Hundrað ára dansari í Reykjanesbæ Þó hann sé orðinn hundrað ára gamall þá lætur hann það ekki stoppa sig við að dansa því það gerir hann með nokkrum hressum konum einu sinni í viku. Hér erum við að tala um Gunnar Jónsson, fyrrverandi sjómann í Reykjanesbæ. 7.9.2023 20:38
Milljarða framkvæmdir á fangelsinu á Litla-Hrauni Milljarða framkvæmdir eru hafnar við fangelsið á Litla Hrauni en þar á að fara að byggja nýtt þjónustuhús, nýja varðstofu og nýtt fjölnotahús. Dómsmálaráðherra kynnti sér framkvæmdirnar og fékk í leiðinni einkanúmer að gjöf frá fangelsinu með nafni sínu en hún má þó ekki nota númerið því önnur er með nafnið hennar á bíl sínum. 6.9.2023 20:05
Segir þörf á átaki til að fækka sauðfé á vegum í Öræfum og í Suðursveit Lausaganga sauðfjár er verulegt vandamál við þjóðveg eitt í gegnum Öræfin og í Suðursveit í Sveitarfélaginu Hornafirði. Kindurnar og lömbin liggja nánast á veginum og láta sér fátt um finnast þó ökumenn flauti og flauti til að koma fénu af veginum. 5.9.2023 08:04
Síðustu forvöð til að drekka sig fulla Elsti íbúa Hornafjarðar, Elínborg Pálsdóttir fagnar 100 ára afmæli sínu í dag. Hún segist stefna ótrauð á að verða 110 ára. 3.9.2023 20:06
140 þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í ágúst Um 120 þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón á Breiðamerkursandi í júlí og um 140 þúsund í nýliðnum ágústmánuði. Þjóðgarðsvörður segir ekki uppselt á staðinn en oft sé þröngt þar á þingi. 3.9.2023 13:02
83 ára með stórglæsilegan garð á Selfossi Einn fallegasti garðurinn á Selfossi, sem er meira og minna með fjölærum plöntum fær mikla natni og umhirðu frá eiganda sínum en það er 83 ára gömul kona, sem eyðir meira og minna öllum sínum stundum í garðinum. 2.9.2023 20:06
Vantar fullt, fullt af fleiri vinnandi höndum í Snæfellsbæ Mikill skortur er á fleiri vinnandi höndum í Snæfellsbæ því þar er svo mikill uppgangur og mikið að gerast, ekki síst í ferðaþjónustu. „Okkur vantar ofboðslega mikið af fólki í öll störf“, segir bæjarstjórinn. 2.9.2023 14:04
Réði mömmu sína og pabba í vinnu á Hellissandi Nýr veitingastaður í nýrri þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs á Hellissandi hefur vakið mikla athygli því veitingamaðurinn, sem á staðinn er aðeins tuttugu ára gamall. Hann er með tvo starfsmenn í vinnu en það eru mamma hans og pabbi. 1.9.2023 20:31
Nemendur læra um nærumhverfi sitt í Snæfellsbæ Mikið er lagt upp úr því í Grunnskóla Snæfellsbæjar að nemendur þekki sitt nánasta umhverfi og því er sérstök kennsla í átthagafræði þar sem farið er með nemendur í vettvangsferðir um sitt nærumhverfi. Skólinn fékk íslensku menntaverðlaunin á síðasta árið fyrir verkefnið. 30.8.2023 23:03
Berfættur bóndi Bóndi í Árnessýslu gengur til allra sinna verka berfættur og hefur að eigin sögn öðlast nýtt líf með því þegar stoðkerfið og andleg líðan er annars vegar. Hann hvetur fólk til að vera eins mikið berfætt og hægt er. 28.8.2023 20:06