
Kristrún hefur beðið Dag afsökunar
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar hefur beðið Dag B. Eggertsson afsökunar á að hafa kallað hann aukaleikara sem ekki væri ráðherraefni flokksins að loknum kosningum.
Fréttir frá störfum ríkisstjórnarinnar, Alþingis og stjórnmálum almennt.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar hefur beðið Dag B. Eggertsson afsökunar á að hafa kallað hann aukaleikara sem ekki væri ráðherraefni flokksins að loknum kosningum.
Sigurjón Þórðarson líffræðingur mun leiða lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Hann starfar sem framkvæmdastjóri hjá heilbrigðiseftirlitinu og sat á Alþingi árin 2003-2007. Sigurjón hefur setið í sveitarstjórn og unnið fjölbreytt störf, þar á meðal á sjó.
Hættulegir fangar sem losna úr fangelsi á næstunni eru eins og tifandi tímasprengjur vegna ágreinings um hver eigi að veita þeim stuðning, að sögn geðhjúkrunarfræðings. Maður sem varað var við að væri líklegur til að brjóta af sér aftur er sagður grunaður um líkamsárás og nauðgun skömmu eftir að hann lauk afplánun.
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingflokksformaður Flokks fólksins, mun leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Jónína Björk Óskarsdóttir, skrifstofustjóri Flokks fólksins, skipar 2. sæti listans. Áður starfaði hún sem forstöðumaður félagsstarfs aldraðra í Hafnarfirði. Jónína situr í stjórn Byggðastofnunar.
Stjórnmálafræðiprófessor segir það ranga notkun á hugtökum að blanda mögulegri spillingu við veitingu embætta saman við samsæriskenningu um „djúpríki“ sem stýri landinu á bak við tjöldin. Formaður Lýðræðisflokksins sagði djúpríkið staðreynd á Íslandi.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segist vera búin að biðja Dag B. Eggertsson afsökunar á einkaskilaboðum til íbúa í Grafarvogi sem komust í dreifingu. Dagur var kallaður aukaleikari í skilaboðunum og ekki ráðherraefni.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, mun leiða lista flokksins í Reykjavík suður í komandi alþingiskosningum. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir sálfræðingur skipar 2. sæti listans, en hún hefur setið sem borgarfulltrúi flokksins frá árinu 2018 og var áður meðal annars formaður Barnaheilla.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir alþingismaður og kennari, mun leiða lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi í komandi þingkosningum. Sigurður Helgi Pálmason safnvörður og þáttagerðarmaður skipar 2. sætið, Elín Fanndal félagsliði og varaþingmaður, skipar 3. sætið og Jónas Yngvi Ásgrímsson, stjórnarmaður hjá VR og miðstjórnarmaður ASÍ, það fjórða.
Fækka á áramótabrennum í Reykjavík úr tíu í sex. Erindi þess efnis var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær. Þær brennur sem lagt er til að verði lagðar af eru þær sem haldnar hafa verið við Rauðavatn, í Suðurfelli , Laugardal og Skerjafirði.
Píratar hafa sent frá sér samþykkta framboðslista fyrir þingkosningarnar sem fram fara 30. nóvember næstkomandi. Flokkurinn stóð fyrir prófkjöri fyrr í mánuðinum þar ljóst var hverjir myndi skipa efstu sætin á listum flokksins.
Flokkurinn Ábyrg framtíð hyggst bjóða fram lista í Reykjavíkurkjördæmi norður í komandi þingkosningum.
Frestur stjórnmálaflokkanna til að skila framboðslistum sínum til alþingiskosninganna 30. nóvember rennur út klukkan tólf á hádegi. Skila má listum rafrænt eða í Hörpu. Vísir verður í beinni útsendingu úr Hörpu þar sem kemur í ljós hvaða flokkar ná að skila listum.
Sigursteinn Másson stjórnarmaður í Dýraverndarsambandi Íslandi, DÍS, segir það ólýðræðislegt og valdníðslu að taka ákvörðun í starfsstjórn um að gefa út nýtt starfsleyfi til hvalveiða. Jón Gunnarsson aðstoðarmaður forsætisráðherra i matvælaráðuneytinu segir umsóknina til afgreiðslu í ráðuneytinu. Það megi ekki tefja afgreiðslu auk þess sem það þurfi að tryggja fyrirtækjunum fyrirsjáanleika. Hann hafi verið enginn síðustu tvö ár.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, skipar annað sæti á lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Eyjólfur Ármannsson þingmaður leiðir listann.
Það sem einkennir kosningar á Íslandi er að ýmsir flokkar virðast skyndilega detta niður á mjög einfaldar lausnir á mjög flóknum vandamálum nokkrum vikum áður en þær fara fram. Þessum lausnum er svo oft pakkað í glansandi umbúðir af markaðssérfræðingum og reynt að selja þær í skiptum fyrir atkvæði.
Sósíalistaflokkurinn birti í gærkvöldi framboðslista sína í öllum kjördæmum. Búið var að tilkynna um flesta oddvita áður. Sanna Magdalena Mörtudóttir er pólitískur leiðtogi flokksins á sviði Alþingis og oddviti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Flokkurinn bauð fyrst fram til Alþingis á landsvísu í síðustu kosningum 2021 en náði ekki manni inn. Flokkurinn á tvo menn í borgarstjórn og hefur boðið þar fram tvisvar og náð manni inn.
Þetta er spurning sem ég og eflaust margir Píratar eru spurðir reglulega, enda er þetta mjög góð spurning sem ég velti oft sjálfur fyrir mér. Málið er að enginn annar flokkur er, eins og staðan er núna, raunhæfur kostur. Alvöru breytingar.
Ökumenn þurfa í sumum tilfellum að greiða hátt í helmingi hærra gjald en ella ef þeir vilja fá ökuskírteini sitt á plasti eftir áramót. Gjald á útgáfu stafrænna ökuskírteina verður aftur á móti óbreytt.
Frestur til að skila inn framboðslistum til Alþingiskosninga rennur út á slaginu tólf í dag. Í gær bárust þær fréttir frá Landskjörstjórn að búið væri að skila inn 26 listum víðsvegar að af landinu ásamt tilskildum fjölda meðmæla.
Eggert Gunnarsson, dýralæknir og faðir Dags B. Eggertssonar, hefur látið í ljós óánægju sína með orð Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, þess efnis að Dagur sé aukaleikari og ekki ráðherraefni flokksins.
Stofnandi Lýðræðisflokksins hafnar því að vera bendlaður við öfgahyggju, og formaður Miðflokksins segir Sjálfstæðisflokkinn vera að færast til vinstri. Þá þykir formanni Viðreisnar fróðlegt að hlusta á málfutning flokkanna sem best megi lýsa sem „Litla- og Stóra-Miðflokki.“
Alþingispólitíkin dregur æ meira dám af knattspyrnu og kosningar eru stórmót þar sem keppt er í atkvæðasöfnun.
Græningjar eru hættir við að bjóða fram í alþingiskosningum 30. nóvember næstkomandi. Formaður flokksins segir innkomu Græningja hafa hrætt hina flokkana og haft áhrif á lista þeirra. Flokkurinn muni bjóða fram í næstu alþingiskosningum.
Samfylkingin nýtur mest trausts í flestum málaflokkum, nema í málefnum hælisleitenda þar sem flestir treysta Miðflokknum. Fleiri treysta Sjálftstæðisflokknum fyrir nokkrum málaflokkum en myndu kjósa hann.
Þegar ég heyri orðið útlendingur fæ ég alltaf vonda tilfinningu. Fyrir mér vísar orðið „út-lendingur“ til einhvers sem tilheyrir ekki eða er ekki hluti af samfélaginu, en ekki til einstaklings af erlendu bergi brotinn sem er fullgildur meðlimur samfélagsins.
„Við verðum að taka á þessu braski sem er á húsnæðismarkaði,“ segir Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar sem kynnti svokallað útspil flokksins í húsnæðis- og kjaramálum á Egilsstöðum síðdegis í dag.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur hjöðnun verbólgu, umfram það sem Seðlabankinn spáði í ágúst, auka líkur á því að bankinn lækki vexti við ákvörðun í nóvember. Hjöðnunin var drifin áfram af minni hækkun húsnæðis og segir ráðuneytið segir að spenna á húsnæðismarkaði virðist loks fara minnkandi.
Frestur til að skila inn framboðslistum til Alþingiskosninga rennur út á hádegi á morgun. Alls hefur 26 listum verið skilað ásamt tilskildum fjölda meðmæla til Landskjörstjórnar, og því ljóst að einhverjir flokkar eiga enn eftir að skila af sér gögnum, ætli þeir sér að bjóða fram í öllum sex kjördæmum.
Fréttastofa Vísis og Stöðvar 2 freistaði þess að fá oddvita þeirra flokka við Pallborðið sem sækja fylgi sitt á hægri væng stjórnmálanna til að skerpa á því hvað það væri sem sameinaði þá og um hvað þeir væru ósammála.
Formaður fjárlaganefndar segir ríkan vilja meðal þingmanna að framlengja heimild til rástöfunar séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán. Til stendur að afnema þá heimild um áramótin. Hann gerir ráð fyrir að fjárlög verði afgreidd um miðjan nóvember.