Þýskaland
1 2 3 4 5 6 … 38 ›
Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Alternative für Deutschland, öfgahægriflokkurinn sem árásarmaðurinn sem drap fimm er hann ók sendibíl á gesti jólamarkaðar í Madgeburg studdi, stóð fyrir minningaviðburði í gær vegna voðaverkanna. Þar var gert ákall eftir brottvísunum og lokuðum landamærum, orðræða sem svipar til viðhorfa árásarmannsins. Erlent 24.12.2024 09:32
Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt fjórar konur og níu ára dreng og særa tugi manna með því að aka bíl inn í þvögu fólks á jólamarkaði í Magdeburg hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald og fluttur í fangelsi. Hann hefur verið ákærður fyrir fimm morð auk fjölda morðtilrauna og líkamsárása. Erlent 22.12.2024 09:00
Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Hinn þýsk-íslenski Henning Busk sem starfar við háskólasjúkrahúsið í Magdeburg sem hjarta- og brjóstholsskurðlæknir segir í samtali við Vísi að fjölmargir særðir liggi inni á sjúkrahúsinu eftir að maður frá Sádí Arabíu ók bifreið sinni á hóp fólks á jólamarkaði í Magdeburg í Þýskalandi í gærkvöld. Erlent 21.12.2024 23:17
Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir Olaf Scholz Þýskalandskanslari heimsótti Magdeburg í dag til að minnast þeirra sem féllu í mannskæðri árás þar í borg í gær og votta hinum særðu virðingu sína. Hann hefur heitið því að málið verði rannsakað til hlítar. Á meðan fjöldi fólks, meðal annars fjölskyldur fórnarlamba árásarinnar og viðbragðsaðilar, sóttu minningarathöfn í dómkirkjunni, létu mótmælendur eftir sér taka á götum borgarinnar. Erlent 21.12.2024 21:29
„Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Harpa Brynjarsdóttir, tveggja barna móðir, sem býr ásamt Ómari Inga Magnússyni, byrjunarliðsmanni hjá handboltaliði Magdeburg, skammt frá jólamarkaði borgarinnar segist vera í hálfgerðu áfalli eftir atburði gærkvöldsins enda hafi aldrei hvarflað að henni að slíkt gæti gerst í borginni þeirra. Erlent 21.12.2024 12:02
Fimm látnir og tvö hundruð særðir Yfirvöld í Þýskalandi hafa uppfært tölur yfir fjölda látinna og særðra eftir að maður ók bíl á miklum hraða inn í þvögu fólks á jólamarkaði í Magdeburg í gærkvöldi. Að minnsta kosti fimm eru látnir og rúmlega tvö hundruð eru særðir. Erlent 21.12.2024 10:46
Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Lögreglan í Þýskalandi segir að maðurinn sem ók bíl inn í þvögu fólks á jólamarkaði í Magdeburg sé fimmtugur og upprunalega frá Sádi-Arabíu. Hann er sagður hafa starfað sem læknir í Þýskalandi um árabil og liggur tilefni árásarinnar ekki fyrir. Erlent 21.12.2024 07:31
Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Ungt íslenskt par sem býr örskammt frá jólamarkaðnum í Magdeburg í Þýskalandi segist vera illa brugðið eftir að maður ók bifreið sinni á tugi manna fyrr í kvöld. Það hafi ekki hvarflað að þeim að slíkt gæti gerst í Magdeburg. Búið sé að eyðileggja hátíðirnar í borginni. Erlent 20.12.2024 23:55
Hvetja Íslendinga á svæðinu til að láta vita af sér Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur hvatt Íslendinga í Magdeburg í Þýskalandi til að láta vita af sér á samfélagsmiðlum ef þeir eru öryggir eftir að bifreið var ekið á jólamarkað í miðborg borgarinnar. Minnst einn lést og tugir manna slösuðust. Innlent 20.12.2024 20:51
Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Bifreið var ekið á hóp fólks sem var samankomið á jólamarkaði í borginni Magdeburg í Þýskalandi klukkan 19.04 í kvöld. Ökumaðurinn var handtekinn á vettvangi. Að minnsta kosti tveir eru látnir og tugir annarra slasaðir. Erlent 20.12.2024 19:40
Discover hefur flug milli München og Íslands Þýska flugfélagið Discover Airlines, dótturfélag Lufthansa, hefur ákveðið að fljúga milli München og Keflavíkurflugvallar allt árið um kring. Þetta var tilkynnt í dag en áður hafði félagið boðað flug til og frá KEF yfir sumartímann. Viðskipti innlent 20.12.2024 14:35
Vantraust á hendur Scholz samþykkt Vantraust á hendur Olaf Scholz kanslara Þýskalands var samþykkt í þinginu í dag eins og búist var við. Allt er því til reiðu fyrir snemmbúnar þingkosningar þann 23. febrúar. Erlent 16.12.2024 16:08
Eldsprengjur GRU hefðu getað grandað flugvélum DHL Myndir af eldsprengjum sem útsendarar leyniþjónustu rússneska hersins (GRU) eru grunaðir um að hafa sett um borð í flugvélar DHL, benda til þess að sprengjurnar hefðu getað grandað flugvélum. Vegna tafa kviknaði í sprengjunum á jörðu niðri en hefðu engar tafir orðið, hefur þær líklega sprungið um borð í flugvélum yfir Atlantshafinu. Erlent 11.12.2024 13:20
Líklegasta kanslaraefnið heimsótti Kænugarð Friedrich Merz, leiðtogi Kristilegra demókrata, og líklegur eftirmaður Olafs Scholz sem kanslari Þýskalands, kom til Kænugarðs til þess að fullvissa úkraínska ráðamenn um áframhaldandi stuðning í morgun. Úkraínustríðið er efst á baugi í kosningabaráttunni í Þýskalandi. Erlent 9.12.2024 08:53
Hyggjast fljúga þotunni yfir Reykjavík í hádeginu Icelandair fékk í dag afhenta fyrstu Airbus-þotuna í sögu félagsins. Stefnt er að því að hún fljúgi yfir Reykjavík við komuna til Íslands í hádeginu á morgun, þriðjudag 3. desember. Innlent 2.12.2024 23:43
Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Hópur Búlgara sem bjó í Bretlandi njósnaði fyrir Rússa í tæp þrjú ár og á þeim tímabili er hópurinn sagður hafa sett líf margra í hættu. Hópurinn stundaði njósnir víðsvegar um Evrópu, þar sem fólkið safnaði upplýsingum um fólk fyrir Rússa og ræddi meðal annars að myrða búlgarskan blaðamann sem kom að því að svipta hulunni af banatilræði rússneskra útsendara á Sergei Skripal. Erlent 29.11.2024 11:02
Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Skemmdarverk útsendara Rússa í Evrópu gæti að endingu leitt til virkjunar fimmtu greinar stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins um sameiginlegar varnir aðildarríkja. Þetta sagði yfirmaður einnar leyniþjónustu Þýskalands á ráðstefnu í gær en Rússar hafa á undanförnum mánuðum og jafnvel árum verið sakaðir um skemmdarverk, banatilræði og annarskonar árásir í Evrópu. Erlent 28.11.2024 11:14
Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Stjórnvöld í Þýskalandi hyggjast smíða nýtt app þar sem landsmenn munu geta leitað upplýsinga um næsta loftvarnaskýli eða annað skjól gegn loftárásum, svo sem neðanjarðarlestarstöðvar. Erlent 26.11.2024 08:03
Scholz verður kanslaraefni Jafnaðarmanna Eftir tveggja vikna innanflokksdeilur er ljóst að Olaf Scholz Þýskalandskanslari verður í dag formlega tilnefndur sem kanslaraefni flokksins í komandi þingkosningum sem munu fara fram 23. febrúar næstkomandi. Erlent 25.11.2024 08:43
Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Allt stefnir í að Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, verði áfram kanslaraefni Sósíademókrataflokksins eftir að líklegasti arftaki hans lýsti því yfir að hann sæktist ekki eftir sæti hans. Scholz er óvinsælasti kanslari síðari tíma og hafa margir leiðtoga flokksins hvatt hann til þess að stíga til hliðar. Erlent 22.11.2024 08:59
Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu Förðunarfræðingurinn og hárgreiðslukonan Tinna Empera hefur haft áhuga á tísku frá blautu barnsbeini og ólst upp við það að þora að hugsa stórt. Hún flutti til New York fyrir þrettán árum síðan og hefur tekið þátt í ýmsum ævintýralegum verkefnum. Blaðamaður ræddi við Tinnu um lífið úti. Tíska og hönnun 21.11.2024 07:01
Fyrsta flug þotu sem markar þáttaskil í sögu Icelandair Fyrsta Airbus-þota Icelandair fór í sitt fyrsta reynsluflug í Hamborg í gær. Stefnt er að því að flugvélin komi til landsins 3. desember og hefji áætlunarflug viku síðar. Innlent 20.11.2024 20:24
Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Isavia ohf. hefur tekið tilboði þýska fyrirtækisins Heinemann í rekstur fríhafnarverslana á Keflavíkurflugvelli til næstu átta ára. Tilboðið er valið út frá fyrir fram ákveðnum valforsendum útboðs. Fjórir aðilar buðu í reksturinn. Heinemann rekur fjölda verslana um allan heim, meðal annars fríhafnarverslanirnar á Gardermoen-flugvelli í Osló og Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. Viðskipti innlent 20.11.2024 15:41
Airbus-þota Icelandair flaug í fyrsta sinn í dag Fyrsta Airbus-þota Icelandair fór í sitt fyrsta reynsluflug frá Airbus-verksmiðjunum í Hamborg í Þýskalandi í dag. Flugvélin, af gerðinni Airbus A321neo, hóf sig til flugs laust eftir hádegi að staðartíma. Innlent 19.11.2024 23:55
Scholz ver símtal sitt við Pútín Enga hugarfarsbreytingu var að merkja hjá Vladímír Pútín gagnvart stríðsrekstri hans í Úkraínu í símtali við Olaf Scholz, kanslara Þýskalands, fyrir helgi. Scholz á í vök að verjast vegna símtalsins og er sakaður um að rjúfa samstöðu með Úkraínu. Erlent 18.11.2024 09:01
Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, og Vladimír Pútín, forseti Rússlands, töluðu saman í síma í dag og var það í fyrsta sinn sem þeir töluðust við í tæp tvö ár.Síðast töluðu þeir saman í lok árs 2022 en að þessu sinni mun símtalið hafa staðið yfir í um klukkustund. Erlent 15.11.2024 16:19
Þrýst á Scholz að víkja fyrir vinsælasta stjórnmálamanni landsins Flokkssystkini Olafs Scholz Þýskalandskanslara þrýsta nú hann að víkja fyrir varnarmálaráðherra sínum sem leiðtogi sósíaldemókrata fyrir þingkosningar í febrúar. Enginn kaslari Þýskalands hefur mælst eins óvinsæll í skoðanakönnunum og Scholz. Erlent 15.11.2024 15:06
Ganga til kosninga í febrúar Þjóðverjar munu ganga til kosninga til sambandsþings þann 23. febrúar næstkomandi, eftir að atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu gegn ríkisstjórn Olaf Scholz, kanslara, fer fram í desember. Sú tillaga verður að öllum líkindum samþykkt. Erlent 12.11.2024 10:27
Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, segist til í að efna til vantraustsatkvæðagreiðslu á þingi fyrr en hann hafði ætlað ef samstaða ríkir um það á meðal stjórnmálaflokkanna. Líkurnar á skyndikosningum snemma á næsta ári fara því vaxandi. Erlent 11.11.2024 10:46
Þrjár íslenskar kvikmyndir hlutu verðlaun í Þýskalandi Leikstjórinn Rúnar Rúnarsson og kvikmyndaframleiðandinn Heather Millard voru verðlaunuð á Norrænum kvikmyndadögum í þýsku borginni Lübeck fyrir kvikmyndina Ljósbrot og stuttmyndina O (Hringur). Lífið 10.11.2024 07:54