Ólympíuleikar

Ólympíuleikar

Fréttir af Ólympíuleikum, bæði sumar- og vetrarleikum.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Tyrk­neska hlaupatilraunin mis­tókst

Tyrkland gerði tilraun til að sannfæra frjálsíþróttafólk um að skipta um þjóðerni en öllum ellefu umsóknunum var hafnað af alþjóða frjálsíþróttasambandinu.

Sport
Fréttamynd

Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas

Hætt hefur verið við sýningarmót í handbolta sem átti að fara fram í Las Vegas í Bandaríkjunum í sumar. Stjórnmálaástandið þar í landi er sögð ástæðan og unnið er að því að færa mótið eitthvert til Evrópu.

Handbolti
Fréttamynd

Fresta á­kvörðun um hugsan­legt bann á Trump

Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunin, WADA, frestaði á þriðjudag ákvörðun um að banna embættismönnum ríkisstjórna frá stórum íþróttaviðburðum ef lönd þeirra halda sjálfviljug eftir greiðslum til stofnunarinnar.

Sport
Fréttamynd

Eini Ólympíufari Írana kemst ekki

Íraninn Aboulfazl Khatibi keppir ekki á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina og það þýðir að Íran mun ekki taka þátt í leikunum.

Sport
Fréttamynd

Sturla hefur átt erfitt með að borða og sofa

Norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid varð heimsfrægur á Vetrarólympíuleikunum þegar hann játaði framhjáhald fyrir allri heimsbyggðinni. Hann hefur nú rætt upplifun sína af öllu því sem gekk á í framhaldinu af viðtalinu fræga og játaði það að í kjölfarið hafi hann fundið fyrir auknu álagi á líkamanum.

Sport