Jón Dagur byrjaði í sínum síðasta leik fyrir AGF Lokaumferð dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta hófst í dag. Í dag var fall-umspilið klárað en á morgun kemur í ljóst hvaða lið verður meistari. Íslendingalið FC Kaupmannahafnar er með pálmann í höndunum. 21.5.2022 17:31
Albert lék í enn einu tapi Genoa | Leika í B-deildinni á næstu leiktíð Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Genoa er liðið tapaði 0-1 á heimavelli fyrir Bologna í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Genoa er fallið niður um deild og leikur í Serie B á næstu leiktíð. 21.5.2022 17:15
Sunderland upp í ensku B-deildina Sunderland vann Wycombe Wanderers 2-0 á Wembley í úrslitaleik umspils ensku C-deildarinnar í dag. Þar með er ljóst að Sunderland er komið aftur upp í B-deildina. 21.5.2022 16:15
Líkir úrslitaleiknum við hina fullkomnu kvikmynd en er sjálfri líkt við Iniesta og Busquets Alexia Putellas er prímusmótor Barcelona, besta fótboltaliðs í heimi. Hún mun stýra spili liðsins er það mætir Lyon í úrslitum Meistaradeildar Evrópu síðar í dag. Þar mætast nútíð og fortíð, besta lið heims gegn liðinu sem drottnaði yfir Evrópu til fjölda ára. 21.5.2022 09:00
Enska úrvalsdeildin hefur áhyggjur af hegðun áhorfenda Enska úrvalsdeildin hefur gefið frá sér tilkynningu þar sem segir að deildin hafi áhyggjur af hegðun áhorfenda sem mæta á leiki. Talsmaður deildarinnar fordæmir atvikin sem hafa komið upp en segir þó að þau séu framin af litlum minnihlutahóp. 21.5.2022 08:00
Dagskráin í dag: Albert þarf sigur, stórleikur á Englandi, landsleikur, Besta og NBA Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Hvaða lið kemst upp í ensku B-deildina, landsleikir í efótbolta. Besta deild karla, lokaumferðin í Serie A hefst, NBA og golf. 21.5.2022 06:00
Pereira og Zalatoris leiða á PGA | Woods í 62. sæti Tveir nokkuð óþekktir kylfingar leiða PGA-meistaramótið í þegar öðrum hring mótsins er nærri lokið. 20.5.2022 23:15
Segir leikmenn ekki vera vélmenni og að hann hafi þurft að taka ákvörðun Þýski varnarmaðurinn Antonio Rüdiger er á leið frá Chelsea á frjálsri sölu í sumar. Hann mun að öllum líkindum ganga til liðs við Spánarmeistara Real Madríd. Honum þykir leitt hvernig dvöl hans í Lundúnum endar. 20.5.2022 23:01
HK með fullt hús stiga | Augnablik og Haukar með sigra Þrír leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í kvöld. Augnablik, Haukar og HK unnu öll sína leiki. HK er með fullt hús stiga á meðan Augnablik og Haukar voru að vinna sinn fyrsta sigur í sumar. 20.5.2022 22:30
Kórdrengir með góðan sigur | Jafnt í Mosó og á Akureyri Alls fóru þrír leikir fram í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld. Kórdrengir unnu góða sigur á KV, Afturelding og Selfoss gerðu jafntefli í Mosfellsbæ og Þór Akureyri jafnaði í blálokin gegn Grindavík. 20.5.2022 22:01