Gerði 30 þúsund armbeygjur og hnébeygjur í júlí Kristgeir Kristinsson á Hellissandi kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að gera armbeygjur og hnébeygjur því hann gerði þrjátíu þúsund slíkar í síðasta mánuði. 27.8.2023 20:04
Mikil ánægja með nýju þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi Mikil ánægja er með nýju þjóðgarðsmiðstöð fyrir Snæfellsjökulsþjóðgarð, sem opnuð var í vor á Hellissandi. Þjóðgarðurinn er 183 ferkílómetrar að stærð og er fyrsti þjóðgarður landsins sem nær að sjó 27.8.2023 15:01
Regnbogi og „Kyssuskilti“ í Ólafsvík vekur mikla athygli Regnbogagatan í Ólafsvík við kirkju staðarins er sá ferðamannastaður í Snæfellsbæ, sem hefur slegið hvað mest í gegn hjá ferðamönnum. Þá er „kyssuskilti” líka við götuna, sem vekur mikla kátínu og athygli ferðamanna. 26.8.2023 20:05
Ókeypis kjötsúpa á Hvolsvelli í dag Unnendur íslensku kjötsúpunnar ættu að vera á Hvolsvelli um helgina því þar fer fram kjötsúpuhátíð. Fjölbreytt dagskrá er í boði og í dag er gestum og gangandi boðið upp á ókeypis kjötsúpu á miðbæjartúni staðarins. 26.8.2023 12:15
Langvían Moli í Vestmannaeyjum heldur að hann sé lundi Starfsfólk Sea Life Trust safnsins í Vestmannaeyjum eru í vandræðum með langvíu á safninu, sem heldur að hún sé lundi. Ástæðan er sú að starfsfólkið hefur farið með hana átta sinnum út á sjó til að freista þess að sleppa henni en hún kemur alltaf aftur og býður við dyr safnsins þegar starfsfólk mætir til vinnu á morgnana og heimtar að koma inn. 25.8.2023 21:05
„Afrekshugur” Nínu Sæmundsson kominn á Hvolsvöll Afsteypa af verki Nínu Sæmundsson, „Afrekshugur“ hefur nú verið komið fyrir í miðbæjargarðinum á Hvolsvelli en það var forseti Íslands, ásamt leikskólabörnum, sem afhjúpuðu verkið. Frumgerð verksins prýðir innganginn að Waldorf Astoria hótelinu í New York en sjálf er Nína er úr Fljótshlíðinni. 23.8.2023 19:31
Veiddi 34 punda lax við Tannastaði „Þetta er lang, langstærsti lax, sem ég hef fengið en ég veiddi hann á flugu, sem heitir „Black chost" við Tannastaði undir Ingólfsfjalli í gær. Hann hefur verið 32 til 34 pund en ég sleppti honum strax,” segir Grímur Arnarson, veiðimaður búsettur á Selfossi. 22.8.2023 21:15
Rafskutlur með sætum slá í gegn í Vestmannaeyjum Rafskutlur með sætum hafa slegið í gegn í Vestmannaeyjum í sumar þar sem farið er með ferðamenn á hjólunum í söguferðir um eyjuna. 21.8.2023 20:31
Hjólastólavinir leigðu sér þyrlu til að hitta mótorhjólavini sína Tveir vinir í hjólastólum, sem báðir slösuðust í sitt hvoru slysinu á mótorhjólum í byrjun sumars komu vinum sínum í BMW mótorhjólaklúbbnum heldur betur á óvart í gærkvöldi þegar þeir mættu á þyrlu í Galtalækjarskóg til að taka þátt í veislu klúbbsins. 20.8.2023 21:00
Hrútar þuklaðir á Íslandsmeistaramóti í hrútadómum Það verður mikið um þukl á Sauðfjársetrinu á Ströndum í dag því þar fer fram árlegt Íslandsmót þar sem hrútar eru þuklaðir í bak og fyrir. Þá verða nokkur úrvals líflömb frá bændum á Ströndum og í Reykhólasveit í vinning í happdrætti dagsins. 20.8.2023 12:31