

Tónlist
Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

Ágreiningurinn leystur og fagnað með tónleikaferðalagi
Aðdáendur Hipsumhaps geta tekið gleði sína á ný því platan, Lög síns tíma, er orðin aðgengileg á streymisveitunni Spotify á nýjan leik eftir að hafa verið fjarlægð í síðustu viku. Það vakti mikla athygli þegar nýjasta plata hljómsveitarinnar var fjarlægð sökum ágreinings á milli Fannars Inga Friðþjófssonar, forsprakka hljómsveitarinnar og plötuútgáfunnar Record Records.

Róðurinn varð þungur þegar plágan skall á
„Róðurinn varð ansi þungur um vorið þegar plágan skall á. Ég var fjölskyldumaður í námi og námslánin duga því miður skammt. Allt í einu var ég ekki með neina tónleika til að brúa þetta bil,“ segir tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manuel í viðtali við Vísi.

Ingó í stærra hlutverki en venjulega á Þjóðhátíð
Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, mun stýra Brekkusöngnum í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðhátíð.

Plaid og Roger Eno á leiðinni til landsins
Tónlistarhátíðin Extreme Chill fer fram í Reykjavík dagana 7. til 10. október en þetta er ellefta árið sem hátíðin er haldin.

Hundrað íslensk útilegulög fyrir ferðaþyrstan landann
Halló sumarfrí, sæla, ást og ævintýr. Önnur stærsta ferðahelgi ársins er nú handan við hornið og flesta ferðalanga farið að kitla í útileguhjartað. Talandi um útilegu...

Amma og afi eflaust með Bleikt og blátt í skápnum
„Ég byrjaði að hafa samband við pródúsera, fór að fylgjast með öðrum tónlistarmönnum og byrjaði svo að senda skilaboð, fékk náttúrulega engin svör,“ segir tónlistarkonan Saga B í viðtali við Harmageddon.

Hentu í ábreiðu af gömlum Jet Black Joe slagara
Einar Vilberg (NOISE), Tobbi Sig (Dr. Spock) og Doddi Thorvaldsson (trommari hjá Bubba ofl) tóku sig saman á dögunum og hentu ábreiðu af Jet Black Joe slagaranum My Time For You.

Sumarleyfislag Bítisins 2021: „Farinn í fríið“
Sumarleyfislag Bítisins á Bylgjunni fyrir árið 2021 var spilað í þætti dagsins. Lagið Farinn í fríið syngur Gulli Helga ásamt Völu Eiríks pródúsents þáttarins og Lilju Katrínar Gunnarsdóttir sem er augnablikinu í sumarafleysingum í þættinum.

Sony greiddi milljónir í sekt vegna hegðunar Quarashi í Tókýó
„Ég hef verið í tónlist frá því ég var ellefu ára og gerði lag fyrir kvikmyndina Veggfóður þegar ég var fjórtán ára,“ segir Steinar Fjeldsted, sem margir þekkja best sem Steina úr Quarashi. Hann fékk tónlistaráhugann snemma og byrjaði níu ára að hlusta á rapp.

Eins og að kaupa lottómiða
Tónlistarkonan Hildur hefur sótt þónokkur lagasmíða „workshop“ erlendis þar sem hún vinnur með fólki frá öllum heimshornum að tónlistarsköpun. Hún segir að mörg af þessum lögum líti aldrei dagsins ljós.

Mælginn og GKR sameina krafta sína
Tónlistarmaðurinn Mælginn var að gefa út nýtt lag sem ber nafnið Efstaleiti. Lagið er pródúserað af rapparanum GKR og nutu þeir aðstoðar við gítarleikinn frá hinum bandaríska pródúsent Max Back.

Record Records vísar ásökunum um vanefndir á bug
Plötuútgáfan Record Records hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að útgáfuréttur nýjustu plötu Hipsumhaps sé ennþá í þeirra höndum. Riftun einkaleyfissamnings af hálfu hljómsveitarinnar hafi verið ólögmæt.

„Guðs mildi að hún skuli fá þetta tækifæri“
Tónlistarmaðurinn Geir Ólafsson verður með annan fótinn í Kólumbíu á næstunni, þar sem kona hans og dóttir eru að flytja þangað. Geir segir að hún hafi ekki fengið vinnu hér á landi þrátt fyrir góða menntun.

Nýjasta plata Hipsumhaps fjarlægð af Spotify vegna ágreinings
Það hefur vakið athygli aðdáenda hljómsveitarinnar Hipsumhaps að nýjasta plata þeirra, Lög síns tíma, hefur verið fjarlægð af streymisveitunni Spotify. Platan kom út í síðasta mánuði.

„Peps“ Persson fallinn frá
Sænski tónlistarmaðurinn Peps Persson er fallinn frá, 74 ára að aldri. Umboðsmaður Perssons segir að hann hafi látist á laugardaginn, eftir að hafa glímt við veikindi um nokkurt skeið.

Skid Row-söngvarinn Johnny Solinger látinn
Bandaríski söngvarinn Johnny Solinger, sem var um árabil söngvari þungarokkssveitarinnar Skid Row, er látinn, 55 ára að aldri.

Kóngurinn er kominn aftur og „pillur og pain“ eru ekki annað en minning
Já, þeir eru að fokking tala um Can, drengurinn er bara barn…

Tileinkar móður sinni nýja lagið og opnar hjartað upp á gátt
Tónlistarmaðurinn Pétur Óskar Sigurðsson, sem margir þekkja sem Oscar Leone, gaf í dag út lagið Sjaldan er ein báran stök. Hann segir að þetta sé persónulegt lag og tileinkar það móður sinni.

Hjörtur Ingvi úr Hjaltalín heldur einleikstónleika
Hjörtur Ingvi Jóhannsson úr Hjaltalín leikur spunatónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfjarðarsveit þann 27. júní 2021 klukkan 16:00. Tónleikarnir eru hluti af sólóverkefninu 24 myndir.

Nýr listi með því heitasta í danstónlistinni fyrir sumarið
Glænýr PartyZone listi fyrir júní er kynntur og fluttur í nýjasta þætti PartyZone, sem fór í loftið á Vísi í dag.

Ed Sheeran hélt tónleika fyrir enska landsliðið
Undirbúningur enska landsliðsins fyrir leikinn gegn Þýskalandi í sextán liða úrslitum EM hófst á óhefðbundinn hátt, með tónleikum Eds Sheeran.

Tónlistarkonan Cell7: Kaflaskipti, nýtt lag og ný plata
“Bíddu, ha! Eru liðin tvö ár? Ég sem ætlaði aldrei að vera í pásu,” segir Ragna Kjartansdóttir í samtali við Vísi. Á miðnætti sendi hún frá sér lagið It's Complicated sem er fyrsta lag Cell7 af væntanlegri breiðskífu.

Söngur fyrir alla?
Söngur er órjúfanlegur hluti af íslenskri menningu. Það sést hvað best á öllum hinum frábæru kórum sem starfræktir eru út um allt land og fyrir alla aldurshópa.

Ferðalag Jógvans og Friðriks Ómars fór illa af stað
„Ferðalag okkar um landið þetta sumarið hófst í dag. Friðrik varð smá bílveikur eftir að Jógvan opnaði Eggjasamloku á Hellisheiðinni en við teljum að hann muni ná sér að fullu eftir góðan nætursvefn,“ segja þeir Jógvan og Friðrik Ómar um tónleikaferðalag sitt.

Skyndihjálpamaður ársins syngur eitt vinsælasta lag sumarsins
Sumarsmellurinn Sumardans hefur farið mikinn á útvarpsstöðvum landsins undanfarnar vikur og situr meðal annars í tíunda sæti á vinsældarlista Bylgjunnar en listinn er gefinn út vikulega.

Varð umboðsmaður Kaleo fyrir tilviljun
Sindri Ástmarsson hafði starfað sem plötusnúður og útvarpsmaður í dágóðan tíma þegar hann vildi leita á ný mið. Áður en hann vissi af var hann orðinn umboðsmaður hljómsveitarinnar Kaleo.

Arna Bára gefur út lag: „Ísland er bara ekki nógu stórt fyrir mig“
Fyrirsætan og OnlyFans stjarnan Arna Bára Karlsdóttir kallar ekki allt ömmu sína. Hún gefur út sitt fyrsta lag í vikunni og er nú þegar bókuð á tónlistarhátíðina Tomorrowland í Frakklandi.

Birgitta Líf gerist umboðsmaður hins dularfulla Húgó
Það virðist enginn geta svarað því hver tónlistarmaðurinn sem kallar sig Húgó er í raun og veru en tónlistarmaðurinn gaf út lagið Hvíl í friði fyrir tæpum tveimur vikum.

Gíneá-Bissá: Styrkur til könnunar á skapandi listgreinum í atvinnuskyni
Tveimur milljónum króna verður varið í forkönnun á vaxtarmöguleikum skapandi greina í Gíneu-Bissá.

JóiPé og Króli í hringferð um landið: „Fyrsta skipti sem að við seljum á okkar eigin tónleika“
Hipphopp-tvíeykið JóiPé og Króli hafa ákveðið að leggja land undir fót og halda ásamt hljómsveit í tónleikaferðalag hringinn í kringum landið.