
Trúmál

Þýskir prestar misnotuðu þúsundir barna um árabil
Meira en 3.600 börn urðu fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu kaþólskra presta í Þýskalandi á árunum 1946 til 2014 samkvæmt nýrri skýrslu sem lekið var til fjölmiðla.

Aldrei færri skráðir í ensku biskupakirkjuna
Um sjötíu prósent Breta á aldrinum 18 til 24 ára telja sig ekki trúuð.

Rannsókn á kynferðisbrotum innan kaþólsku kirkjunnar hafin í New York
Dómsmálaráðherrann hefur gefið út stefnur á hendur öllum biskupsdæmum kirkjunnar í ríkinu.

Nauðgunarmenningin
Innst inni þykir okkur kvenlegt að vera svolítið varnarlaus en karlmannlegt þegar af manni stafar nokkur ögrun

Páfi fundaði með þolendum kynferðislegs ofbeldis
Frans páfi segist skammast sín fyrir hversu illa Kaþólsku kirkjunni hefur gengið að taka á hinu "viðurstyggilegu“ kynferðislega ofbeldi sumra presta kirkjunnar.

Fyrsta heimsókn páfa til Írlands í 39 ár
Frans páfi hóf í dag fyrstu heimsókn páfa til Írlands síðan að Jóhannes Páll II. heimsótti eyjuna grænu á haustmánuðum ársins 1979.

Hulin
Allir eiga að hafa rétt á því að sjá andlit þeirrar persónu sem þeir mæta og standa andspænis.

Hjónavígslum á vegum Siðmenntar snarfjölgar
Sífellt fleiri láta Siðmennt sjá um hjónavígslu sína. Erlendir ferðamenn velja oft að láta gifta sig úti í íslenskri náttúru. Formaður Siðmenntar telur að fleiri kjósi persónulegri athöfn þar sem áhersla sé á einstaklingana og hið sammannlega.

Gjörningur í kirkjunni í Hrísey hryggir íbúana
Listamaðurinn Snorri Ásmundsson fór án leyfis í messuskrúða í Hríseyjarkirkju og framdi gjörning. Formaður sóknarnefndarinnar segir að hér eftir verði ekki hægt að treysta fólki fyrir kirkjunni.

Páfinn segir dauðarefsingu aldrei eiga rétt á sér
Um er að ræða meiriháttar stefnubreytingu hjá rómversk-kaþólsku kirkjunni.

Erkibiskupinn segir af sér
Frans páfi hefur fallist á afsagnarbeiðni ástralska erkibiskupsins Philips Wilson sem var dæmdur fyrir að hafa vísvitandi haldið barnaníði leyndu.

Ógnandi ummæli
Fréttir bárust af því í vikunni að ímam (klerkur múslima) nokkur í Danmörku hafi verið ákærður fyrir að hvetja í prédikun sinni til morða á gyðingum.

Pólitík í predikunarstól
Það taldist til tíðinda og rataði í fréttir þegar nýr vígslubiskup í Skálholti, séra Kristján Björnsson, gerði loftslagbreytingar að umtalsefni í vígsluræðu sinni og lagði áherslu á nauðsyn þess að bregðast við háskanum.

Vottar gæti að persónuvernd
Evrópudómstóllinn hefur úrskurðað að löggjöf Evrópusambandsins, ESB, um vernd persónulegra gagna feli í sér að trúfélög og trúboðar þeirra beri ábyrgð á meðferð persónuupplýsinga sem þeir afla þegar þeir ganga hús úr húsi.

Páfinn skipar fjórtán nýja kardinála
Hinn 81 árs gamli Frans páfi hefur nú skipað 59 af þeim 125 kardinálum yngri en áttatíu ára.

Presturinn óskaði eftir viðhaldi á prestsbústaðnum fyrir útleigu
Kirkjuráð taldi viðhaldið ekki forgangsmál og synjaði beiðni prestsins í Holti.

Kirkjuráð snuprar prest vegna heimagistingar á prestssetrinu
Séra Fjölnir Ásbjörnsson, sóknarprestur í Holtsprestakalli, hefur verið minntur á það af kirkjuráði að leyfi ráðsins þurfi til að reka heimagistingu í prestsbústaðnum í Holti í Önundarfirði. Presturinn telur málið misskilning.

84 milljónir veittar í prestsþjónustu á Landspítalanum í fyrra
Landspítalinn varði 84 milljónum króna í laun, launatengd gjöld og annan rekstrarkostnað presta og djákna við spítalann á síðasta ári.

Látinn taka poka sinn rétt fyrir vígsluathöfn
Séra Skírni Garðarssyni sárnar að sóknarprestur sem hann hefur leyst af í Vík verði við vígslu legsteins á gröf flökkukonunnar Viggu gömlu. Skírnir átti að þjóna út sumarið í Mýrdal en var óvænt leystur undan þeirri skyldu sinni

200 milljón króna bréf til sýnis í Garðabænum
Hið svokallaða Biblíubréf frá árinu 1876 verður til sýnis á NORDIA 2018 safnarasýningunni sem stendur yfir 8. til 10. júní, en bréfið er metið á 200 milljónir króna. Öflug öryggisgæsla verður á svæðinu allan sólarhringinn yfir helgina.

Zúistum fækkar um 37 prósent
Meðlimum trúfélags zúista á Ísland fækkaði um 37 prósent á tveimur árum.

Stórfé í góðgerðarstarf eftir mótorhjólamessu
Ánægja með samkennd í mótorhjólamessu í Digraneskirkju. Séra Bára Friðriksdóttir segir nær 700.000 krónur hafa safnast til góðgerðarmála. Félagar úr fjandvinaklúbbunum Hells Angels og Outlaws meðal þeirra sem mættu til kirkju.

Frans páfi um samkynhneigð: „Guð skapaði þig í þessari mynd og elskar þig eins og þú ert“
Haft var eftir Frans páfa að kynhneigð fólks skipti ekki máli hvað varðar ást guðs.

Kristján Björnsson nýr vígslubiskup í Skálholti
Kosið var á milli Kristjáns og Eiríks Jóhannssonar í vígslubiskipskjöri Þjóðkirkjunnar í Skálholtsumdæmi.

Meðlimum í þjóðkirkjunni fækkar enn
Rúmlega sex hundruð fleiri gengu úr kirkjunni en í hana á fyrsta ársfjórðungi 2018.

Biskup fjallaði um jafnréttismál í páskapredikun
Agnes kom inn á samhengi kristinnar kirkju og jafnréttismál í predikun sinni.

Á fimmta hundrað íslenskra lækna fagna umskurðarfrumvarpi
Hafa margir neitað að taka þátt í verknaðinum samvisku sinnar vegna, við mismikinn skilning.

Hrafn er umskorinn og hefur liðið sálarkvalir vegna þess
Silja Dögg Gunnarsdóttir öðlast óvæntan bandamann við umskurðarfrumvarp sitt.

Heimsbyggðin mjög forvitin um umskurðarfrumvarp Silju Daggar
Óhætt er að segja að umdeilt frumvarp Silju Daggar Gunnarsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, hafi vakið heimsathygli. Frétt um frumvarpið er þriðja mest lesna frétt vefútgáfu breska ríkisútvarpsins, BBC.

Hvetja Alþingi til að samþykkja umskurðarfrumvarp
Siðmennt telur að þar sem um sé að ræða alvarlegt og óafturkræft inngrip sé óásættanlegt að ólögráða börn séu umskorin.