„Þeir refsa fyrir öll mistök og þeir refsuðu vel í dag“ „Þetta var virkilega vont. Við bara grófum okkar eigin gröf með því að byrja leikinn afleitlega sóknarlega og komast ekki í takt í sókn,“ sagði Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA í handbolta, eftir risatap gegn Val í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi þeirra á milli. Lokatölur 39-21 fyrir Val. Handbolti 6. apríl 2026 20:43
KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram KR vann 4-2 sigur á Val í 32-liða úrslitum í Mjólkurbikar karla í fótbolta í Egilshöll síðdegis. Sigurinn var síst of stór þar sem KR var með öll völd á vellinum stærstan part. Íslenski boltinn 6. apríl 2026 20:15
Þroskamerki fyrir KR: „Það sem hefur vantað er andlegur styrkur Aron Sigurðarson skoraði tvö marka KR í góðum 4-2 sigri á Val í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í dag. Hann segir sigurinn vera þroskamerki fyrir hans menn. Íslenski boltinn 6. apríl 2026 20:04
„Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ 4-2 Tap Valsmanna fyrir KR í Mjólkurbikar karla í dag er afrakstur meiðslahrjáðs vetrar samkvæmt Hermanni Hreiðarssyni, þjálfara Vals. Hann er hundfúll að vera úr leik en segir margt jákvætt í leik sinna manna sem séu skemmra á veg komnir en aðrir. Íslenski boltinn 6. apríl 2026 19:50
Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, og Hörður Magnússon, sérfræðingur RÚV, voru vægast sagt ósammála um hvort markvörður KR hefði átt að fá rautt spjald í bikarsigrinum gegn Val í Egilshöll í kvöld. Íslenski boltinn 6. apríl 2026 19:44
„Þetta eru alltaf risastórir leikir“ Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, þekkir betur til en margur í Egilshöll þar sem hans menn mæta Val í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag. Hann hefur ekki áhyggjur af vorbrag á leik innandyra og segir ávallt von á hörku og skemmtun þegar liðin eigast við. Íslenski boltinn 6. apríl 2026 12:31
„Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, er spenntur að sjá hvaða áhrif breytingar hjá Val hafa á liðið. Honum finnst Valsmenn þó ekki jafn stórhuga og áður og segir það miður. Íslenski boltinn 6. apríl 2026 11:01
Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir Val 6. sæti Bestu deildar karla í sumar. Íslenski boltinn 6. apríl 2026 10:02
Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll Reykjavíkurslagur KR og Vals í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta hefur verið færður inn í Egilshöllina í Grafarvogi sökum slæmrar veðurspár. Allir leikir morgundagsins í bikarnum fara fram innandyra. Íslenski boltinn 5. apríl 2026 15:29
Uppgjör: Grindavík 79-73 Valur | Tóku stórt skref í átt að undanúrslitum í spennutrylli Grindavík er komið 2-0 yfir í einvígi sínu gegn Val í úrslitakeppni Bónus deildar kvenna í körfubolta eftir spennutrylli í Grindavík í dag sem lauk með sex stiga sigri Grindavíkur, 79-73. Körfubolti 4. apríl 2026 18:51
Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ „Íþróttamaður Vals 2025 eru allar þær konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið,“ skrifar Hafdís Renötudóttir, landsliðsmarkvörður í handbolta og leikmaður Vals, í Tiktok-myndbandi þar sem hún setur út á valið á íþróttamanni Vals um síðustu áramót. Handbolti 3. apríl 2026 07:01
Uppgjörið: Valur - Keflavík 75-78 | Keflavík stelur heimavellinum í fyrsta leik Valsmenn tóku á móti Keflavík í fyrsta leik liðana í 8-liða úrslitum Bónus deild karla í kvöld. Liðin sem enduðu í fjórða og fimmta sæti og því ljóst að baráttan yrði hörð. Körfubolti 2. apríl 2026 21:30
„Bara sorry, ég sé þetta ekki gerast“ Valur og Keflavík hefja í kvöld einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta, en þar eigast við liðin sem höfnuðu í fjórða og fimmta sæti deildarkeppninnar. Rýnt var í komandi einvígi í Bónus Körfuboltakvöldi. Körfubolti 2. apríl 2026 15:47
Segja hann koma úr efstu deild í Litháen en hann féll úr B-deildinni Valur tilkynnti um komu hins 22 ára gamla hollenska varnarmanns Myles Veldman í gærkvöldi en Valsmenn virðast þó ekki vera með það á hreinu í hvaða deild hann var að spila áður en hann kom á Hlíðarenda. Íslenski boltinn 1. apríl 2026 10:33
Hollenskur varnarmaður gengur í raðir Vals Myles Veldman, hollenskur varnarmaður, hefur skrifað undir samning við Bestu deildar lið Vals og mun spila með liðinu á komandi tímabili. Íslenski boltinn 31. mars 2026 22:32
„Dómarinn þarf að vera 100% viss um að þetta sé viljandi“ Jamil Abiad þjálfari Vals var svekktur með úrslitin í fyrsta leik Vals og Grindavíkur í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta. Stór ákvörðun dómara undir lokin hafði mikil áhrif á úrslitin. Körfubolti 31. mars 2026 21:26
Uppgjörið: Valur - Grindavík 55-59 | Hrifsuðu heimavöllinn til sín Grindavík hafði betur gegn Val er liðin mættust í fyrsta leik sínum í átta liða úrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Lokatölur 55-59 Grindavík í vil í spennuþrungnum leik þar sem lítið var skorað. Körfubolti 31. mars 2026 20:39
Valsmenn í undanúrslitaeinvígið á móti KA Deildarmeistarar Valsmanna fylgdu fordæmi KA-manna eftir og tryggðu sér sæti í undanúrslitum Olísdeildar karla í handbolta. Handbolti 29. mars 2026 19:36
Valskonur hnykluðu vöðvana í lokaumferðinni Deildarmeistarar Vals sýndu styrk sinn með því að leggja ÍBV að velli í lokaumferð Olís deildar kvenna. Lokatölur á Hlíðarenda 30-28. Handbolti 28. mars 2026 16:33
Þetta eru liðin sem mætast í úrslitakeppninni Deildarkeppninni lauk í Bónusdeild karla í körfubolta í kvöld og nú er ljóst hvaða félög mætast í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar. Körfubolti 26. mars 2026 21:31
Valur - ÍR 82-93 | Allt að sjóða upp úr þó enginn þyrfti neitt Það var mikill hiti í mönnum á Hlíðarenda í kvöld þegar Valur og ÍR mættust í lokaumferð Bónus-deildar karla í körfubolta, þó að liðin hefðu í raun ekki að neinu að keppa. Körfubolti 26. mars 2026 21:30
Sex félög pikkföst í sínu sæti en barist um þrjú laus sæti Lokaumferð Bónusdeildar karla í körfubolta fer fram í kvöld og baráttan snýst um þrjú laus sæti. Grindavík er orðið deildarmeistari en Grindvíkingar geta haft áhrif á fallbaráttuna. Körfubolti 26. mars 2026 11:33
„Ekki fallegur sigur og áttum hann eiginlega ekki skilið“ Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, gat leyft sér að anda léttar eftir torsóttan þriggja marka sigur gegn HK í framlengdum leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í handbolta í kvöld. Handbolti 25. mars 2026 22:22
„Djöfull er ég helvíti drullufúll“ „Mér fannst við bara eiga skilið að vinna,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari HK, eftir súrt tap liðsins gegn deildarmeisturum Vals í átta liða úrslitum Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Handbolti 25. mars 2026 21:57
Uppgjörið:Njarðvík - Valur 87-61 | Njarðvík stakk af í seinni hálfleik og tryggði annað sætið Njarðvík og Valur eigast við í lokaumferð Bónus deildar kvenna. Körfubolti 25. mars 2026 21:39
Uppgjörið: Valur - HK 42-39 | Deildarmeistararnir þurftu framlengingu Deildarmeistarar Vals þurftu á framlengingu að halda til að sigra HK, sem hafnaði í áttunda sæti Olís-deildarinnar, í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í handbolta í kvöld. Lokatölur 42-39 eftir bráðfjörugan leik. Handbolti 25. mars 2026 21:25
Hafði ekki fundið guð á Hlíðarenda en las svo Biblíuna Danski landsliðsframerhjinn, Kasper Högh, fyrrverandi leikmaður Vals og nú einn heitasti framherji Evrópu fann Guð eftir mikla erfiðleika á sínum ferli. Hann vonast nú til þess að hjálpa Dönum að tryggja HM sæti. Fótbolti 24. mars 2026 13:02
Segir óafsakanlegt að Kristófer spili ekki með landsliðinu Kristófer Acox hefur spilað vel með Val að undanförnu. Sérfræðingar Bónus Körfuboltakvölds vonast til að sjá hann spila aftur með íslenska landsliðinu en hann hefur ekki leikið með því í tvö ár. Körfubolti 23. mars 2026 13:31
Uppgjörið:Keflavík - Valur 85-88| Valur tryggði heimaleikjaréttinn í fyrstu umferð Keflavík og Valur hafa bæði verið að hökta nú þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af Bónus-deild karla í körfubolta. Körfubolti 19. mars 2026 21:55
Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Valskonur tryggðu sér deildarmeistaratitilinn um síðustu helgi og fylgdu því eftir með sigri á Akureyri í kvöld. Handbolti 18. mars 2026 19:49