

Belgar svöruðu marki Íslands í Brussel með umdeildu marki þar sem spurning hvort að boltinn hafi farið allur yfir marklínuna.
Hólmbert Aron Friðjónsson kom íslenska landsliðinu óvænt yfir á móti besta landsliði heims.
Kevin De Bruyne var í kvöld útnefndur besti leikmaður síðustu leiktíðar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, rétt áður en hann byrjaði leikinn við Ísland með Belgíu í Þjóðadeildinni.
„Við erum að henda mönnum í djúpu laugina en menn stækka oft við svona verkefni,“ segir Freyr Alexandersson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, fyrir leikinn við Belgíu sem hefst kl. 18.45 á Stöð 2 Sport.
„Þeir eru klárlega betri en Englendingarnir. Það er hundrað prósent,“ segir Kári Árnason um belgíska landsliðið sem Ísland mætir nú í kvöld.
Andri Fannar Baldursson er í byrjunarliði Íslands á móti Belgíu í Þjóðadeildinni í kvöld og kemst með því á lista með nokkrum úrvalsmönnum.
Kevin De Bruyne er í byrjunarliði Belgíu og verður einn þeirra sem hinn 18 ára gamli Andri Fannar Baldursson fær að kljást við í leik Belgíu og Íslands í Þjóðadeildinni í kvöld.
Það eru nokkrar breytingar á íslenska byrjunarliðinu sem mætir Belgum í kvöld, frá því í leiknum gegn Englandi á laugardagskvöldið.
Það er fjöldi leikja í Þjóðadeildinni í fótbolta í beinni útsendingu á Vísi og sportrásum Stöðvar 2 í kvöld.
Ellefu sigrar í ellefu landsleikjum og markatalan er 39 mörk í plús. Það er engin tilviljun að Belgar eru á toppi heimslistans og þeir mæta ungu íslensku landsliði í Brussel í kvöld.
Tveir til viðbótar úr enska landsliðshópnum voru næstum því úr leik eftir æfingu enska landsliðsins í Laugardalnum í gær.
Kasper Hjulmand, þjálfari danska landsliðsins, er ekki mikið að stressa sig á hlutunum sem ganga á í herbúðum enska landsliðsins en England og Danmörk mætast í kvöld.
Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson heldur upp á 31 árs afmælið sitt í dag en hann fæddist 8. september 1989.
Ísland og Belgía mætast í þriðja skiptið á tveimur árum í kvöld er liðin leiða saman hesta sína í Belgíu.
Ungstirnið Mason Greenwood hefur sent frá sér afsökunarbeiðni fyrir að hafa brotið sóttvarnarreglur á Íslandi um helgina.
Leikur Belgíu og Íslands gæti verið í hættu séu fleiri leikmenn belgíska landsliðsins smitaðir en belgíska knattspyrnusambandið þurfti að bregðast við fréttum gærkvöldsins þegar einn leikmaður liðsins reyndist vera smitaður.
„Kannski getum við komið á óvart,“ sagði Erik Hamrén, landsliðsþjálfari Íslands, fyrir leikinn við Belgíu í Þjóðadeildinni í fótbolta. Hann segir alla leikmenn íslenska hópsins klára í slaginn í kvöld.
Landsleik Belgíu og Íslands í Þjóðadeild UEFA verður gerð góð skil á Stöð 2 Sport í kvöld en bein útsending frá leiknum hefst þar kl. 18.45.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta æfði á Roi Baudouin vellinum í Belgíu í dag fyrir leikinn við heimamenn í Þjóðadeildinni annað kvöld.
Roberto Martínez, landsliðsþjálfari Belgíu, segir að Erik Hamrén hafi greinilega verið á réttri leið með íslenska landsliðið síðan að liðin mættust í Þjóðadeildinni fyrir tveimur árum. Liðin mætast annað kvöld kl. 18.45, í Belgíu.
Ísland mætir Belgíu ytra annað kvöld í Þjóðadeild UEFA í fótbolta. Einn leikmanna Belgíu hefur nú greinst með kórónuveirusmit en leikurinn mun þó ekki vera í hættu.
„Það skiptir ekki máli hvern við dekkum þarna,“ segir Ari Freyr Skúlason um hið ógnarsterka belgíska lið sem Ísland mætir ytra annað kvöld í Þjóðadeildinni í fótbolta.
Ísland fær Rúmeníu í heimsókn í EM-umspilsleiknum mikilvæga eftir mánuð. Rúmenar unnu flottan 3-2 útisigur á Austurríki í kvöld, í síðasta leik sínum fyrir Íslandsförina.
Enski landsliðsmaðurinn Phil Foden hefur sent frá sér afsökunarbeiðni eftir að hafa brotið reglur um sóttkví á Íslandi með því að hitta tvær íslenskar konur á hóteli enska landsliðsins.
Gareth Southgate segir Íslendinga hafa sýnt skynsemi með því að vera afar varnarsinnaðir í Þjóðadeildinni í fótbolta á laugardag. Hann reiknar með allt öðruvísi leik gegn Danmörku í Kaupmannahöfn á morgun.
Franska knattspyrnustjarnan Kylian Mbappé hefur greinst með kórónuveirusmit og mun því ekki leika með heimsmeisturunum gegn Króatíu í Þjóðadeildinni annað kvöld.
Síðasti landsleikur Rúmena fyrir umspilsleikinn á móti Íslandi fer fram í Austurríki í kvöld og á sama tíma stýrir Lars Lagerbäck Norðmönnum í Belfast.
„Það er rosaleg áskorun að spila þessa leiki,“ segir Erik Hamrén, landsliðsþjálfari Íslands. Þeir Ari Freyr Skúlason sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í Belgíu í dag, fyrir leik Íslands og Belgíu í Þjóðadeild UEFA í fótbolta á morgun.
Enska landsliðið yfirgaf Hótel Sögu áðan og hélt til Keflavíkur þaðan sem það flýgur til Kaupmannahafnar.
Landsliðsþjálfari Englands fór yfir brot Masons Greenwood og Phils Foden á sóttvarnarreglum þegar þær buðu tveimur íslenskum stelpum upp á hótel enska landsliðsins.