„Þetta er bara að fara að versna og þetta mun versna hratt“ Yfirstandandi ópíóðafaraldur mun versna hratt ef ekki er brugðist við honum, segir deildarstjóri málaflokks heimilislausra hjá Reykjavíkurborg. Hún segir núverandi refsistefnu auka á jaðarsetningu notenda, meðferðarmöguleikar séu fáir og einhæfir og að umbylta þurfi núverandi löggæslustefnu. 28.4.2023 06:00
Eftirför lögreglu endaði á göngustíg á Völlunum Lögreglan veitti ökumanni eftirför á Völlunum í Hafnarfirði um fimmleytið í dag. Að sögn sjónarvotta spændi ökumaður gegnum göngustíga og keyrði loks fram af bílaplani niður á göngustíg. Í kjölfarið flúðu ökumaður og farþegi á fæti áður en lögregluþjónar handsömuðu þá. 27.4.2023 23:31
Bam Margera gaf sig fram Jackass-stjarnan Bam Margera gaf sig fram við lögreglu í Pennsylvaníu í morgun eftir að hafa verið eftirlýstur í fjóra daga fyrir að kýla bróður sinn. Margera var látinn laus úr varðhaldi gegn 50 þúsund dala tryggingu en má ekki eiga í samskiptum við föður sinn og bróður eða koma nálægt heimili sínu 27.4.2023 21:23
„Hér er um að ræða fullkominn forsendubrest“ Samband íslenskra sveitarfélaga telur að rammasamningur ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða sé vanfjármagnaður í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Um sé að ræða „fullkominn forsendubrest“ og íbúðaþörf næstu ára verði ekki fullnægt. 27.4.2023 20:39
OnlyFans-tvífari Kim Kardashian látin eftir lýtaaðgerð Áhrifavaldurinn og OnlyFans-stjarnan Ashten G sem var þekkt fyrir líkindi sín og Kim Kardashian lést eftir hjartaáfall sem hún fékk í kjölfar lýtaaðgerðar. 26.4.2023 23:22
Hugh Grant verður Úmpa-Lúmpa Hugh Grant mun leika Úmpa-Lúmpa í myndinni Wonka sem kemur út í desember. Myndin segir frá ævintýrum sælgætisjöfursins Willy Wonka áður en hann opnaði sælgætisgerðina. Ungstirnið Timothee Chalamet fer með hlutverk Wonka í myndinni. 26.4.2023 22:14
Rebekka Rún er tuttugu þúsundasti Akureyringurinn Akureyringar eru orðnir tuttugu þúsund eftir að stúlka kom í heiminn síðastliðinn föstudag. Foreldranir fengu heimsókn frá bæjarstjóra Akureyrar, blóm og gjafir en segja „bestu verðlaunin“ vera stúlkuna sjálfa sem mun hljóta nafnið Rebekka Rún. 26.4.2023 20:52
Magnús Ragnarsson nýr formaður Tennissambandsins Magnús Ragnarsson, leikari og framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum, er nýr formaður Tennissambands Íslands. 26.4.2023 20:08
Vill 700 þúsund króna sekt við hnífaburði á kvöldin Öryggis- og löggæslufræðingur segir nauðsynlegt að bregðast skjótt við til að koma hnífum af götum landsins. Hann telur að banna eigi hnífaburð „í margmenni“ frá sex á kvöldin til sjö á morgnanna og að sektir við slíku verði 700 þúsund krónur. Einnig leggur hann til bann á sölu allra hnífa nema eldhúsáhalda og verkfæra. 25.4.2023 23:41
Kim mætti til að styðja við fyrrverandi mág sinn Kim Kardashian sat á fremsta bekk þegar Los Angeles Lakers, lið Tristans Thompson fyrrverandi mágs hennar, spilaði við Memphis Grizzlies í nótt. Tristan á tvö börn með Khloe Kardashian, systur Kim, en samband þeirra hefur verið ansi stormasamt í gegnum árin. 25.4.2023 21:20