

Tíska og hönnun
Allt það nýjasta úr heimi tískunnar og fréttir af sviði hönnunar.

Íslensk hönnun sem má borða
Í Bleika boðinu sem haldið var á vegum Krabbameinsfélagsins seldu og kynntu Þórunni Hannesdóttur og Herborgu Hörpu Ingvarsdóttur sem skipa hönnunarfyrirtækið FÆRIÐ bleika slaufuhlaupið sem er snilldarhugmynd sem þær létu verða að veruleika.

Fágað og fallegt
Fatamerkið Kalda hefur sent frá sér nýja fatalínu sem ber nafnið Hvörf. Katrín Alda Rafnsdóttir hönnuðurinn lýsir línunni sem fágaðri og kvenlegri.

Smíðaði eigið borðstofuborð
Heimili Kristjáns Brynjars Bjarnasonar og Erlu Bjargar Valgeirsdóttur prýða heimasmíðuð húsgögn í bland við gamalt og nýtt.

Á heimsmælikvarða
Íslensk-danska arkitektastofan KRADS er á meðal upprennandi arkitektastofa sem fjallað er um í nýrri bók sem hefur verið gefin út í tengslum við Tvíæringinn í Feneyjum.

Ilmvatn úr Eyjafjallajökli
„Ég held að þetta sé fyrsta íslenska ilmvatnið sem fer í almenna sölu,“ segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, oftast kennd við tískuvörumerkið Gyðju.

Sýndi fimmtíu flíkur á dag
Brynja Jónbjarnardóttir þykir ein efnilegasta fyrirsæta landsins í dag þrátt fyrir ungan aldur. Brynja sat fyrir á myndum fyrir vefverslun tískumerkisins Urban Outfitters í júní, en merkið er afskaplega vinsælt um allan heim.

Saga Sig þeysist á milli landa
Ég er bara í stuttri heimsókn hér heima og er að vinna tvö verkefni, eitt fyrir 66 gráður norður og annað fyrir Kron Kron, segir ljósmyndarinn Saga Sig sem búsett er í London þar sem hún stundar nám í tískuljósmyndun.

Sýnir jakka á Lady Gaga-sýningu í París
„Það er rosalega gaman að fá að taka þátt í þessari sýningu," segir fatahönnuðurinn Vera Þórðardóttir.

Haustlína Lacoste
Tvennir tímar mættust í haustlínu Lacoste, sem sýnd var á tískuvikunni í New York.

Vöktu hrifningu í París
Hönnuðir á bakvið íslenska vörumerkið Bility tóku þátt í stórri húsbúnaðarsýningu í París fyrir skemmstu. Íslenskt veggskraut og bókamerki í líki skordýra vöktu almenna hrifningu meðal sýningargesta.

Flottustu fatalínur áratugarins
Vefsíðan Style.com valdi tíu eftirminnilegustu tískusýningar áratugarins nú þegar fyrsta áratug 21. aldarinnar fer að ljúka.

Heilluð af Indlandi
Fatahönnuðurinn Una Hlín Kristjánsdóttir stofnaði merkið Royal Extreme fyrr á árinu og hafa viðtökurnar verið gríðarlega góðar. Una Hlín sótti meðal annars tískuvikuna í Kaupmannahöfn í ágúst og fékk nýverið boð á tískuvikuna í New York sem hefst þann 9. september næstkomandi.

House-leikkona hrifin af kjól frá tískumerkinu Emami
Leikkonan Jennifer Morrison, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt sem læknirinn Allison Cameron í sjónvarpsþáttunum House, var brúðarmær í brúðkaupi Anítu Briem. Brúðarmeyjar Anítu klæddust sérsaumuðum silkikjólum frá tískumerkinu Emami og að sögn Brynjars Ingólfssonar, framkvæmdastjóra Emami, var Morrison afskaplega hrifin af hönnun fyrirtækisins.

Kjólarnir á Emmy
Emmy-verðlaunin voru afhent í 62. sinn um helgina og skörtuðu stjörnurnar sínu fegursta er þær gengu eftir rauða dreglinum.

Kjóllinn sem allir eru að tala um
Leikkonan Christina Hendricks féll fyrir fjólubláa kjólnum eftir Zac Posen sem hún klæddist á Emmy verðlaunahatíðinni. Enginn vafi lék á að hann stal athyglinni umrætt kvöld.

Tvær fyrirsætukeppnir á Íslandi með stuttu millibili
Íslenskar stelpur sem ganga með fyrirsætudrauminn í maganum ættu að geta fundið sér vettvang til að láta ljós sitt skína því tvær fyrirsætukeppnir verða í Reykjavík með nokkurra mánaða millibili.

Íslensk tískustuttmynd á tískuvikunni í París
„Þetta er stuttmynd frekar en auglýsing, en tilgangurinn með henni er að kynna nýja sumarlínu Munda og verður myndin frumsýnd á tískuvikunni í París í lok september,“ segir Hrefna Hagalín sem framleiðir stuttmynd fyrir hönnuðinn Munda ásamt Kristínu Báru Haraldsdóttur. Myndin er saga ungrar stúlku sem gengur í gegnum ákveðið ferli og hittir ýmsa kynlega kvisti í leiðinni og fer fyrirsætan Brynja Jónbjarnadóttir með hlutverk stúlkunnar.

Ekkert mál með Beyoncé
„Mér finnst þetta í raun ekki merkilegt mál, enda er fatnaður af svipuðu tagi út um allt í dag," segir fatahönnuðurinn Ásgrímur Már Friðriksson þegar hann er inntur eftir því hvort hann telji að söngkonan Beyoncé Knowles hafi hermt eftir hönnun hans fyrir nýja haustlínu tískumerkisins Dereon, sem söngkonan á ásamt móður sinni.

Íslensk bikiní fyrir alla
Hera Guðmundsdóttir og Steinunn Björg Hrólfsdóttir eru hönnunartvíeykið LAUG, sem hefur hafið framleiðslu á íslenskum sundfatnaði.

Mikið hark að vera hönnuður í dag
Erna Óðinsdóttir og Sonja Bent eru á meðal þeirra íslensku hönnuða sem taka þátt í tískuvikunni í Kaupmannahöfn 12.-14. ágúst. Þær munu sýna hönnun sína á CPH Vision ásamt fjórum öðrum upprennandi hönnuðum, en CPH Vision leggur áherslu á nýja og framsækna hönnun.

Hönnuðir opna verslunina Kiosk Búðardóttur
„Þetta er samvinnuverkefni tíu hönnuða sem ákváðu að opna verslun á eigin vegum svo hægt væri að halda verðinu niðri. Okkur fannst líka sniðugt að standa saman í þessu þar sem það er minni fjárhagsleg áhætta fyrir hver

Íslenskur nemi í úrslitum í hönnunarkeppni
Hrefna Kristín Sigurðardóttir er komin í tíu manna úrslit í hönnunarsamkeppni, B4BC (Boarding for Breast Cancer), til styrktar lækningum gegn brjóstakrabbameini.

Andersen & Lauth í Top Model
„Þetta var í nýjasta þætti America‘s Next Top Model og það var eiginlega bara tilviljun að við rákum augun í þetta. Yfirleitt láta pressuskrifstofur mann vita af svona löguðu, en við erum ekki með slíka í Bandaríkjunum þannig það er erfiðara fyrir okkur að fylgjast með þar,“ útskýrir Gunnar Hilmarsson, eigandi hönnunarfyrirtækisins Andersen & Lauth, en keppandi í hinum geysivinsæla sjónvarpsþætti, America‘s Next Top Model, sást klæðast vesti frá Andersen & Lauth í einni myndatökunni.

Á samning hjá Dior og DVF
„Það var frekar furðuleg tilfinning að fá símtal frá Christian Dior í Frakklandi sem var að bjóða mér að koma á samning til sín,“ segir Aníta Hirlekar, 24 ára fatahönnunarnemi frá Akureyri.

Selur hönnun sína í Afríku
Vigdís Guðmundsdóttir, sem búsett er í borginni Puducherry á Suður-Indlandi, rekur fyrirtækið D&G Agency, en það framleiðir meðal annars hágæða fartölvutöskur fyrir konur auk fylgihluta og fatnaðar. Vigdís hefur verið með annan fótinn á Indlandi síðustu fjögur árin og kann vel við sig, enda er þar sumar allt árið um kring og fólkið yndislegt.

Vægast sagt mjög spúkí - myndband
„Það vinna hjá mér klæðskerar. Við vinnum saman með hönnun..." sagði Sara María Forynja eigandi verslunarinnar Forynja sem verður með skemmtilega uppákomu á morgun, laugardag. Með því að smella á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt má sjá viðtalið við Söru. Hér sýnir Sara okkur buxur og húðflúrin sín (óbirt efni). Viðburðurinn á Facebook.

Gyðja hannar fyrir Hagkaup
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, eigandi Gyðju Collection, vinnur nú að hönnun nýrrar fylgihlutalínu undir nýju nafni, sérstaklega fyrir Hagkaup.

Konungleg fatalína slær í gegn
Fatahönnuðurinn Una Hlín Kristjánsdóttir hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir hönnun sína, Royal Extreme, og hefur meðal annars hlotið nokkra umfjöllun í erlendum tískutímaritum og bloggum.

Ólafur Elíasson: Hrunið breytir því ekki að Ísland vantar enn tónleikahús
„Verkefni mitt var að huga meira að smáatriðunum: hvernig upplifun það væri að sjá og koma í húsið," segir Ólafur Elíasson myndlistarmaður og einn hönnuða Hörpu. Hann bendir á að Íslendinga hafi vantað tónleikahús í hundrað ár. Hrunið breyti því ekki.

Íslensk hönnun á útimarkaði í sumar
Fyrstu helgina í júlí fer af stað útimarkaður í portinu bak við danska sendiráðið á Hverfisgötunni. Markaðurinn ber nafnið Reykjavik Creative Market og mun bjóða upp á alls kyns íslenska hönnun. Markaðurinn mun vera í gangi allar helgar í júlí og ágúst, laugardaga og sunnudaga.