Tekur bjartsýn en raunsæ við nýjum verkefnum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir segist spennt taka við nýjum verkefnum. Hún muni leggja sig allan fram í þau. Verkefnin séu þung, en augljós. Hún segir það í forgangi að halda áfram með sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. 14.10.2023 14:14
Sannfærður um að vikan hafi þétt raðir ríkisstjórnarinnar Formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja ræddu framtíð ríkisstjórnarinnar og erindi hennar eftir að Bjarni tilkynnti um afsögn sína. Þau telja sig enn eiga erindi og vilja ljúka verkefnum sem sett voru fram í stjórnarsáttmála fyrir tveimur árum. 14.10.2023 13:55
Hjartsláttur Bjarna róaðist eftir því sem sannfæringin varð meiri Bjarni Benediktsson segist hafa tekið endanlega ákvörðun um að færa sig í utanríkisráðuneytið í gær. Hann segist sáttur við ákvörðuna. Það verði með stólaskiptunum hægt að skapa frið um verkefnin sem framundan séu í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. 14.10.2023 11:51
Þingmennirnir mættir til Þingvalla Stjórnarþingmenn og ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru mættir til Þingvalla. Þangað ferðuðust þeir í rútu á vinnufund. Forsætisráðherra segir fundinn hafa verið boðaðan fyrir löngu, ráðherraskipti verði ekki rædd þar. 13.10.2023 11:14
Kemur vel til greina að Bjarni taki annan ráðherrastól Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknar, segir vel koma til greina að Bjarni Benediktsson taki að sér annan ráðherrastól. Hann segist virða ákvörðun Bjarna um að stíga til hliðar sem fjármálaráðherra. 13.10.2023 10:19
„Aðferðarfræði til að sýna vandlætingu á fráfarandi fjármálaráðherra“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar stungu saman nefjum fyrir þingfund í morgun og óskuðu eftir dagskrárbreytingu, þannig að að í stað þess að fundurinn hæfist á óundirbúnum fyirrspurnum eins og fyrst hafði verið ákveðið þar sem Bjarni Benediktsson sæti fyrir svörum yrði byrjað á liðnum fundarstjórn forseta. Undir þeim lið sendi stjórnarandstaðan svo Bjarna Benediktssyni tóninn. Þetta útspil var af stjórnarliðum kallað aumingjaskapur. 12.10.2023 21:01
Bjarni segir hrókeringar lítið ræddar: „Með stærri atburðum í mínu lífi“ Bjarni Benediktsson, fráfarandi fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að forsvarsmenn ríkisstjórnarflokkanna noti tilefnið nú til að ræða stöðuna á kjörtímabilinu og hvað sé framundan í samstarfinu. Lítið hafi verið rætt um ráðuneytaskipan. Hann segir atburði síðustu daga með þeim stærri í sínu lífi. 12.10.2023 12:57
Segir Bjarna ekki geta „bæði átt kökuna og étið hana“ Stjórnarandstaðan telur að afsögn fjármálaráðherra hljóti að þýða að hann hætti í ríkisstjórn. Ella sé um að ræða sýndarmennsku. Þá hafi forsætisráðherra brugðist í Íslandsbankamálinu. 11.10.2023 22:03
Telur að forsætisráðherra hefði átt að óska eftir afsögn fyrir löngu Fyrrverandi fjármálaráðherra telur að forsætisráðherra hefði átt að fara fram á að Bjarni Benediktsson segði af sér ráðherraembætti um leið og kom í ljós að faðir hans var á meðal kaupenda að hlut ríkisins í Íslandsbanka. Samkvæmt lögum hefði fjármálaráðherra átt að vita af aðild föður síns þegar hann samþykkti að selja hlutinn í bankanum. Þá myndi það hvergi gerast í nágrannalöndum að ráðherra sem segir af sér embætti sé samstundis orðaður við annan ráðherrastól. 11.10.2023 12:30
Furða sig yfir að rannsóknin nái ekki yfir allan tímann Fólk sem var vistað á Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins gagnrýnir að heimilið hafi ekki verið rannsakað allan þann tíma sem það starfaði. Vísbendingar séu um að börn hafi sætt illri meðferð þar allt til ársins 1979. Ráðherra býst við að sanngirnisbætur verði ákveðnar í vetur. 6.10.2023 22:22