Brenna heimili sín og flytja grafir Þorpsbúar í Nagorno-Karabakh kveiktu í húsunum sínum í gær og í dag en um helgina verður stjórn svæðisins sem um ræðir afhent Aserum eftir að hafa verið á höndum Armena í áratugi. Íbúar Kalbajar flýja nú svæðið eftir að deiluaðilar gerðu vopnahlé og ljóst var að Aserar tækju við stjórn á morgun. 14.11.2020 19:37
Handtekinn á Hlemmi vegna líkamsárásar Karlmaður var handtekinn á Hlemmi um kl. 16 í dag, grunaður um líkamsárás. Að minnsta kosti einn hlaut áverka eftir að hafa verið sleginn í andlitið af handtekna. Viðkomandi gistir fangageymslur lögreglu en ekki var unnt að ræða við hann sökum ölvunarástands. 14.11.2020 19:08
Íslendingar á Kanarí gagnrýna forstjóra Úrvals Útsýnar Stjórn Íslendingafélagsins á Kanarí gagnrýnir málflutning Þórunnar Reynisdóttur, forstjóra Úrvals Útsýnar, sem sagði í samtali við mbl.is fyrir helgi að aðstæður á Kanaríeyjum væru þannig að félagið sæi sér ekki annað fært en að fella niður allt flug þangað. 14.11.2020 17:46
Gjörningur til að gleðja og vekja athygli á sóttvörnum Nemendur og starfsmenn Réttarholtsskóla tóku sig til í morgun og stigu taktfastan dans í takt við lagið Jerusalema. Um var að ræða samtals 400 einstaklinga en í ólíkum sóttvarnahólfum, að sjálfsögðu. 13.11.2020 22:45
„Fullkominn stormur“ á Landakoti: Þrjár tegundir inn og engin loftræsting „Fullkominn stormur“ er hugtakið sem Lovísa Björk Ólafsdóttir, sérfræðilæknir í smitsjúkdómum og sýkingavörnum, notar um þær aðstæður sem urðu þess valdandi að hópsýking braust út á Landakoti í október. Tólf greindu hafa látist en hópsýkingin er enn ekki yfirstaðin. 13.11.2020 15:06
Ákveðins misskilnings gæti í umræðunni um jólaprófin í HÍ „Það gætir ákveðins misskilnings í þessu,“ segir Dr. Inga Þórsdóttir, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, um fréttir af óánægju nemenda með þá ákvörðun skólayfirvalda að halda staðpróf í desember. 12.11.2020 15:34
„Höfum aldrei lent í öðru eins“ „Þetta gekk rosalega vel hjá okkur og við höfum bara aldrei lent í öðru eins,“ segir Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi gjafavöruverslunarinnar Hrím, um söluna á svokölluðum Singles Day í gær en dagurinn er einn þriggja stórra netútsöludaga sem allir lenda í nóvember. 12.11.2020 11:37
Covid-19 ætti ekki að fæla fólk frá því að sækja sér jólatré „Staðan er nú bara eins og verið hefur; við erum að fá hópa og fella tré og selja í heildsölu. Ég held reyndar að í ár verði fólk kannski að plana með styttri fyrirvara, því ástandið er búið að vera eins og það er. Fólk er kannski ekkert að hugsa fram í tímann fyrr en næstu leiðbeiningar koma.“ 12.11.2020 08:02
Yfirvöld í öllum ríkjum segja kosningarnar hafa farið eðlilega fram New York Times hringdi á mánudag og þriðjudag í kosningayfirvöld í hverju einasta ríki Bandaríkjanna til að grennslast fyrir um möguleg kosningasvik. Svörin voru alls staðar á þá leið að ekkert hefði komið upp á sem hefði áhrif á niðurstöður forsetakosninganna. 11.11.2020 15:01
„Það er bara ekkert hægt að standa í þessu“ Umboðsmaður Alþingis segir þingmenn þurfa að gera það upp við sig hvort embættið eigi að geta sinnt svokölluðum frumkvæðisathugunum en vegna fjárskorts, og þar af leiðandi mannfæðar, sé ekkert ráðrúm til þess að óbreyttu. 11.11.2020 11:55