Samfélagsmiðlar

Býður ekki upp á vellíðunarnasl fyrir hræddar sálir
Guðni Elísson prófessor í bókmenntafræði hefur sent frá sér skáldsögu og því er haldið fram hér fullum fetum að um stórtíðindi sé að ræða. Bókin er doðrantur, 800 síður og marglaga. Um leið og þetta er algjör veisla fyrir bókmenntafræðinga; þaulhugsuð bygging og ótal skírskotanir til bókmenntasögunnar er hún eins og Nafn Rósarinnar eftir Umberto Eco spennusaga á yfirborðinu.

Varð ekkert var við bílinn sem keyrði út af í símamyndbandi
„Þetta var allt Glúmi að kenna. Bílstjórinn hefur séð hann og ekki trúað eigin augum,“ segir Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Frjálslynda lýðræðisflokksin, um myndband sem hann tók á ferðalagi um landið vegna Alþingiskosninganna.

Þórhildur Gyða hefur kært Sigurð G. vegna umdeildrar Facebook-færslu
Þórhildur Gyða Arnarsdóttir hefur kært hæstaréttarlögmanninn Sigurð G. Guðjónsson til lögreglu, Persónuverndar og Lögmannafélags Íslands fyrir að hafa birt myndir úr lögregluskýrslu hennar. Þetta staðfestir lögmaður Þórhildar í samtali við Vísi.

„Langar að hlæja en ég er svo bótoxuð að ég get það ekki“
Eftir að Sunneva Einars og Jóhanna Helga fóru af stað með þættina #Samstarf á Stöð 2+ var ýmislegt skrifað um þær á netinu. VInkonurnar settust niður og lásu upp brot af því besta.

Vill halda fund með samfélagsmiðlafyrirtækjum til að berjast gegn kynþáttaníð
Romelu Lukaku, framherji Chelsea og belgíska landsliðsins, segir að leikmenn geti gert mun meira í baráttunni gegn kynþáttafordómum en bara að taka hné fyrir leiki. Hann vill að samfélagsmiðlafyrirtæki og leikmenn hittist og ræði hvað sé hægt að gera.

Rándýrt að auglýsa í Reykjavík
Íslenskir stjórnmálaflokkar hafa keypt auglýsingar á Facebook fyrir rúmlega 24 milljónir króna undanfarið ár. Auglýsingar á samfélagsmiðlum eru þó aðeins brotabrot af útgjöldum flokkanna til markaðssetningar.

Váhrifaskvaldrar, samfélagsbítar og égarar
Til lítils er að hneykslast á því sem spriklar í flæðarmáli samtímans og oftast átakaminnst að leyfa því að þorna á fjöru og skolast burt á næsta flóði. Sumt er þó lífseigara en annað og nær að skríða á þurrt í skjóli nætur, bora sig inn í þjóðarlíkamann og valda kláða.

Kristrún hafi ákveðið að búa til eigið leikrit
Deildar meiningar eru um viðbrögð Kristrúnar Frostadóttur við umfjöllun Viðskiptablaðsins og Morgunblaðsins um hagnað hennar af kaupréttarauka í samningi hennar hjá Kviku banka. Leikrit segir einn, vitlaust spilað segir annar en gullið tækifæri til að tala til síns hóps segir sá þriðji. Málið var til umræðu í Pallborðinu á Vísi í dag.

Fékk kökk í hálsinn yfir „bestu auglýsingunni“: Trúverðugt að Katrín sé komin í þvottahúsið
Álitsgjafar Pallborðsins voru á einu máli um ágæti sjónvarpsauglýsingar Vinstri grænna, þar sem daglegt líf frambjóðenda flokksins er í forgrunni við tilfinningaþrungið undirspil íslenskrar tónlistar.

Hölluðust að því að Flokkur fólksins væri sigurvegari kosningabaráttunnar
Í Pallborðinu í dag var punktstaðan tekin í kosningabaráttunni, spáð í spilin fyrir næstu daga og um leið litið um öxl og farið yfir frammistöðu hvers flokks fyrir sig hingað til.

Simmi Vill valdi fimm einstaklinga sem hann treystir til að stjórna landinu
Sigmar Vilhjálmsson er gestur í nýjasta þættinum af Blökastinu og fengu strákarnir hann til þess að ræða pólitík þar sem hann hefur farið mikinn í þeim efnum upp á síðkastið.

Stefnumótaforrit hafi ekki góð áhrif á líðan fólks
Roði í kinnum, stjörnur í augum, blik í auga, krúttlegt feimnisbros og koss.Hvað sérðu fyrir þér?

Simmi Vill skammar Matartips-ara fyrir óvægna gagnrýni
Veitingamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson segir að umræða á Matartips geti farið út í óuppbyggilegar upphrópanir með ófyrirséðum afleiðingum, þeim að veitingastaðir geti hreinlega farið á hausinn.

Samfélagsmiðlastjarnan Logan Paul er á landinu
Í gærkvöldi sást til samfélagsmiðlastjörnunnar og hnefaleikakappans Logan Paul spóka sig um í miðbæ Reykjavíkur, meðal annars á skemmtistaðnum Bankastræti club.

Lætur æskudrauminn rætast og leggur land undir fót
Æskudraumur athafnamannsins Nökkva Fjalars Orrasonar rætist í dag þegar hann flytur til London, þar sem hann hyggst víkka út starfsemi fyrirtækis síns Swipe Media. Óhætt er að segja að Nökkvi sé kominn langt síðan hann gerði afþreyingarefni fyrir menntskælinga með hópnum 12:00 fyrir rúmum níu árum síðan. Nökkvi segir lykilinn að velgengninni felast í litlu skrefunum.

„Ég held að sjómennskan sé ekki fyrir mig“
Ég held að ég þurfi að fara út, sagði Jóhanna í miðri hvalaskoðunarferð í nýjasta þættinum af Samstarf. Þær Sunneva og Jóhanna fóru á sjóinn en það fór mjög misvel í þær.

Framtíðin er búin
Ein hættulegasta og heppilegasta tilhneiging mannsins er að hlaupa hraðar þegar maður villist af leið. Á tímum óvissu og upplausnar höfum við tilhneigingu til að elta uppi glundroðann áður en hann nær að koma okkur á óvart.

Bjór og mjöður, desertvín og sterkt á Bessastöðum
Skrifstofa forsetaembættsins hefur gefið út upplýsingar um núverandi birgðir forsetaembættisins af áfengum drykkjum. Um tveimur milljónum er varið að meðaltali árlega í áfengiskaup fyrir forsetaembættið.

Slagorðasmiður Framsóknar taldi hið lúmska slagorð falla vel að þeirri heild sem herferðin er
Sigtryggur Magnason aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar formanns Framsóknarflokksins er sá sem hitti naglann beint á höfuðið þegar hann mætti á heilaspunafund kosningaráðsins og sló fram „Er ekki bara best að kjósa Framsókn?“

Blása á bábiljur Nicki Minaj um bóluefni og bólgin eistu
Heilbrigðisráðherra Trínidad og Tóbagó er hreint ekki ánægður með bandarísku tónlistarkonuna Nicki Minaj, eftir að hún tísti um að frændi hennar í Trínidad hefð hætt við að láta bólusetja sig vegna þess að vinur hans sagðist vera getulaus eftir bólusetningu gegn Covid-19. Ráðherrann segir ekkert til í sögunni.

Kennarar ráðalausir vegna víðtæks en óskiljanlegs þjófnaðar
Það geisar þjófnaðarfaraldur í íslenskum grunnskólum, þar sem eftirsóttasti fengurinn eru fábrotnir innanstokksmunir eins og klukkur eða skilti. Sökudólgarnir eru undir alþjóðlegum áhrifum og æðsta takmark þeirra er að gorta sig af þýfinu á TikTok.

Ryan Reynolds gladdi aðdáendur með einstakri útgáfu af Grace Kelly
Leikarinn Ryan Reynolds birti á samfélagsmiðlum fullkomna útgáfu af Mika laginu Grace Kelly. Reynolds birti lagið bæði á TikTok og Instagram og hefur það farið um eins og eldur í sinu.

Ekkert mál um horfið vín úr kjallara Bessastaða til skoðunar
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður hefur sett fram alvarlegar ásakanir þess efnis að starfsmaður forsetaembættisins hafi gengið í vínkjallara Bessastaða og haft þaðan verulegt magn víns til einkanota. Embættið segir ekkert slíkt mál til skoðunar.

Kynntist sjálfri sér betur eftir kulnun og hjálpar nú öðrum á sömu vegferð
„Morgunrútínan mín inniheldur blöndu af jóga, sjálfsheilun, orkuæfingum, hugleiðslu, öndunaræfingum og slökun,“ segir Ástrós Erla Benediktsdóttir. Tvo daga í viku í september býður hún fólki að taka þátt í morgunrútínunni með sér í gegnum zoom.

„Stoltur af manneskjunni sem ég er orðinn“
Fyrsti þáttur af þriðju þáttaröð Æði var sýndur í gær. Í þættinum voru þeir Bassi, Patrekur og Binni algjörlega berskjaldaðir og lögðu allar sínar tilfinningar á borðið.

Leið eins og í hryllingsmynd: „Það ógeðslegasta sem ég hef séð“
Sunneva og Jóhanna voru ekki mjög spenntar fyrir starfsþjálfuninni á flokkunarstöð Sorpu í nýjasta þættinum af #Samstarf. Þær voru þó mjög hrifnar að því að fá að fara í gegnum gáma og kassa fulla af gersemum í Góða hirðinum.

Raunverulega ástæðan fyrir því að Binni hættir ekki á ketó
Í fyrsta þættinum af þriðju þáttaröðar Æði, fór Patrekur Jaime í heimsókn í nýju íbúðina hans Binna Glee. Talið barst meðal annars að ketó mataræðinu sem Binni hefur fylgt að mestu síðustu tvö ár.

Vilja nýjan vararíkissaksóknara eftir að hann líkaði við umdeilda Facebook-færslu
Stígamót hafa skorað á dómsmálaráðherra að skipa nýjan vararíkissaksóknara eftir að hann brást við umdeildri færslu á Facebook þar sem upplýsingar úr lögregluskýrslu í ofbeldismáli Kolbeins Sigþórssonar koma fram.

Jón Viðar segir nýju Abbalögin klén
Hinn óttalausi gagnrýnandi og fræðimaður, Jón Viðar Jónsson, varpaði sprengju á Facebook nú í kvöld þegar hann lýsti því yfir að nýju Abbalögin væru léleg um leið og hann kallaði sænsku ofurstjörnurnar uppvakninga.

Formanninum krossbrá þegar hann sá umdeilda Facebook-færslu Sigurðar G
Sigurði Erni Hilmarssyni, formanni Lögmannafélags Íslands, brá beinlínis þegar hann sá ljósmyndir sem Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður birti en þar má sjá brot úr lögregluskýrslu þar sem fjallað er um mál þeirra Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur og Kolbeins Sigþórssonar knattspyrnumanns.