Hryðjuverk í London
Óvissa um uppruna tilræðismanna
Þrír menn voru handteknir á Heathrow flugvelli í gær á grundvelli heimilda laga um hryðjuverkastarfsemi. Yfirvöld neituðu því þó að handtakan stæði í tengslum við hryðjuverkaárásirnar á fimmtudag. "Þessar handtökur eru ekki á grundvelli upplýsinga um sprengingarnar í Lundúnum," sagði Brian Paddick hjá lögreglunni.

Minningin er aldrei langt undan
Eftir því sem dagarnir líða frá hryðjuverkunum á fimmtudaginn er lífið í höfuðborg Bretlands smátt og smátt að komast í sitt fyrra horf. Margir borgarbúar minntust þeirra sem létust með því að leggja blóm við King's Cross stöðina.</font /></b />

Múslimar í Danmörku
Trúarleiðtogi múslima í Kaupmannahöfn sagði í ræðu á föstudaginn að hann fordæmdi hryðjuverkin í London. Hann kenndi jafnframt Bandaríkjamönnum um slíkar árásir, þar sem þeir træðu hugmyndafræði sinni uppá aðra menningarheima.

Hættið í nafni almættisins
"Við skulum biðja fyrir þeim sem létust, þeim sem særðust og þeim sem standa þeim nærri. En við skulum líka biðja fyrir árásarmönnunum: Látum Guð snerta hjörtu þeirra," sagði Benedikt XVI páfi þegar hann ávarpaði fólk af svölum sínum við Péturstorg.

Ummæli múslímaprests olía á eld
Í viðtali við danska blaðið Politiken í gærkvöldi segir Troels Lund Poulsen, talsmaður utanríkismála annars stjórnarflokkanna í Danmörku, að með ummælum sínum hafi trúarleiðtoginn verið að réttlæta hryðjuverk. Að mati Poulsens er það ekki lögmætt viðhorf, eins og hann orðar það, að kenna Bandaríkjamönnum um, þannig bæti leiðtoginn olíu á eld öfgafullra múslima.
Telja öll líkin fundin
Lundúnalögreglan telur að tekist hafi að finna öll líkin sem grafin voru undir braki á stöðunum fjórum í London þar sem hryðjuverkin voru gerð á fimmtudag. Talið er að endanleg tala látinna verði 49 eða litlu fleiri.

London í dag
Hryðjuverk og viðvaranir komu ekki í veg fyrir að um tvöhundruð þúsund Lundúnabúar þyrptust út á götur borgarinnar til að minnast endaloka seinni heimsstyrjaldarinnar. Á sama tíma bárust fregnir af handtöku meintra hryðjuverkamanna.

Viðbúnaðarstig í London hækkað
Leitin að þeim sem gerðu árásirnar í Lundúnum heldur áfram, en fyrrverandi lögreglustjóri Lundúna telur hryðjuverkamennina innlenda. Enn er reynt að bjarga líkum úr lestargöngum við King's Cross, við erfiðar aðstæður.

Fólk er bæði skelkað og hissa
Sendiráðspresturinn í Lundúnum segir að mestu samstöðuna sýni fólk með því að halda sínu striki.

Hvert dauðsfall er harmleikur
Eftir því sem meira kemur í ljós um illvirkin sem unnin voru í Lundúnaborg á fimmtudagskvöldið á maður erfiðara með að skilja þau. Hvers vegna kýs nokkur maður að grípa til þess ráðs að skilja eftir tifandi tímasprengju í rútu eða lest fullri af saklausu fólki? Við þeirri spurningu er að líkindum ekki til neitt rökrétt svar.
Tvenn samtök ábyrgð á hendur sér
Abu Hafs al Masri hersveitin, sem segist tengjast al-Kaída, hefur lýst ábyrgð á hendur sér á hryðjuverkunum í Lundúnum. Sannleiksgildið hefur þó ekki fengist staðfest og leggja sérfræðingar í hryðjuverkamálum lítinn trúnað á tilkynninguna þar sem hópurinn hefur áður eignað sér verk sem hann hefur ekki staðið fyrir.

Miðborg Birmingham rýmd
Lögreglan í Birmingham hefur fyrirskipað fólki að yfirgefa skemmtanahverfið í miðborg borgarinnar. Um 30 þúsund manns þurftu því að hverfa á brott. Þetta er gert eftir að lögreglu bárust vísbendingar um að hætta væri á hryðjuverkaárásum. Lögregla umkringdi miðborgina og lokaði öllum leiðum inn í hana.
Leit hafin að grunuðum
Breska lögreglan Scotland Yard og leyniþjónustan MI 5 hafa beðið kollega sína um alla Evrópu að hafa uppi á Mohamed Guerbouzi, fjörutíu og fjögurra ára gömlum íslömskum fræðimanni með breskan og marokkóskan ríkisborgararétt. Talið er að hann geti verið leiðtogi hópsins sem skipulagði hryðjuverkin á fimmtudaginn.

Kennsl ekki borin á líkin
Sprengjurnar sem sprungu í þremur neðanjarðarlestum á fimmtudag voru svo öflugar að ekki hafa enn verið borin kennsl á lík þeirra sem létust í árásunum. Þessu greindu breskir lögreglumenn. Staðfest hefur verið að 49 hafi látist og segir lögreglan að tala látinna eigi eftir að hækka eitthvað en draga í efa að hún eigi eftir að hækka mjög mikið.

Björgunaraðgerðir í London
Björgunarmenn reyna nú sitt ítrasta til að bjarga líkum þeirra sem fórust í hryðjuverkaárásunum á London, en fjöldi þeirra liggur í löskuðum lestargöngum langt undir yfirborði jarðar. Staðfest hefur verið að fjörutíu og níu voru myrtir í árásinni en vitað er að rauntalan er hærri þar sem líkin í göngunum eru ekki talin með.

Ráðast verður að rótum hryðjuverka
Ráðast verður að félagslegum orsökum hryðjuverka ef takast á að vinna bug á þeim sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Orsakirnar sagði hann vera fátækt, skort á lýðræði og áframhaldandi átök í Mið-Austurlöndum.

Árásirnar afar vel skipulagðar
Óttast er að allt að 75 hafi týnt lífi í hryðjuverkunum London. Enn hefur ekki tekist að ná öllum líkum úr lestarvögnunum og á meðan leita grátandi ættingjar að þeim sem saknað er. Flest bendir til að árásirnar hafi verið vel skipulagðar en þær voru gerðar nánast samtímis á þremur stöðum. Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður Stöðvar 2 var í London og hún segir rannsóknina á hryðjuverkunum eina þá viðamestu sem lögreglan í Lundúnum hefur staðið frammi fyrir.
142 handteknir
Ítalskir lögreglumenn handtóku 142 einstaklinga í viðamiklum aðgerðum í og við Mílanó á föstudag og laugardag. Handtökurnar eru hluti af stórauknum viðbúnaði á Ítalíu í kjölfar hryðjuverkanna í Lundúnum og hótana um hryðjuverk á Ítalíu.
Björgunarfólkið hinar nýju hetjur
Bretar tala þessa dagana um nýjar hetjur, fólkið sem fór niður í lestargöngin til að hjálpa þeim sem særðust í sprengjuárásunum á fimmtudag og gátu ekki bjargað sér út sjálfir.
Franskri þotu snúið frá BNA
Yfirvöld í Bandaríkjunum létu í gær snúa til baka farþegaþotu franska flugfélagsins Air France á leið Chicago frá París vegna þess að einn farþeganna um borð þótti grunsamlegur. Vélin hafði þá verið í loftinu í um tvo klukkutíma, að því er fréttastofa BBC segir.

Minnst fimmtíu létust í árásunum
Tala látinna eftir sprengjuárásirnar í Lundúnum á fimmtudagsmorgun var í gærkvöld komin í 49, að sögn lögreglu ytra og ljóst að hún ætti enn eftir að hækka. 22 voru enn sagðir í lífshættu og ekki er vitað um afdrif fjölda fólks. Ekki liggja þó fyrir upplýsingar um nákvæmlega hversu margra er saknað. Hinir látnu voru af átta þjóðernum hið minnsta.

Allir Íslendingarnir fundnir
Starfsmenn utanríkisráðuneytisins og sendiráðsins í Lundúnum hafa gengið úr skugga um að enginn Íslendingur var á meðal fórnarlamba tilræðanna í fyrradag.

Íslendingar í London
Engar fréttir höfðu borist af Íslendingum á sjúkrahúsum í Lundúnum í gærkvöldi og engin íslendingur er meðal hinna látnu. Fjöldi manns hafði samband við utanríkisráðuneytið og sendiráð Íslands í gær, bæði til að spyrjast fyrir um vini og ættingja, og til að láta vita af sér. Nú munu aðeins vera þrír Íslendingar í Lundúnum, sem ekki er vitað nákvæmlega um, en ekki er þó óttast um þá.

Dvelja áfram við Tavistock torg
Búið er að finna alla þá Íslendinga sem voru í London í gær. Bæði þá tvö þúsund sem hér búa og einnig þá Íslendinga sem voru á ferðalagi. Íslensk fjölskylda sem gisti á hóteli við Tavistock torg horfði á sprenginguna í strætisvagningum.
ESB ræðir öryggismál eftir árásir
Charles Clarke, innanríkisráðherra Breta, stýrir viðbragðsfundi dóms- og innanríkisráðherra Evrópusambandsríkjanna á miðvikudaginn í næstu viku. Meta á öryggisviðbrögð Evrópusambandsins eftir árásirnar í Lundúnum á fimmtudag, að því er fram kemur í tilkynningu breskra stjórnvalda í gær, en Bretar fara með forsæti í sambandinu..

Þögnin grúfir yfir torginu
Sorgin liggur í loftinu á götunum sem liggja að Tavistock Square og hún verður greinilegri eftir því sem nær dregur. Í það minnsta þrettán manns biðu bana þegar strætisvagn sem þeir voru í sprakk í loft upp við torgið og fjölmargir slösuðust.

Talibanar fagna hvorki né syrgja
Talsmaður uppreisnarmanna í Afghanistan sagði í morgun bresku þjóðina vera að gjalda fyrir voðaverk stjórnvalda sinna. Hann segir Talibana hvorki fagna árásinni né syrgja hana, en hins vegar hefðu þeir fagnað ef ráðist hefði verið á breska hermenn eða stjórnmálamenn. Hann segir Talibana ekkert hafa komið nálægt árásunum í gær.
Mikið bloggað eftir árásirnar
Fjöldamargir virðast hafa leitað á náðir bloggsins eftir árásirnar í Lundúnum. Þeir sem voru í nánd við árásirnar hafa skrifað um reynslu sína og birt myndir teknar með GSM-símum á vettvangi.
Ótti á Ítalíu
Mikill viðbúnaður hefur verið hjá ítölsku lögreglunni í kjölfar hryðjuverkaárásanna í London í fyrradag en leynileg samtök Al-Kaída í Evrópu, sem lýstu ábyrgð árásanna á hendur sér, tiltóku Ítalíu og Danmörku sérstaklega sem skotmörk fyrir stuðninginn við innrásir í Írak og Afganistan.

Öryggisgæsla í Evrópu aukin
Ekki hefur verið staðfest að fleiri en þrjátíu og sjö hafi látist, en hvaðanæva að berast fregnir af því að fleiri en fimmtíu hafi týnt lífi í árásunum í gær. Öruggt er talið að þegar öll kurl verða komin til grafar verði talan hærri, enda slösuðust meira en sjö hundruð manns, þar af um fimmtíu lífshættulega.