Birtist í Fréttablaðinu

Nýtt lyf við legslímuflakki samþykkt í Bandaríkjunum
Ester Ýr Jónsdóttir, varaformaður Samtaka um endómetríósu, segist fagna nýjum meðferðarúrræðum.

Jón lærði – Misskilinn maður um aldir
Á Reykholtshátíð flytur Ólína Þorvarðardóttir fyrirlestur um Jón lærða. Segir hann vera á pari við ýmsa merka menn.

Önnur tvenna á leiðinni frá Gauta
Emmsjé Gauti sendi frá sér lagalista af komandi plötu á Twitter. Hann segir plötuna koma út í haust og að hann muni fylgja henni eftir með annarri til líkt og hann gerði um árið þegar tvær plötur komu út með skömmu millibili.

Viðsnúningur í rekstri Auðar I
Framtakssjóðurinn Auður I, sem er í rekstri Kviku, hagnaðist um 166 milljónir króna árið 2017 samanborið við 103 milljóna króna tap árið áður.

Mal katta ekki bara merki um hamingju
Þótt mal katta tákni venjulega að þeir séu hamingjusamir geta kettir líka malað til að tjá stress eða ótta þótt hið fyrstnefnda sé algengast.

Mnangagwa sakaður um að svindla í kosningunum
Nelson Chamisa, forsetaframbjóðandi Hreyfingarinnar fyrir lýðræðisumbætur í Simbabve, sagðist í gær sigurviss þrátt fyrir að kjörstjórn "svindlaði og prettaði“ til þess að hjálpa Emmerson Mnangagwa, sitjandi forseta og frambjóðanda Afríska þjóðarbandalags Simbabve.

Enn hrapar þyrla með gírkassann frá Airbus
Fimm fórust þegar spaði losnaði af þyrlu í Suður-Kóreu í síðustu viku. Var með sams konar gírkassa og tvær þyrlur sem Landhelgisgæslan leigir. Flugslysanefnd í Noregi gagnrýndi búnaðinn stuttu eftir að gengið var frá leigunni til Íslands.

Sveinstindur við Langasjó
Sveinn Pálsson fæddist árið 1762 í Skagafirði og var ekki einungis merkilegur læknir heldur einn merkasti náttúrufræðingur Íslendinga fyrr og síðar

Síbrotamaður í gæsluvarðhald
Landsréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um fjölda afbrota.

Kátt á Klambra verður haldið í þriðja skiptið
Nokkrir af vinsælustu listamönnum þjóðarinnar troða upp á barnamenningarhátíð á Klambratúni um helgina. Um þrjú þúsund mættu í fyrra. Einn skipuleggjenda segir fólk frá núll og upp úr eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Saga úr sundlaugarklefa
Að þessu sinni völdum við hjónin að dvelja vestur í Önundarfirði í sumarleyfinu og höfum notið bjartra daga í vestfirskri náttúru til sjós og lands.

Fátækir fórnarlömbin í aftökusögu Íslendinga
Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur segir aftökur á Íslandi hafa bitnað á lágstéttum. Steinunn fræðir um aftökur á Íslandi á Þingvöllum annað kvöld. Vitað er um 220 aftökur eftir að dauðarefsing var tekin hér upp eftir siðaskiptin

Fara í mál að fólkinu forspurðu
Dæmi um að lögmenn í þjóðlendumálum fari með mál umbjóðenda sinna alla leið fyrir Hæstarétt án samráðs við þá. 88 málum skotið til dómstóla síðan 1998, þegar óbyggðanefnd var stofnuð. Kostnaður er hár.

Ríkið verði af tveimur milljörðum á ári
Samtök ferðaþjónustunnar áætla að ríkið verði af tveimur milljörðum króna á meðan Airbnb og sambærilegum leigusíðum er ekki gert að innheimta gistináttaskatt. Taka átti á málinu fyrir ári en það er enn í skoðun. Kerfið míglekur, segir stjórnarformaður Gray Line.

Herraföt orðin meira spennandi
Ási Már Friðriksson fatahönnuður hefur stofnað nýtt merki og sendir frá sér fyrstu fatalínuna. Kismet nefnist fatamerkið og er núna fyrst um sinn herralína í americano stílnum. Ási reiknar með að línan komi út í september.

Nauðsynlegt að taka á stöðunni
Rafrænar þinglýsingar eru fagnaðarefni en hugsa verður framkvæmdina til lengri tíma litið, segir Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala.

Evrópuþjóðir bjóðast til að aðstoða Grikki við slökkvistarfið
Að minnsta kosti sjötíu og fjórir hafa farist í skógareldum á Attíkuskaga nærri grísku höfuðborginni Aþenu

Pakistanar ganga til þingkosninga í dag
Kosið er um öll 342 sætin á pakistanska þinginu

Biðla til allra í Laos um hjálp
Harmleikur í suðurhluta Laos. Hundraða saknað eftir að ókláruð stífla brast. Ekki er vitað hversu margir fórust í hamförunum en tæp sjö þúsund misstu heimili sín. Hundrað milljarða framkvæmd. Íbúar nærri framkvæmdasvæðinu áður verið fluttir burt gegn vilja sínum og hafa kvartað yfir vatns- og matarskorti.

Mesti hiti í 262 ár
Á meðan við hér uppi á Íslandi kvörtum yfir kulda og votviðri fárast frændur okkar í Svíþjóð yfir hita og rigningarleysi.

Auglýsingafé til prentmiðla fer enn minnkandi
Hlutur prentmiðla af auglýsingafé sem auglýsendur verja með milligöngu birtingarhúsa fór enn minnkandi á síðasta ári.

Þrívíddarprentuð heimili
Þrívíddarprentun hefur ótalmarga notkunarmöguleika, en einn þeirra er að prenta út heilu húsin. Þessi spennandi nýja tækni gæti því nýst vel við að leysa húsnæðisvanda víða um heim.

Ofþyngd er ógn við heilsuna
Ólafur Arnarson hefur öðlast nýtt líf eftir að hafa misst 53 kíló. Hann segist hafa verið allt of þungur og lengi barist við ofþyngd. Lífsgæðin hafa batnað stórlega eftir að hann fór í magaermaraðgerð á síðasta ári.

Æskilegra að ytri hringur verði í forgangi líkt og annars staðar
Ólögfest venja um forgang umferðar í innri hring hringtorga verður að lögum fari ný umferðarlög óbreytt í gegnum ráðuneyti og þing. Sú séríslenska regla hefur valdið óhöppum hér á landi. Framkvæmdastjóri FÍB segir það skort á víðsýni að halda í forgang innri akreinar og vill sömu reglur og tíðkast í öðrum löndum. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB

Svaraði fyrir refsileysi Benalla
Innanríkisráðherra Frakka sagði það ekki í sínum verkahring að upplýsa saksóknara um meint brot yfirmanns öryggismála hjá forsetanum. Sagði einungis forseta og lögreglu frá málinu. Macron forseti hefur enn ekki tjáð sig um málið en fyrirskipaði uppstokkun í starfsliði sínu.

Helmingur á Vogi hefur keypt lyfseðilskyld lyf
Rúmlega helmingur innritaðra sjúklinga á Sjúkrahúsinu Vogi, eða 52 prósent, hafði keypt lyfseðilskyld lyf á götunni samkvæmt mánaðarlegri könnun sem SÁÁ gerir á verðlagi á ólögmætum lyfjum.

Áhyggjuefni hversu marga skorti reynslu
Fjölmörg dæmi eru um leiðsögumenn og fararstjóra hér á landi sem litla þekkingu hafa á starfinu. Starfsheitið er ekki lögverndað. Ferðamálaráðherra leitar lausna.

Kjærsgaard líkt við frekt barn á Íslandi
Formaður danska þingsins, Pia Kjærsgaard, fær kaldar kveðjur í leiðara danska dagblaðsins Information í gær, vegna viðbragða sinna við mótmælum íslenskra þingmanna á fullveldishátíðinni í síðustu viku.

Birtingin var á bið í fjögur ár
Fjárfestingarsamningur ríkisstjórnarinnar og Algalíf Iceland ehf. var birtur í B-deild stjórnartíðinda fyrir helgi.

Bið eftir þinglýsingu styttist í sekúndubrot
Frumvarp sem heimilar rafrænar þinglýsingar er tilbúið og verður lagt fram á Alþingi í haust. Fullnægjandi skjölum verður þinglýst í gegnum tölvukerfi á örskotsstundu. Ráðherra segir málið hafa velkst of lengi um í stjórnkerfinu.