Fjármálaráðherra segist ekki hafa hvatt til sakamálarannsóknar Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra segist ekki vera að hvetja til sakamálarannsóknar á fyrirtækjum sem flytji inn áfengi og selji á Netinu, með bréfi sínu til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Dómsmálaráðherra gefur í skyn að með bréfinu hafi Sigurður Ingi haft pólitísk afskipti af störfum lögreglunnar. 12.6.2024 17:46
Á þriðja tug mála bíða afgreiðslu og óvissa um frestun þingfunda Forseti Alþingis er vongóður um að samkomulag takist á næstu sólarhringum um afgreiðslu mála fyrir þingfrestun. Rúmlega tuttugu mál væru það langt komin að þau ættu að ná afgreiðslu. Hins vegar væri ekkert því til fyrirstöðu að funda lengra inn í júnímánuð ef á þyrfti að halda. 12.6.2024 11:52
Spegilmynd af samfélaginu muni búa á Heklureit Heklureiturinn svokallaði í Reykjavík er að taka algerum stakkaskiptum. Ný íbúðarhús eru að rísa þar sem áður voru verkstæði. Framkvæmdastjóri Heklureits segir allt að 440 íbúðir munu rísa á reitnum og þær fyrstu verði afhentar haustið 2025. 11.6.2024 20:31
Ráðherra sendir lögreglu erindi vegna netsölu áfengis Fjármála- og efnahagsráðherra hefur sent lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu erindi vegna netsölu áfengis til neytenda hér á landi. Málið var til umræðu á Alþingi í dag. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins líkti heimsendingu á Brennivíni eins og hún er framkvæmd í dag við nútíma sprúttsölu. 11.6.2024 18:19
Ólafur Ragnar segir deilur um forsetaembættið endanlega afgreiddar Fyrrverandi forseti Íslands segir ágreining um verksvið forseta Íslands hafa verið leystan í nýafstöðnum forsetakosningum, þar sem allir helstu frambjóðendur hefðu í fyrsta skipti verið sammála um meginvaldsvið og verkefni embættisins. Stjórnarskráin hafi reynst embættinu vel. 11.6.2024 13:36
Macron veðjar á að Frakkar séu í áfalli Stjórnmálafræðingur segir forseta Frakklands greinilega veðja á að Frakkar séu í áfalli eftir uppgang hægri þjóðernissinna í nýafstöðnum evrópuþingskosningum, með því að boða strax til þingkosninga í Frakklandi. Þrátt fyrir gott gengi hægri flokka heldur bandalag miðjuflokka í kosningum til Evrópuþingsins. 10.6.2024 12:12
Samfylkingin með öll spil á hendi í stjórnarmyndun Samfylkingin gæti myndað að minnsta kosti fjórar útgáfur af ríkisstjórn ef kosið yrði í dag samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups sem birtur var í dag. 3.6.2024 21:15
Könnun Maskínu daginn fyrir kjördag staðfesti flugið á Höllu Tómasdóttur Könnun sem Maskína gerði daginn fyrir kjördag staðfesti að allar líkur væru á að Halla Tómasdóttir myndi bera sigur úr bítum í kosningunum. Maskínu þótti hins vegar ekki rétt að birta könnun á kjördag. 2.6.2024 12:31
Síðustu kannanir gefa fyrirheit um æsispennandi kosningar Þrjár fylgiskannanir voru birtar í gær. Sú fyrsta var könnun Maskínu fyrir fréttastofuna og greint var frá í hádeginu. Þar hefur Halla Tómasdóttir, sem verið hefur á mikilli siglingu, skotist upp að Katrínu Jakobsdóttur og mælast þær báðar með 24,1 prósent. 31.5.2024 06:32
Katrín og Halla Tómasdóttir hnífjafnar í nýrri könnun Maskínu Katrín Jakobsdóttir og Halla Tómasdóttir eru hnífjafnar samkvæmt nýrri könnun fyrir fréttastofuna. Marktækur munur er á fylgi þeirra og Höllu Hrundar Logadóttur sem nýtur næst mest fylgis á eftir þeim. Seinni kappræður fréttastofunnar vegna forsetakosninganna næst komandi laugardag verða í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi strax að loknum kvöldfréttum. 30.5.2024 12:01