
Asía

168 dánir í flóðbylgju á Indónesíu eftir eldgos í Krakatá
Yfirvöld hafa biðlað til íbúa að vera ekki nærri strandlengjunni af ótta við að önnur flóðbylgja skelli á.

Japanir sagðir ætla að segja skilið við Alþjóðahvalveiðiráðið
Japanskir fjölmiðlar segja að greint verði frá ákvörðuninni í lok mánaðar.

Hlébarði varð þriggja ára barni að bana
Talið er að hlébarði á Indlandi hafi orðið þremur mönnum að bana á síðustu tveimur mánuðum.

Óttast að niðurstöðum fyrstu kosninganna frá valdaráni verði hagrætt
Andstæðingar taílensku herforingjastjórnarinnar óttast að komandi kosningum, þeim fyrstu frá valdaráninu 2014, verði hagrætt.

Færist í fyrra horf á Srí Lanka
Srílanska rúpían styrktist töluvert og grænar tölur voru á markaði á Srí Lanka í gær.

Norður-Kóreumenn segja afvopnun í hættu vegna refsiaðgerða
Bandaríkin lögðu frekari refsiaðgerðir á Norður-Kóreu í síðustu viku. Norður-Kóreumenn segja að það sé stór reikningsskekkja af hálfu Bandaríkjastjórnar.

Ákæra Goldman Sachs vegna spillingarmáls í Malasíu
Starfsmenn bankans eru sagðir hafa tekið þátt í mútugreiðslum og peningaþvætti.

Wickremesinghe forsætisráðherra á ný
Ranil Wickremesinghe er orðinn forsætisráðherra Sri Lanka á ný, en hann var settur af í október síðastliðnum.

Treysta gamla ráðherranum
Srílanska þingið greiddi í gær atkvæði með traustsyfirlýsingu á Ranil Wickremesinghe, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, og sóttist eftir því að hann yrði settur aftur í embætti.

Ríkur stuðningur við fangelsaða blaðamenn Reuters
Stuðningsmenn mjanmörsku Reuters-blaðamannanna Wa Lone og Kyaw Soe Oo söfnuðust saman í miðborg Yangon í gær.

Leigubílstjóri kveikti í sér til að mótmæla deilibílaþjónustu
57 ára gamall maður kveikti í sér fyrir utan þinghús Suður-Kóreu.

Pashinyan vann yfirburðasigur í armensku þingkosningunum
Flokkur Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, og stuðningsflokkar hlutu samtals rúmlega 70 prósent atkvæða í kosningunum.

Stofnandi Twitter gagnrýndur fyrir tíst um Mjanmar
Stofnandi og framkvæmdastjóri samfélagsmiðilsins Twitter, Jack Dorsey, hefur legið undir gagnrýni eftir að hann dásamaði Asíuríkið Mjanmar í twitter-þræði í gær

Stórfurðuleg staða á Srí Lanka
Þrír menn hafa sett á svið ótrúlega atburðarás í eyríkinu við Indlandsstrendur. Spilling og fyrirhugað tilræði við forsetann ollu stjórnarskrárkrísu sem ekki hefur tekist að greiða úr.

Mótmælendur fangelsaðir í Búrma
Fólkið var sakfellt fyrir að hafa smánað her Búrma.

Drakk drykkjarjógúrt meðleigjandans og kostaði skattgreiðendur tugi þúsunda
Kona í Taívan var ákærð fyrir þjófnað eftir að hún drakk drykkjarjógúrt meðleigjanda síns eftir að sá síðarnefndi tilkynnti þjófnaðinn til lögreglu.

Bein útsending: Reyna aftur að flytja þrjá geimfara til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar
Soyuz-geimflaug verður skotið á loft frá Kasakstan klukkan 11:30 þegar önnur tilraun verður gerð til að koma þremur geimförum og birgðum til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar.

Klár í slaginn þrátt fyrir mistök við síðasta geimskot
Geimfarar sem skjóta á til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á morgun eru klárir í slaginn og hafa litlar áhyggjur af öryggi sínu.

Flugmennirnir börðust við flugvélina frá upphafi til enda
Gögn úr flugritum Lion Air flugvélarinnar sem hrapaði til sjávar í síðasta mánuði sýna að flugmenn vélarinnar börðust við flugvélina um stjórn á flugvélinni alveg frá flugtaki þangað til hún hrapaði ellefu mínútum síðar.

Var vísað frá borði eftir sjálfsmyndatöku
Farþega um borð í flugvél á Indlandi var á dögunum gert að yfirgefa vélina eftir að hafa tekið mynd af sjálfum sér um borð, sent félögum sínum myndina á Snapchat og skrifað "hryðjuverkamaður“ í myndatexta.

Frumsýnir hvolpana sem Kim gaf
Moon Jae-in forseti Suður Kóreu er allt í einu orðinn eigandi hundastóðs, en tík í hans eigu sem var friðargjöf Kim Jong-un gaut 6 hvolpum nýverið. Þeir voru frumsýndir í gær.

Tsai Ing-wen segir af sér formennsku eftir afhroð í kosningum
Forseti Taívan, Tsai Ing-wen, tilkynnti í gær um áætlun sína um að stíga til hliðar sem formaður DPP flokksins í landinu.

Vonar að betur verði passað upp á eyjaskeggjana eftir alla umfjöllunina
Aðjúnkt við félags-, mann- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands segir að ekki sé vitað hvaða áhrif það hafi á eyjaskeggjana í Indlandshafi að hafa lifað í einangrun þetta lengi.

Börn á leið heim úr skóla meðal fórnarlamba í rútuslysi í Indlandi
25 létust þegar rúta hafnaði í skurði í suðurhluta Indlands í dag. Talið er að hraðakstri sé um að kenna.

Fordæma fangelsun blaðamanna
Samtök bæði lögfræðinga og blaðamanna í Mjanmar afhentu Win Myint, forseta ríkisins, bréf í gær þar sem lýst var áhyggjum af sakfellingu og fangelsun tveggja blaðamanna Reuters.

Lögreglumenn drepnir í árás á kínverska ræðismannsskrifstofu
Þrír menn réðust á lögreglu við kínverska ræðismannsskrifstofu í pakistönsku hafnarborginni Karachi í morgun.

Trúboðinn taldi sig vera handbendi guðs: „Ég velti fyrir mér hvort þetta sé síðasta sólsetrið sem ég sé“
Áður en Chau fór á land á eyjunni í síðasta sinn lét hann sjómennina sem komu honum þangað og hafa nú verið handteknir fá þrettán blaðsíður þar sem hann hafði skrifað um hvað á daga hans hafði drifið og hvað hann var að hugsa.

Lögreglan í basli við að ná líki trúboðans
Eyjarskeggjarnir eru sagðir hafa grafið Chau á strönd eyjarinnar North Sentinel.

Ghosn rekinn úr stjórn Nissan
Ghosn var handtekinn í Tókýó á mánudag vegna gruns um fjármálamisferli.

Rússar ósáttir við afskipti af kosningum í Interpol
Öllum að óvörum var Suður-Kóreumaðurinn Kim Jong-yang kjörinn forseti Interpol á árlegu þingi stofnunarinnar sem fór fram í borginni Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í gær.