

Subway-deild karla
Leikirnir

„Leikur sem tapaðist á mörgum litlum hlutum“
ÍR-ingar sýndu það svo sannarlega í kvöld að þeir voru að berjast fyrir síðasta sætinu í úrslitakeppni Subway-deildarinnar í vor.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Haukar 73-65| Annar tapleikur Hauka eftir bikarmeistaratitil
Valur vann toppslaginn gegn Haukum í Subway-deild kvenna 73-65. Þetta var annar leikurinn í röð sem Haukar tapa eftir að hafa unnið VÍS-bikarinn. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík-Stjarnan 91-83 | Bikarmeistararnir töpuðu í Ljónagryfjunni
Njarðvíkingar tóku á móti nýkrýndum bikarmeisturum Stjörnnunnar með það markmið að minnka forskot Þórs Þorlákshafnar á toppi Subway-deildar karla og bæta fyrir stóran skell í síðasta leik liðsins í Ljónagryfjunni.

Benedikt: Sýndum mikið hjarta í leiknum
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, var afar ánægður með átta stiga sigur á bikarmeisturum Stjörnunnar 91-83.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-ÍR 89-86 | Sjáðu flautuþrist EC Matthews sem tryggði Grindavík sætan sigur
EC Matthews var hetja Grindavíkur í kvöld en hann tryggði liðinu sigur með flautukörfu gegn ÍR í Subway-deildinni. Von ÍR um sæti í úrslitakeppninni er afar veik eftir tapið.

Friðrik Ingi: Ég var ekki ánægður með dómgæsluna í kvöld
„Þetta var bara villa. Hann er með lítinn skurð á enninu sem blæðir úr þannig að það segir allt sem segja þarf,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari ÍR sem vildi villu í síðustu sókn ÍR í tapleiknum gegn Grindavík í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Keflavík 101-76 | Stólarnir unnið fimm í röð
Tindastóll fékk Keflavík í heimsókn í Síkið í kvöld. Heimamenn náðu góðum tökum á leiknum í upphafi en gestirnir voru aldrei langt undan og hótuðu endurkomu. Eftir að Keflavík kom muninum niður í 3 stig í þriðja leikhluta skildu leiðir og Tindastóll sigraði að lokum. Lokatölur 101-76.

„Ætlum að reyna að vinna rest og sjá hvað gerist“
Tindastóll vann mikilvægan sigur á löskuðu liði Keflavík í kvöld. Lokatölur 101-76. Sigtryggur Arnar Björnsson átti frábæran leik og endaði með 35 stig, átta fráköst, sjö stoðsendingar og þrjá stolna bolta. Af þessum 35 stigum komu 30 fyrir utan þriggja stiga línuna þar sem Arnar setti niður tíu af 18 skotum.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Vestri 112-91 | Blikar sendu Vestfirðinga niður um deild
Breiðablik vann mikilvægan 21 stigs sigur gegn Vestra í uppgjöri nýliðanna í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 112-91. Úrslitin þýða að Blikar eiga enn góða möguleika á að komast í úrslitakeppnina, en Vestramenn eru hins vegar fallnir niður um deild.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Þór Ak 129-84 | Skyldusigur hjá heimamönnum
Valur átti ekki í miklum vandræðum með að næla sér í tvö stig þegar liðið fékk Þór Akureyri í heimsókn í Origo-höllina að Hlíðarenda í 20. umferð Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld.

„Þeir gripu gæsina og gerðu það sem þeir gera best“
Pétur Már Sigurðsson og lærisveinar hans í Vestra háðu í kvöld lokabaráttu sína um að halda sæti sínu í Subway-deildinni að ári. Með sigri í kvöld hefði liðið ennþá átt tölfræðilegan möguleika á að halda sér uppi og sást það á leik þeirra framan af að það var allt undir. Í lokaleikhlutanum tóku heimamenn þó öll völd á vellinum, og vildi Pétur meina að hans menn hefðu einfaldlega klárað allt sem þeir áttu á tanknum í fyrstu þremur leikhlutunum

Umfjöllun og viðtöl: KR - Þór Þorl. 84-100| Áttundi deildarsigur Þórs Þorlákshafnar í röð
Þór Þorlákshöfn hristi af sér svekkjandi tap í bikarúrslitunum með góðum sigri á KR í Vesturbænum 84-100. Þetta var áttundi sigur Þórs Þorlákshafnar í röð í Subway-deildinni og er Þór í efsta sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir.

„Varnarleikurinn í seinni hálfleik ekki til fyrirmyndar“
KR tapaði fyrir Þór Þorlákshöfn á heimavelli með 16 stigum 84-100. Helgi Már Magnússon, þjálfari KR, var svekktur með tap kvöldsins.

Bikarmeistarasystkinin vita að þögnin hjá pabba segir svo mikið
Systkinin Lovísa Björt Henningsdóttir og Hilmar Smári Henningsson urðu bæði bikarmeistarar um helgina þegar Haukar og Stjarnan tryggðu sér sigur í VÍS-bikarnum.

Tveggja ára bið eftir launum: „Auðvitað leiðinlegt að þessi leið skyldi vera farin“
Körfuknattleiksmaðurinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson bíður enn þolinmóður eftir því að fá laun sín greidd frá því að hann var leikmaður ÍR keppnistímabilið 2019-20. Launadeila hans við ÍR fer fyrir Hæstarétt.

Mál Sigurðar og ÍR alla leið í Hæstarétt
Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni körfuknattleiksdeildar ÍR um að áfrýja dómi Landsréttar í máli Sigurðar Gunnars Þorsteinssonar sem dæmdar höfðu verið tæplega tvær milljónir króna vegna vangoldinna launa.

Haukur Helgi: „Ég er bara aumingi“
Haukur Helgi Pálsson, leikmaður Njarðvíkur verður eitthvað frá leiks vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik Njarðvíkur og Breiðabliks á dögunum. Haukur ferðaðist ekki með Njarðvíkingum til Ísafjarðar í gær þar sem liðið lék gegn Vestra.

Benedikt: Liðin tíð að eltast við auðveldari viðureign í úrslitakeppnini
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, gat ekki annað en verið ánægður með 33 stiga sigur á Vestra í kvöld, 82-115. Benedikt hafði áður kallað eftir því að hans menn myndu svara fyrir stórt tap liðsins gegn KR í síðasta leik.

Njarðvík sótti stigin tvö fyrir Vestan
Njarðvíkingar unnu öruggan 33 stiga sigur á Vestra á Ísafirði í eina leik kvöldsins í Subway-deild karla í körfubolta, 82-115.

„Eina sem við erum búnar að horfa á er bikarinn“
Blikar eru í dauðafæri á að komast í bikarúrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins. Breiðablik mætir 1. deildarliði Snæfells í undanúrslitum VÍS-bikars kvenna í körfubolta í dag.

„Ef maður fær galopið skot í horninu í jöfnum leik lætur maður það fljúga“
Davíð Arnar Ágústsson setti niður tvö stór skot undir lokin þegar Þór Þ. vann Val í undanúrslitum VÍS-bikarsins í körfubolta í kvöld. Leikurinn var mjög jafn en Þórsarar höfðu sigur á endanum.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Þór Þ. - Valur 90-85 | Þórsarar sterkari á svellinu undir lokin
Íslandsmeistarar Þórs Þ. eru komnir í úrslit VÍS-bikars karla eftir sigur á Val, 90-85, í Smáranum í kvöld. Þórsarar mæta Stjörnumönnum í úrslitaleiknum á laugardaginn.

Umfjöllun, viðtal og myndir: Stjarnan - Keflavík 95-93 | Stjarnan í bikarúrslit fjórða skiptið í röð eftir framlengdan leik
Stjarnan vann tveggja stiga sigur á Keflavík 95-93 í spennutrylli þar sem úrslitin réðust á loka sekúndunum í framlengingu. Þetta er í fjórða skiptið í röð sem Stjarnan kemst í bikarúrslit.

„Mætum vel gíraðir og vonandi með alla Höfnina með okkur“
„Okkur langar í þennan. Hinn kom í fyrra og núna er vonandi kominn tími á þennan,“ sagði Ragnar Örn Bragason um bikarmeistaratitilinn sem er mögulega í boði fyrir Íslandsmeistara Þórs Þorlákshöfn ef þeir vinna Val í undanúrslitum VÍS-bikarsins í körfubolta í dag.

„Væri gríðarlega stórt að stimpla nýtt ártal á vegginn“
Kristófer Acox segir spennandi fyrir Valsmenn að vera loksins komnir í baráttu um stóra titla. Valur mætir Íslandsmeisturum Þórs Þ. í undanúrslitum VÍS-bikarsins í körfubolta í kvöld.

„Líður eins og liðið sé á mikilli uppleið“
Arnþór Freyr Guðmundsson og félagar í Stjörnuliðinu mæta Keflavík í dag í undanúrslitum VÍS bikars karla í körfubolta.

„Það er alltaf hungur í Keflavík að fá titla í hús“
Valur Orri Valsson og félagar í Keflavíkurliðinu mæta Stjörnunni í dag í undanúrslitum VÍS bikars karla í körfubolta.

KR er kryptonít Benna Gum: Þrettán töp í síðustu fjórtán leikjum
Njarðvíkingar steinlágu á móti KR-ingum á heimavelli í gærkvöldi og gáfu um leið Þorlákshafnar Þórsurum frumkvæðið í baráttunni um deildarmeistaratitilinn.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - KR 90-125 | Heimamenn þurfa að bíða lengur eftir sigri á KR í Ljónagryfjunni
KR hefur haft tröllatak á Njarðvíkingum í Ljónagryfjunni síðustu ár og það var enginn breyting á því á þessu tímabili. KR sótti ótrúlegan 35 stiga sigur, 90-125, sem er jafnframt stærsta tap Njarðvíkur á tímabilinu.

Veigar Áki: „Það var kominn tími á að við myndum vinna einn leik“
Veikar Áki Hlynsson var með 100% skotnýtingu þegar hann gerði 15 stig ásamt því að taka 8 fráköst og gefa 4 stoðsendingar í 35 stiga stórsigri á Njarðvík í kvöld, 90-125.