Vilja jafna möguleika þeirra sem lokið hafa iðn- og starfsnámi Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um háskóla bíður nú umsagna í samráðsgátt stjórnvalda. Markmið frumvarpsins er að jafna möguleika framhaldsskólanema sem hafa lokið prófi af svokölluðu þriðja hæfnisþrepi í framhaldsskóla til háskólanáms. 17.11.2020 18:21
Unnið að skimun minka en ekkert smit greinst enn sem komið er Unnið er að því að skima alla minka á minkabúum landsins en enn hefur ekkert smit greinst. Þetta kemur fram í stöðusýrslu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. 17.11.2020 17:48
Hlaupari sektaður þrátt fyrir dauðsfall vinar Ónefndur hlaupari á yfir höfði sér 65 þúsund króna sekt fyrir að hafa brotið sóttvarnareglur eftir að hann tilkynnti að vinur hans hefði fallið til bana í ítölsku Ölpunum. 17.11.2020 17:35
70% fólks með „langvarandi Covid“ greinist með virknirýrnun líffæra Bráðabirgðaniðurstöður breskrar rannsóknar benda til þess að næstum 70% áður heilbrigðra einstaklinga sem glíma við langvarandi eftirköst vegna Covid-19 þjáist af einhvers konar rýrnun á virkni eins eða fleiri líffæra. 15.11.2020 23:34
Sitja í Drekanum og bíða eftir glugganum Ef veður og vindar leyfa verður fjórum geimförum NASA, geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, skotið á loft kl. 00.27 að íslenskum tíma. Um er að ræða samstarf við einkafyrirtækið SpaceX en geimfararnir munu ferðast til Alþjóðlegu geimvísindastöðvarinnar (ISS) í Dragon geimfari á Falcon 9 eldflaug. 15.11.2020 22:07
Mælir með kennaratyggjó Skjálftahrina eins og sú sem fannst í Hveragerði og nágrenni fyrr í kvöld er áminning um nauðsyn þess að yfirfara heimilið og kanna hvort það er öruggt með tilliti til jarðskjálfta. Þetta segir Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri Hveragerðisbæjar í Facebook-hópnum Hvergerðingar. 15.11.2020 21:12
Árni strípaður af Nova Árni Snævarr blaðamaður segir farir sínar ekki sléttar eftir viðskipti við fjarskiptafyrirtækið Nova en á 18 dögum var hann rukkaður um rúmar 76 þúsund krónur fyrir netnotkun. Árni greindi frá ævintýrinu á Facebook í dag en í samtali við Vísi sagði hann málið ekki snúast um sig persónulega, heldur þær spurningar sem það vekur um viðskiptahætti Nova. 15.11.2020 18:44
Eiga Ivanka og Jared afturkvæmt til New York? „[Forsetinn] var svo hræðilegur og ól á svo mikilli sundrung varðandi New York; sagði að borgin væri „martröð“ og að hún væri „tóm“ og búin að vera. Engin hérna mun gleyma því. Að snúa aftur eftir allt sem hann hefur sagt, það á ekki eftir að ganga.“ 14.11.2020 23:31
„Fjögur ár til viðbótar!“ Donald Trump Bandaríkjaforseti yfirgaf Hvíta húsið í morgun við lófatak, fagnaðaróp og flaut en hundruð stuðningsmanna hans söfnuðust saman í Washington í dag til að mótmæla meintum „stuldi“ á forsetakosningunum. 14.11.2020 21:40