Mikilvægt að skima fyrir kynsjúkdómum í fangelsum Til stendur að hefja skimanir fyrir kynsjúkdómum meðal fanga til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu kynsjúkdóma í fangelsum. Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að fylgst sé með fólki í áhættuhópum. Unnið er að aðgerðaráætlun til að bregðast við útbreiðslu kynsjúkdóma á Íslandi. 2.7.2019 19:30
Birkiskógar fái að dreifa úr sér Árleg landgræðsla og skógrækt verður tvöfölduð á næstu fjórum árum, meðal annars með viðamikilli gróðursetningu birkitrjáa sem eiga að dreifa úr sér. Þetta er meðal stærstu einstaka aðgerð stjórnvalda gegn loftslagsvánni. Til skoðunar er að setja á hvatakerfi fyrir landeigendur til þessa að endurheimta megi votlendi. 2.7.2019 19:00
Helmingi færri fíkniefnamál og engin hávaðakvörtun Helmingi færri fíkniefnamál hafa komið upp á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í ár en í fyrra og lögreglu hefur ekki borist nein hávaðakvörtun. Lögregla telur hátíðina hafa farið vel fram enda voru færri á svæðinu og mikil gæsla. Tvö fíkniefnamál eru til rannsóknar en í öðrum tilvikum var um neysluskammta að ræða. 23.6.2019 19:15
Gagnrýni Davíðs reynir á tilfinningar Sjálfstæðismanna Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir harða gagnrýni Davíðs Oddssonar á flokksforrystuna vera tilfinningalega erfiða fyrir marga flokksmenn. Þingmenn flokksins séu ósáttir við ritstjórnarskrif Davíðs þar sem magnaðar séu upp áhyggjur sem ekki skipta máli. Aðspurður um ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að birta ekki afmælisgrein flokksins í Morgunblaðinu segir hann að pirringur geti virkað í báðar áttir. 23.6.2019 12:18
Telur að kanna eigi þörfina á karlaathvarfi fyrir þolendur ofbeldis Dæmi eru um að karlmenn sem hafa flúið heimilisofbeldi lendi á götunni. Ráðgjafar frá Kvennaathvarfinu hafa aðstoðað þá í Bjarkarhlíð en lengra nær hjálpin ekki þar sem ekkert skjól er í boði. Verkefnastýra Bjarkarhlíðar segir vandann falinn þar sem karlar upplifi oft mikla skömm sem þolendur. Hún telur að kanna eigi þörfina fyrir karlaathvarf. 22.6.2019 21:36
WOW-hjólin keypt úr þrotabúinu og viðræður um nýja hjólaleigu Ferðavenjur í Reykjavík eru ört að breytast að sögn ráðgjafa um vistvæna ferðamáta. Hann spáir því að rafdrifnum hjólum fjölgi um allt að helming á árinu miðað við innflutningstölur. Deilihjólin hafa verið keypt úr þrotabúi WOW air og til stendur að flytja inn rafdrifin deilihlaupahjól á næstunni. Hann segir borgina taka vel á móti þeim sem vilja stofna þjónustur sem þessar. 22.6.2019 13:40
Til skoðunar að opna kvennaathvarf á Norðurlandi Til skoðunar er að stofna kvennaathvarf á Norðurlandi. Verkefnastýra Bjarkarhlíðar segir því fylgja mikið rask fyrir konur og börn að þurfa að fara til Reykjavíkur til þess að flýja heimilisofbeldi. Tæpur fimmtungur þeirra sem leituðu í Kvennaathvarfið á síðasta ári komu af landsbyggðinni. 22.6.2019 13:00
Undanþágu hafnað þrátt fyrir að lambahryggur sé að klárast Viðbúið er að íslenskir lambahryggir seljist upp á landinu öllu á næstu vikum. Ósk um undanþágu frá tollum á innflutt kjöt vegna yfirvofandi skorts var þó hafnað. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu sakar afurðastöðvar um að hafa reynt að halda framboði í lágmarki til að geta hækkað verð á kjöti þegar eftirspurnin er mest 21.6.2019 19:00
Segir vantraust eftiráskýringu sjálfstæðismanna Formaður Miðflokksins gerir lítið úr vantrausti þingmanna Sjálfstæðisflokksins og hafnar því að hafa sett fyrirvara við samkomulag um þinglok. 14.6.2019 19:29
„Þegar menn voru byrjaðir að undirrita þá gerðist eitthvað“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist ekki vera alveg með það á hreinu hvers vegna samkomulag um þinglok náðist ekki á milli flokksins og ríkisstjórnarflokkanna í gær. 14.6.2019 12:04