„Það er ekkert högg, það er bara að rísa“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 2. október 2026 21:17 Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals huggar leikmann sinn. Vísir/Anton Brink Það var mikil sorg í herbúðum Vals þegar flautað var til leiksloka eftir 2-1 sigur gegn Fram í síðustu umferð Bestu deildar kvenna þegar ljóst var að liðið væri fallið niður um deild. „
Já, ætli ég flokki þetta ekki bara bara undir sorg. Leikmennirnir mínir eru auðvitað sorgmæddir og ég finn alveg fyrir sorginni,“ sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, eftir leikinn. Valur hóf fyrir tveimur tímabilum ákveðna vegferð þar sem liðið var yngt upp og nokkrir eldri og reynslumeiri leikmenn hurfu á braut. Aðspurður hvort endurskoða hefði þurft stefnuna sagði hann svo ekki vera. „Nei, nei. Þetta er stefnan sem við fórum í. Það gleymist kannski aðeins og kemur ekki nógu oft fram að við urðum náttúrulega aðeins yngri en við ætluðum okkur þar sem tvær urðu óléttar. En samt sem áður keyrðum við á þetta og við erum mjög stolt af stelpunum fyrir þetta tímabil. Í mínum huga eru tveir leikir sem fóru illa. Við erum að falla með 24 stig og það er pottþétt met, er ég alveg viss um.“ Hversu stórt högg er þetta fyrir kvennaboltann í Val? „Það er ekkert högg, það er bara að rísa. Ég stend hérna fyrir framan ykkur og tel mig hafa átt góðan fótboltaferil hjá mínu ástkæra félagi. Ég féll þrisvar sinnum með þeim og fór þrisvar sinnum með þeim upp. Svo hófst bara upprisan og ég hef unnið líka alla titla sem eru í boði á Íslandi“ „Allir leikmenn vita auðvitað hvað er í húfi í hverjum leik. Þær gáfu allt í þetta í dag, nákvæmlega það sem við vildum, og það skilaði sigri. Við stóðum við okkar. Ég get ekki stjórnað hvað gerðist hinum megin.“ Matthías á eitt ár eftir af sínum samningi hjá Val og hefur áhuga á að halda áfram með liðið í næstefstu deild. „Ég er með samning í eitt ár í viðbót og hef áhuga á að vera áfram hjá Val, klárlega,“ sagði Matthías að lokum.
Valur Besta deild kvenna Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Tapaði fyrir mótherja sem var 28 árum yngri Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Fékk batakveðjur frá nemendum móður hans Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Segir ekki mikil gæði vera hjá ökumönnum í Formúlu 1 Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld og Alonso mætir á Anfield Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla „Getum gert stórkostlega hluti ef við höldum áfram að vera einbeittar“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Sjá meira