

Það dregur úr rigningunni á Vestfjörðum og Ströndum upp úr hádegi í dag eftir mikið vatnaveður undanfarna daga.
Appelsínugul viðvörun á Vestfjörðum fellur úr gildi á miðnættin en hún hefur verið í gildi frá hádegi vegna mikillar úrkomu á svæðinu.
Tvö hjólhýsi hafa fokið út af veginum yfir Lyngdalsheiði nú í kvöld. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á Suðurlandi hafa þrjú eða fjögur hjólhýsi fokið út af vegum í umdæminu í dag.
Mikil rigningarspá gékk eftir í gærkvöldi og í nótt á Vestfjörðum. Grjót féll úr hlíðum með miklum drunum á Ísafirði síðdegis vegna úrkomunnar og kindur leituðu skjóls í Vestfjarðargöngum.
Rauði krossinn á Ísafirði opnaði fyrr í dag móttöku á Suðureyri vegna mikilla aurskriða og grjóthruns úr hlíðum fyrir ofan bæinn. Miðstöðin verður opin áfram í kvöld og í nótt vegna veðurs.
Björgunarsveitir á Vestfjörðum höfðu í nógu að snúast í dag vegna hvassviðris og úrhellisrigningar. Appelsínugul veðurviðvörun gildir á Vestfjörðum til miðnættis en þá tekur gul viðvörun við. Gular viðvaranir verða í gildi á öllu Norðurlandi fram á morgun.
„Það var hviðótt og það rigndi helvíti hraustlega,“ segir íbúi á svæðinu.
Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum hafa ítrekað verið kallaðir út vegna foktjóns í nótt og í morgun.
Starfsmenn tjaldstæðisins í Tungudal þurftu að aðstoða gesti að færa sig eftir að áin Buná flæddi yfir bakka sína í gærkvöldi.
Lögreglan á Vestfjörðum fylgdist vel með fólki á svæðinu í gær.
Vegfarendur og útivistarfólk er áfram beðið um að fylgjast vel með veðurspám, taka mark á aðvörunum Veðurstofunnar og kynna sér þær.
Mikil úrkoma hefur orðið á síðustu sólarhring víðs vegar um landið en appelsínugul veðurviðvörun hefur verið gefin út á Vestfjörðum vegna mikillar rigningar og hættu á skriðuföllum.
Varað er við mikilli rigningu og hættu á skriðuföllum í appelsínugulri viðvörun sem Veðurstofan hefur gefið út fyrir Vestfirði og gildir langt fram á annað kvöld. Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út vegna hvassviðris fyrir landið vestan- og norðanvert.
Gular veðurviðvaranir ráða ríkjum norðan til á landinu í dag og á morgun. Allt frá Breiðafirði til Norðurlands eystra er spáð allhvassri norðaustanátt. Veðrið verður verst á Vestfjarðarkjálkanum í dag þar sem hviður gætu farið upp í 23 m/s.
Gul veðurviðvörun tekur gildi á Vestfjörðum klukkan eitt í dag.
Veðrið verður verra á landinu næsta sólarhringinn en upphaflegar spár Veðurstofunnar gerðu ráð fyrir.
Ferðalangar og útivistarfólk er hvatt til þess að kynna sér veðurspár vel áður en lagt er af stað í ferðalög. Slæmt veður er til útivistar á landinu öllu næstu daga að sögn veðurfræðings og er göngufólk og fólk í tjöldum sérstaklega varað við aðstæðum á miðhálendinu þar sem gul viðvörun er í gildi.
Lægðin sem nálgast frá Grænlandshafi mun stjórna veðrinu næstu daga og hreyfist norðaustur yfir landið á morgun og hinn.
Þrátt fyrir nokkuð óvænt norðanskot þurfa landsmenn ekki að örvænta samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands.
Útlit er fyrir rigningu næstu daga í öllum landshlutum.
Hiti 10 til 20 stig í dag, og þá hlýjast norðaustantil.
Hiti á landinu í dag verður á bilinu 10 til 20 stig. Hlýjast verður á Suðausturlandi.
Hiti mun ná allt að 20 stigum suðaustanlands í dag og verður bjartviðri á Suðurlandi. Hins vegar verður skýjað norðaustantil og við vesturströndina með lítilsháttar vætu.
Spáð er allt að 21 stigs hita syðst á landinu og fremur björtu veðri. Gert er ráð fyrir norðvestlægri átt, víða 3 til 8 metrum á sekúndu, en 8-13 með suðurströndinni og á norðaustanverðu landinu.
Ivan Zaborovskiy, hinn sextán ára gamli markvörður Znamya Truda í Rússlandi, lenti heldur betur í því í gær er hann fékk eldingu í sig í þann mund sem hann var að fara taka útspark.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að stöku síðdegisskúrir muni láta á sér kræla á sunnanverðu landinu ef að líkum láti, en að öðru leyti sé ekki búist við úrkomu.
Hiti á landinu verður á bilinu 8 til 18 stig í dag.
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Suðausturlandið frá og með miðnætti.
Hæglætisveður verður víðast hvar á landinu í dag, hlýjast í innsveitum norðanlands. Þetta snýst þó við á morgun þegar kólnar þar, en hlýnar sunnanlands.
Fólk sem á leið um innsveitir Norðurlands í dag má búast við allt að 20 stiga hita á þeim slóðum.