Erlent

Sprengjur nærri spenni­stöð

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá vettvangi í Brandenburg. Embættismenn segja að á annan tug heimagerða sprengja hafi fundist.
Frá vettvangi í Brandenburg. Embættismenn segja að á annan tug heimagerða sprengja hafi fundist. Getty/Frank Hammerschmidt, Picture alliance

Nokkrar sprengjur fundust við spennistöð í Brandenburg í Þýskalandi í dag en að minnsta kosti ein þeirra sprakk í loft upp. Rafmagnslínur urðu fyrir skemmdum með meðfylgjandi truflunum á dreifikerfi en þær voru fljótt lagaðar.

Engan mun hafa sakað við sprenginguna.

Lögreglan er með málið til rannsóknar en sprengjusérfræðingar sáust á svæðinu í dag. Í frétt Spiegel segir að sprengjurnar virðist hafa verið gerðar úr flugeldum.

Dietmar Woidke, forseti Brandenburg, hefur tjáð sig um atvikið og hefur fordæmt þessa árásartilraun, eins og hann kallar atvikið. Þá segir hann að fjöldi atvika sem þessara sýni mikilvægi þess að verja innviði Þýskalands betur.

Spiegel vísar einnig í ummæli Roberts Crumbach, innviðaráðherra, sem kallar atvikið einnig „árás“ og segir atvikið mjög alvarlegt.

Í frétt Süddeutsche Zeitung segir að fyrr á árinu hafi vinstri sinnaðir öfgamenn framið nokkur skemmdarverk á orkuinnviðum nærri Berlín. Um það bil 45 þúsund heimili, fjöldi fyrirtækja, sjúkrahúsa og dvalarheimila voru án rafmagns í nokkra daga.


Tengdar fréttir

Rísandi stjarna AfD um­kringd nýnas­istum

Nánustu ráðgjafar frambjóðandi jaðarhægriflokksins Valkosts fyrir Þýskaland sem gæti orðið fyrsti fulltrúi flokksins til þess að sigra í kosningum voru félagar í bönnuðum nýnasistasamtökum. Frambjóðandinn segir ráðgjafana alla „framúrskarandi“ fólk.

Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu

Óvenju mörg tilfelli þar sem fólk hefur smitast af malaríu hafa komið upp á einum stærsta flugvelli Þýskalands og þegar hafa í það minnsta tveir látist. Talið er að malarían hafi borist með moskítóflugu um borð í flugvél en það hefur fengist staðfest að sex flugvallarstarfsmenn, karlmenn í mismunandi stöðum og á mismunandi svæðum vallarins, hafi smitast.

Fundu rúss­neskt vopna­búr í skógi fyrir utan Berlín

Skotvopn sem höfðu verið grafin í jörðu fundust í skógi nærri Berlín sem þýsk yfirvöld telja að tengist rússnesku leyniþjónustunni. Þýsk yfirvöld reyna að nú að fá einstakling framseldan frá Rúmeníu vegna fundarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×