Vill ekki að fólk oftúlki orð sín – stefnan sé sett á samflot Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, segir að ekki megi oftúlka orð hennar um að útiloka ekki neinn. Oddvitar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata hafi talað sig saman um að vera í samfloti í gegnum meirihlutaviðræður. 16.5.2022 17:53
Segir félagslegt húsnæði skilyrði og útilokar Viðreisn Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokks Íslands, segist ekki geta hugsað sér að vinna í meirihlutasamstarfi með Viðreisn og hún setur aukið félagslegt húsnæði sem skilyrði. 15.5.2022 02:45
Í-listinn með hreinan meirihluta samkvæmt fyrstu tölum Í- listi Ísafjarðarbæjar hlýtur skínandi góða kosningu samkvæmt fyrstu tölum og eru með hreinan meirihluta. Nóttin er auðvitað ung og endanleg niðurstaða liggur ekki fyrir. 15.5.2022 02:09
Oddvitarnir yfirgefa Efstaleiti vegna tafa á fyrstu tölum Oddvitar flokkanna sem bjóða fram í Reykjavík hafa yfirgefið höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins í Efstaleiti vegna tafa á fyrstu tölum í Reykjavík. Til stóð að tilkynna fyrstu tölur í höfuðborginni á miðnætti en ljóst er að einhver töf verður á því. 15.5.2022 00:29
Bjartsýn Hildur reiðubúin að mæta örlögum sínum Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagðist reiðubúin að mæta örlögum sínum þegar fréttastofa tók hana tali á kosningavöku Sjálfstæðisflokksins að Hilton Reykjavík Nordica. 14.5.2022 23:16
Vonast til að fella meirihlutann með fulltrúa Miðflokksins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, vitnaði í knattspyrnustjóra Liverpool, Jürgen Klopp, á kosningavöku Miðflokksins þar sem saman voru komnir allir frambjóðendur flokksins á höfuðborgarsvæðinu ásamt stuðningsfólki. 14.5.2022 22:47
Svöruðu kallinu og skjótast með atkvæði til „Sunny Kef“ Hvunndagshetjan Sverrir Helgason og hans föruneyti svöruðu ákalli sem komið var á framfæri á Twitter en koma þurfti einu utankjörfundaratkvæði frá Reykjavík til Reykjanesbæjar. 14.5.2022 21:56
Oddviti H-listans í skýjunum með söguleg úrslit Niðurstöður kosninganna á Svalbarðshreppi og Langanesbyggðar liggja fyrir en H-listi Betri byggðar hlaut 204 atkvæði (58,9%) en L-listi Framtíðarlistans 142 atkvæði (41,1%) 14.5.2022 21:22
Skipulagsmál efst í huga borgarbúa fyrir kosningar Skipulagsmál vega þyngst í huga Reykvíkinga í kosningunum samkvæmt nýrri þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar. Í samanburði við önnur sveitarfélög eru þeir óánægðastir með þjónustu sveitarfélagsins. Á landsbyggðinni eru atvinnumálin aftur á móti efst í huga kjósenda. 13.5.2022 13:33
Andstaðan við borgarlínu mest hjá eldri karlmönnum Ríflega 46% borgarbúa eru ýmist mjög eða frekar hlynnt borgarlínu og flestir treysta Samfylkingunni til að halda utan um samgöngumálin í borginni. Tæp 32% eru aftur á móti frekar eða mjög andvíg borgarlínu. Flestir sem setja sig upp á móti henni eru eldri karlmenn og íbúar austan Elliðaáa. 12.5.2022 12:07