Jafnt hjá Spánarmeisturum Real og bikarmeisturum Betis Lokaumferð La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, hófst í kvöld. Levante vann 4-2 útisigur á Rayo Vallecano og þá gerðu Spánarmeistarar Real Madríd markalaust jafntefli við bikarmeistara Real Betis. 20.5.2022 21:20
Roma tryggði Evrópudeildarsætið með fyrsta sigrinum síðan 10. apríl Lokaumferð Serie A, ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, hófst í kvöld með einum leik. Lærisveinar José Mourinho gulltryggðu Evrópudeildarsæti sitt á næstu leiktíð með 3-0 útisigri á Torino. Tvö markanna komu úr vítaspyrnu. 20.5.2022 20:55
Stórskytta Arsenal áfram í Lundúnum: „Verðum að vinna titla“ Vivianne Miedema, ein albesta knattspyrnukona heims, hefur ákveðið að endursemja við Arsenal þrátt fyrir að vera orðið við lið á borð París Saint-Germain og Barcelona. Hún segir að Skytturnar verði að gera betur. 20.5.2022 20:15
Gæti leikið í ensku B-deildinni á næstu leiktíð Samningur Gareth Bale við Spánarmeistara Real Madríd rennur út í sumar. Samkvæmt fjölmiðlum ytra gæti hann tekið slaginn með Cardiff City í ensku B-deildinni á næstu leiktíð. 20.5.2022 19:31
Hörður Björgvin yfirgefur CSKA Moskvu í sumar Landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon mun yfirgefa CSKA Moskvu í sumar. Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum rússneska félagsins. 20.5.2022 18:30
Rosengård enn ósigrað Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Rosengård unnu 3-0 útisigur á Eskilstuna United í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. 20.5.2022 18:01
Ráðherrar hræddir um að salan á Chelsea fari ekki í gegn Breska ríkisútvarpið greinir frá því að ráðherrar ríkistjórnar Bretlands telji að mögulega muni salan á enska fótboltafélaginu Chelsea ekki ganga í gegn. 17.5.2022 07:00
Dagskráin í dag: Ræðst hvaða lið kemst á Wembley Það er heldur rólegt á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Við bjóðum upp á undanúrslitaleik í umspili ensku B-deildarinnar í fótbolta og Queens á Stöð 2 E-Sport. 17.5.2022 06:00
Mbappé samið um kaup og kjör við Real Madríd Franski framherjinn Kylian Mbappé hefur náð samkomulagi við Real Madríd um að leika með liðinu á næstu leiktíð. París Saint-Germain heldur þó enn í vonina að stjörnuframherjanum snúist hugur og verði áfram í París. 16.5.2022 23:31
Hergeir til Stjörnunnar Hergeir Grímsson hefur samið við Stjörnuna og mun leika með liðinu í Olís deild karla í handbolta á næstu leiktíð. Stjarnan greinir frá þessu á samfélagsmiðlum sínum. 16.5.2022 23:00