opnar listasýninguna Húsvörðurinn á Mokka á morgun. Eins og lesa má úr titli sýningarinnar sækir Árni innblástur í húsvörðinn, sem hann segir „örugglega vera geggjað starf“.

Hefur náð miklum árangri á heimsvísu en tengingin við Ísland órjúfanleg
„Maður getur ekkert forðast egó-ið alveg, það situr á öxlinni og er bara what’s up,“ segir listakonan Hrafnhildur Arnardóttir, jafnan þekkt sem Shoplifter.

Boðar endurfæðingu og nýjan óhefðbundinn tón
Sigurður Sævar Magnússon er 26 ára en hefur starfað sem myndlistarmaður í sextán ár. Hann útskrifaðist í júní frá Konunglegu listaakademíunni í Haag og var hluti af úrvalssýningu útskriftarnema frá hollenskum listaháskólum. Sigurður boðar endalok á sinni vinsælustu seríu og nýjan óvenjulegan tón.

Flugu saman fram af hárugri bjargbrún
„Okkur fannst bara mjög spennandi að vinna saman og við vissum strax að við ætluðum að vera með óvanalega sýningu. Maður finnur ákveðið traust til að hleypa einhverjum svona inn í sinn heim,“ segja Hrafnhildur Arnardóttir, jafnan þekkt sem Shoplifter, og Hrafnkell Sigurðsson, myndlistarmaður ársins 2022.

Stolnu verki eftir van Gogh skilað í Ikea-poka með blóðugum kodda
Málverkið „Vorgarður“ eftir Vincent van Gogh er komið aftur í öruggar hendur eftir að hafa verið stolið af Singer-safninu í bænum Laren í Hollandi árið 2020. Það var málverkaspæjari sem endurheimti verkið, eftir að það hafði gengið manna á milli.

„Gat ekki ímyndað mér að ég gæti orðið leikari“
Leikarinn og myndlistarmaðurinn Kolbeinn Arnbjörnsson hefur mundað pensilinn frá unga aldri. Á sama tíma dreymdi hann um að verða leikari.

„Mikilvægt að myndlist geti líka verið ógeðsleg“
„Mér finnst gaman að kveikja á alls konar tilfinningum hjá áhorfendum. Mér finnst líka gaman að taka eitthvað sem mér finnst ógeðslegt eins og köngulær og ég reyni alltaf að gera þær girnilegri en þær eru í raun,“ segir myndlistarkonan Helena Margrét Jónsdóttir opnar einkasýningu í D sal Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu í kvöld. Blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá.

„Af því verður maður ríkastur“
Þýskur listmálari og íslenskur æðarbóndi sem skilja ekki tungumál hvors annars láta það ekki setja stein í götu vinskaparins. Síðan þeir kynntust hefur æðarbóndinn orðið að aðalgagnrýnanda listmálarans sem lætur nú ekkert frá sér nema bóndinn sé búinn að sjá það.

Allt sem þú þarft að vita um dagskrána á Menningarnótt
Menningarnótt Reykjavíkurborgar verður haldin hátíðleg næstkomandi laugardag, þann 19. ágúst. Miðborgin breytist þá í iðandi vettvang menningar og lista og dagskráin er stútfull af viðburðum þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Ariana Katrín nýr verkefnastjóri miðlunar
Ariana Katrín Katrínardóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra miðlunar Listasafns Reykjavíkur. Katrín mun annast samstarf við skóla, móttöku skólahópa og aðra miðlun til barna, ungmenna og fjölskyldna.

Almar í kassanum kominn í tjald: „Ég er staðsettur á miðri folf braut“
Gjörningalistamaðurinn Almar Atlason býr nú í tjaldi á Höfn í Hornafirði og málar landslagsmyndir af mikilli elju. Er þetta gert til þess að minnast þess að Ásgrímur Jónsson málaði þarna fyrir 111 árum síðan.

Íslenskt Oppenheimer Castro-fíaskó: Skondin tengsl Íslands við Oppenheimer
„Nú er ég Dauðinn, eyðingarafl heimsins.“ Þetta er það sem kom upp í huga Dr. Robert Oppenheimer föður kjarnorkusprengjunnar þegar hann áttaði sig á því að honum hafði tekist að útbúa hættulegasta vopn mannkynssögunnar.

„Hérna er allt þægilegt og kósí og mjúk teppi“
Hjón búsett í Úkraínu undirbúa nú listasýningu í Reykjavík, sem fjallar um innri ró þrátt fyrir yfirþyrmandi erfiðleika vegna innrásar Rússa. Verkin sem verða til sýnis voru unnin í Kænugarði, oft í niðamyrkri vegna rafmagnsleysis eftir árásir Rússa á borgina.

Geirfuglinn kominn á sinn stað
Listaverkið Geirfugl eftir Ólöfu Nordal er aftur komið á sinn stall eftir að hafa fallið niður við högg í mikilli ísingu í vetur.