Stjórnsýsla

Formaðurinn segir málið ekki beinast persónulega gegn Jóni Steinari
Berglind Svavarsdóttir segir áfrýjunarbeiðnina snúast um stöðu félagsins.

Fleiri telja samráð stjórnvalda slæmt
Samkvæmt nýrri könnun telur meirihluti fyrirtækja samráð stjórnvalda áður en reglum er breytt vera slæmt. Flest fyrirtæki segja skýrari leiðbeiningar skorta frá Fjármálaeftirlitinu og Samkeppniseftirlitinu.

Lögmannafélag Íslands unir ekki dómi Landsréttar
Lögmannafélagið er ekki tilbúið að sleppa Jóni Steinari þó fyrir liggi dómur Landsréttar um að áminning félagsins á hendur honum standist ekki.

Ólína bíður viðbragða Þingvallanefndar við broti gegn henni
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir bíður viðbragða þingvallanefndar eftir að úrskurðarnefnd jafnréttismála komst að þeirri niðurstöðu að nefndin hefði brotið á henni jafnréttislög við ráðningu þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum.

Ræðir við lögmann sinn um næstu skref
Úrskurður kærunefndar jafnréttismála dæmdi Ólínu í hag eftir að hún hlaut ekki starf sem þjóðgarðsvörður.

Hundaræktendur telja stjórnsýsluna í feluleik
Atvinnuvegaráðuneytið hefur enn ekki gert nýtt áhættumat vegna innflutnings á hundum og köttum opinbert þrátt fyrir að það hafi borist í lok síðasta mánaðar.

Ríkið kaupir hlut í Neyðarlínunni og eignast Farice
Íslenska ríkið og Landsvirkjun hafa skrifað undir samkomulag um að Landsvirkjun framselji 33,2 prósent eignarhlut í Farice ehf. og 7,9 prósent eignarhlut í Neyðarlínunni ohf. til ríkissjóðs

Stjórnarráðið ætlar að draga úr losun um 40% næsta áratuginn
Flugferðum verður fækkað og starfsmönnum gert auðveldara að nýta vistvæna ferðamáta í loftslagsstefnu sem ríkisstjórnin samþykkti fyrir stjórnarráðið í dag.

Ráðuneytin fengu loks sitt árshátíðardjamm
Árshátíð Stjórnarráðsins fór fram á laugardagskvöldið, hálfu ári á eftir áætlun. Ráðherrar blésu hátíðina af í haust þar sem ekki þótti viðeigandi að hún færi fram á tíu ára afmæli íslenska efnahagshrunsins.

Tekist á um hvort Ísland afsali ákvörðunarrétt til Evrópusambandsins með íslenska raforku
Tekist er á hvort Ísland afsali sér heimildir, vald eða ákvörðunarrétt til Evrópusambandsins með íslenska raforku og hvort við séum að framselja þannig fullveldi Íslands til nýrrar orkustofnunnar Evrópu verði Þriðji orku pakkinn samþykktur.

Svört skýrsla og sakar borgarstjórn um spillingu
Borgarfulltrúi Miðflokksins telur skýrslu innri endurskoðunar um verklegar framkvæmdir og innkaupamál borgarinnar svarta. Borgin fékk rautt ljós vegna gerðar kostnaðaráætlana við verkframkvæmdir.

Byggðarráð undrast seinagang ráðherra
Sveitarstjórn Húnaþings vestra gagnrýnir seinagang Lilju Alfreðsdóttur sem hefur ekki staðfest Borðeyri sem verndarsvæði í byggð en tíu mánuðir eru síðan sveitarstjórn óskaði eftir því við stjórnvöld.

Efla eftirlit með útlendingum
Heimilt verður að leita að og bera kennsl á útlendinga sem hingað koma á grundvelli fingrafaraleitar í VIS-upplýsingakerfinu samkvæmt nýju reglugerðarákvæði sem dómsmálaráðherra hefur birt til kynningar á samráðsvef stjórnvalda.

Runólfur skipaður skrifstofustjóri
Runólfur Birgir Leifsson hefur verið skipaður skrifstofustjóri yfir skrifstofu hagmála og fjárlaga í heilbrigðisráðuneytinu til næstu fimm ára.

Vilborg ráðuneytisstjóri þar til Ásta tekur við
Heilbrigðisráðherra hefur sett Vilborgu Þ. Hauksdóttur til að gegna stöðu ráðuneytisstjóra tímabundið frá 1. apríl til loka maí.

Heiða Björg skipuð forstjóri Barnaverndarstofu
Heiða Björg Pálmadóttir hefur verið skipuð í embætti forstjóra Barnaverndarstofu.

Símon vísar því alfarið á bug að hann hygli Sveini Andra
Dómstjóri segir ásakanir um spillingu og lygar alvarlegar.

Sýslumenn berjast í bökkum um allt land
Rekstur sýslumannsembættanna hefur ekki verið í samræmi við fjárheimildir þau ár sem liðin eru frá því þeim var fækkað úr 24 niður í 9 árið 2015.

Símon segist ekki vilja útiloka konur frá slitabúum
WOW air með stærri þrotabúum sem komið hafa til skipta.

Þjóðkirkjan segir ríkið sýna siðlausa háttsemi
Hin íslenska þjóðkirkja telur söfnuði sína hafa greitt ríkinu yfir tíu milljarða króna síðustu ár. Auka eigi greiðslurnar um 223 milljónir króna á þessu ári. Samningaviðræður milli ríkis og kirkju hafa staðið yfir síðustu mánuði.

Reykjavíkurborg gefur strandaglópum WOW gestakort
Samstarfsaðilar um gestakort Reykjavíkur hafa ákveðið að bjóða erlendum strandaglópum WOW air ókeypis gestakort fram yfir helgi.

Segir mögulegt fyrir hælisleitendur að vinna á meðan umsóknarferli stendur
Sviðsstjóri hjá Útlendingastofnun segir vel mögulegt fyrir hælisleitendur að vinna á meðan umsókn um alþjóðlega vernd er í ferli.

Samkeppniseftirlitið brýnir fyrir stjórnvöldum að huga að samkeppnissjónarmiðum
Samkeppniseftirlitið segir mikilvægt að tryggja að eignir hverfi ekki af markaði.

Ásta nýr ráðuneytisstjóri
Heilbrigðisráðherra skipað Ástu Valdimarsdóttur, núverandi framkvæmdastjóra hjá Alþjóðahugverkastofnuninni í Genf, ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu til fimm ára.

Íbúðalánasjóði verður skipt upp
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum síðastliðinn þriðjudag tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, um að Íbúðalánasjóði verði skipt upp.

Borgin borgar áhrifavöldum hálfa milljón fyrir að tala um Hverfið mitt
Áhrifavaldar á mála hjá borginni við að koma "hverfinu mínu“ á kortið.

Aukin upplýsingaskylda lögð á herðar Alþingis og dómstóla
Ríkisstjórnin samþykkti í gær frumvarp um breytingar á upplýsingalögum.

Leita upplýsinga um leka til RÚV í tölvupóstum Más
Seðlabankinn telur sig hafa ætíð farið að lögum í öllum þeim aðgerðum sem hann greip til við framfylgd gjaldeyrishafta, miðað við þær upplýsingar sem bankinn hafði á hverjum tíma.

Gríðarlegur samfélagslegur kostnaður af framgöngu Seðlabanka
Seðlabankinn var engann veginn undir það búinn að framfylgja fjármagnshöfum að mati formanns Bankaráðs.

Bein útsending: Seðlabankastjóri kemur fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Opinn fundur hefst klukkan 9 í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis þar sem á dagskrá verða lög um gjaldeyrismál og stjórnsýsla Seðlabanka Íslands við framkvæmd gjaldeyriseftirlits.