Landspítalinn

„Við viljum bara nýta alla þekkingu í kerfinu“
Willum Þór Þórsson, nýr heilbrigðismálaráðherra, segir nýja starfið leggjast vel í sig. Eftirvæntingin væri mikil og segist hann finna fyrir fiðringi í heilbrigðisráðuneytinu séu mörg verkefni sem þurfi að fara í.

Þetta ætlar ríkisstjórnin að gera á kjörtímabilinu
Loftslagsmál, heilbrigðismál og tæknibreytingar eru einna fyrirferðamestu málaflokkarnir í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar sem kynntur var í dag. Miklum úrbótum er lofað í heilbrigðismálum þar sem skipa á faglega stjórn yfir Landspítalann að norrænni fyrirmynd.

Gjörgæsla í gjörgæslu
Umræða um gjörgæsludeildir Landspítala hefur verið áberandi upp á síðkastið. Margir hafa furðað sig á því að gjörgæsludeildir spítalans ráði ekki við að sinna þremur til fjórum sjúklingum með COVID. Margoft hefur verið bent á að gjörgæslupláss á Íslandi séu of fá, jafnvel þegar enginn heimsfaraldur geisar.

Læknirinn áfram í þjálfunarferli á Landspítalanum
Læknir sem sætir lögreglurannsókn vegna gruns um að bera ábyrgð á dauðsföllum sex sjúklinga sem hann sinnti á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verður áfram í þjálfunar- og endurmenntunarferli á Landspítalanum.

Starfsmaður smitaður á bráðaöldrunarlækningadeild í Fossvogi
Starfsmaður bráðaöldrunarlækningadeildar B4 á Landspítalanum í Fossvogi hefur greinst með Covid-19. Deildin er í sóttkví og lokað hefur verið fyrir innlagnir, að því er segir í Facebook-færslu Landspítala.

Stjórnendur Landspítala funduðu vegna lögreglurannsóknar
Stjórnendur Landspítala funduðu í dag með landlækni vegna læknisins Skúla Tómasar Gunnlaugssonar sem sætir lögreglurannsókn vegna gruns um alvarleg mistök í starfi, sem talin eru hafa valdið dauðsföllum sjúklinga hans.

Fílabeinsturninn og Landspítali
Þau sem stödd eru í fílabeinsturni, vita sjaldnast af því. Þannig skynja þau jafnvel ekki forréttindi sín, gera sér ekki grein fyrir takmörkunum sínum og sjá óskýrt stöðu mála. Þessu hef ég kynnst af eigin raun. Þegar ég hóf störf sem sjálfstætt starfandi stjórnunarráðgjafi hóf ég samhliða að starfa sem jöklaleiðsögumaður í hlutastarfi. Þar fór ég með ferðamenn í ævintýraferðir á jökla, með brodda á fótum og belti um mitti. Jöklastarfið var um margt merkilegt þar sem ég fékk að upplifa skemmtilegasta starf í heimi, enda umkringdur jákvæðum ferðamönnum, íslenskri náttúru og samhuga samstarfsmönnum. En það var annað sem ég fékk að upplifa sem var ansi merkilegt. Ég var í framlínustarfi.

Loka fyrir innlagnir á Klepp eftir að sjúklingur greindist
Sjúklingur á geðendurhæfingardeildinni á Kleppi greindist með Covid-19 í gær og er deildin komin í sóttkví. Lokað hefur verið fyrir innlagnir á meðan unnið er að því að rekja í kringum sjúklinginn.

Læknafélagið styður lækninn en segir lengd málsmeðferðarinnar bagalega
Læknafélag Íslands segist styðja félagsmann sinn, sem grunaður er um alvarlega vanrækslu í starfi sem talin eru hafa leitt til dauðsfalla sjúklinga hans. Hins vegar sé óvissa sem fylgi langri málsmeðferð bagaleg fyrir alla. Stjórnendur Landspítalans munu funda með landlækni vegna málsins í dag.

Landspítalinn hafði ekki vitneskju um umfang meintra brota
Landspítalinn hafði ekki vitneskju um hversu umfangsmikil rannsóknin er á hendur lækninum Skúla Tómasi Gunnlaugssyni, fyrr en fréttir af henni birtust í dag. Skúli Tómas er grunaður um röð alvarlegra mistaka í starfi hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem eiga að hafa leitt til dauðsfalla sjúklinga hans. Hann hefur að undanförnu starfað á Landspítala.

Ungir Sjálfstæðismenn gagnrýna Svandísi og kalla eftir afléttingum hið fyrsta
Samband ungra Sjálstæðismanna gagnrýnir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og hefur kallað eftir því að takmörkunum stjórnvalda vegna faraldurs kórónuveirunnar verði aflétt hið fyrsta.

Krefjast farbanns yfir lækninum: Fékk nýverið endurnýjað takmarkað starfsleyfi
Lögreglan á Suðurnesjum fór fram á farbann yfir fyrrverandi lækni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sem grunaður er um röð alvarlegra mistaka í starfi, sem hafi leitt til andláts að minnsta kosti eins sjúklings, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Töldu sig verða gerð afturreka með áminningu
Sú rannsókn sem fór fram á ásökunum læknanema á Landspítalanum á hendur Björns Loga Þórarinssonar sérfræðilæknis um kynferðislega áreitni er sú ítarlegasta sem ráðist hefur verið í innan spítalans vegna áþekkra ásakana.

Konan sem fór í keisaraskurð vegna Covid-19 óbólusett
Covid-smituð kona sem undirgekkst keisaraskurð í mánuðinum hafði ekki fengið bólusetningu samkvæmt upplýsingum fréttastofu.

Urðu að taka barn með keisaraskurði vegna Covid-veikinda móður
Fæðingardeild Landspítala varð að taka barn Covid-veikrar móður með keisaraskurði fyrr í þessum mánuði vegna veikinda hennar.

Þrjár Covid-innlagnir
Þrír voru lagðir inn á Landspítala í gær með Covid-19 og liggja nú alls 23 inni. Þrír þeirra hafa lokið einangrun en eru ekki útskrifaðir. Fjórir liggja á gjörgæslu, þar af þrír í öndunarvél.

Auglýstu og voru komin með þrjátíu manna hóp eftir klukkustund
Landspítalanum er sífellt stærri vandi á höndum við að manna störf og álagið er enn stigvaxandi vegna faraldursins. Í gær var gripið til nýs ráðs í úthringiveri Covid-göngudeilarinnar, sem bar undraverðan árangur.

Tuttugu og tveir á Landspítala vegna Covid
Tuttugu og tveir einstaklingar liggja nú á Landspítala vegna Covid. Af þessum fjölda eru tuttugu með virk smit en fjórir eru á gjörgæslu, þar af þrír í öndunarvél.

Óttast að Landspítali virki fráhrindandi sem vinnustaður fyrir ungt fólk
Heilbrigðisráðherra telur hættu á að orðræða og tíðar kvartanir starfsfólks Landspítala gætu orðið til þess að gera vinnustaðinn fráhrindandi fyrir ungu heilbrigðismenntuðu fólki. Það sé óheppilegt í ljósi mönnunarvanda spítalans.

Þurfum að „bæta verulega í“ til að sjá í hælana á Norðurlandaþjóðunum
Ísland er eftirbátur allra hinna Norðurlandanna þegar kemur að framlögum til heilbrigðisþjónustunnar - sérstaklega öldrunarþjónustu. Næstum því fjórum sinni fleiri liggja inni á spítalanum í bið eftir plássi á hjúkrunarheimili heldur en þeir sem liggja þar inni með Covid.

Auka þjónustu við aldraða til að draga úr álagi á spítalann
Sjúkratryggingar sömdu í dag við Reykjavíkurborg um aukna þjónustu við aldraða í heimahúsum en forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir að með breytingunum sé meðal annars verið að draga úr álagi á bráðamóttökunni.

Geta ekki sótt alla þá tvö hundruð hjúkrunarfræðinga sem þarf til útlanda
Landspítalinn þarf um tvö hundruð nýja hjúkrunarfræðinga til að geta sinnt starfi sínu eðlilega sögn forstjóra spítalans. Vonast er til að hægt verði að sækja starfsfólk til Norðurlandanna til að létta undir álaginu.

Lækna-Tómas kallar eftir neyðarstjórn yfir Landspítalanum
Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir á skurðdeild Landspítalans, kallar eftir því að neyðarstjórn verði skipuð yfir Landspítalann. Hann segir stöðuna grafalvarlega á spítalanum.

Óttast að bráðamóttakan verði óstarfhæf
Óttast er að bráðadeild Landspítalans verði óstarfhæf þegar uppsagnir hjúkrunarfræðinga taka gildi. Ástandið þar hefur aldrei verið eins slæmt að mati deildarstjóra, ekki sé hægt að tryggja öryggi sjúklinga.

Fjórir á gjörgæsludeild vegna Covid-19 og allir í öndunarvél
Allir þeir fjórir sem nú eru á gjörgæsludeild vegna Covid-19 eru nú í öndunarvél.

Er ekki lengur þörf fyrir bráðamóttöku?
Árlega stendur Fagráð í bráðahjúkrun á Landspítala fyrir Viku bráðahjúkrunar í þeim tilgangi að kynna sérgreinina bráðahjúkrun, hjúkrunarfræðinga á bráðamóttöku, sérhæfð verkefni þeirra, nýjustu þekkingu og verkferla auk þess að efla starfsandann meðal samstarfsfólks.

Af hverju er þetta ekki í lagi?
Allir íbúar þessa lands njóta góðs af öflugri bráðamóttöku Landspítalans. Að sama skapi bitnar það á okkur öllum þegar ríkir neyðarástand á bráðamóttökunni. Nú hefur hver starfsstéttin á fætur annarri lýst ástandinu fyrir þjóðinni og stjórnvöldum sem skelfilegu.

Hugnast ekki aðgerðir sem gætu mismunað bólusettum og óbólusettum
Heilbrigðisráðherra hugnast ekki aðgerðir sem gætu mismunað bólusettum og óbólusettum. Tuttugu þúsund Íslendingar fengu þriðja skammt í fyrstu viku bólusetningarátaks, færri en vonast var til.

Nokkrir hafa sagt upp á Landspítala í dag vegna álags
Nokkrir hjúkrunarfræðingar á bráðadeild hafa sagt upp á Landspítala í dag vegna álags. Landspítalinn sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hann vakti athygli á miklu álagi á spítalanum sem sérstaklega birtist almenningi á bráðamóttökunni í Fossvogi.

Neita að hafa hafnað plássum líkt og þingmenn halda fram
Heilbrigðisráðuneytið segir fullkomlega úr lausu lofti gripið að Hrafnista hafi viljað og geti tekið við á annað hundrað öldruðum. Sömuleiðis að staðið hafi á ráðuneytinu að semja við Heilsuvernd um á þriðja hundrað hjúkrunarrýma. Hvoru tveggja sé rangt.