Kjarasamningar, gjaldfrjálsar skólamáltíðir, Sjálfstæðisflokkurinn og Hafnarfjörður Sjálfstæðisflokkurinn hefur fundið mál sem hann getur sameinast um á erfiðum tímum hjá flokknum! Það er baráttan gegn gjaldfrjálsum skólamáltíðum í grunnskólum! Þar dregur flokkurinn línu í sandinn! Því ber að mótmæla. Afstaða og stefna Samfylkingarinnar er alveg skýr; grunnskólinn á að vera gjaldfrjáls, þar með talið skólamáltíðir. Skoðun 15. mars 2024 12:00
Vonbrigði að stúdentum bjóðist ekki mótvægisaðgerðir samhliða gjaldskyldu Forseti stúdentaráðs HÍ segir vonbrigði að háskólaráð hafi ekki innleitt samgöngukort að evrópskri fyrirmynd fyrir nemendur samhliða ákvörðun um almenna gjaldskyldu á bílastæðum háskólans. Innlent 14. mars 2024 20:01
Sjálfstæðismenn segja ríkisstjórn og stéttarfélög ráðskast með sveitarfélögin Oddvitar Sjálfstæðisflokksins segja að ráðskast hafi verið með sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga í tengslum við nýgerða kjarasamninga. Formaður Sambands sveitarfélaga hafi ekki komið andstöðu þeirra við gjaldfrjálsar skólamáltíðir skýrt á framfæri við stjórnvöld og aðila vinnumarkaðarins. Innlent 14. mars 2024 19:20
Leggur til að ríkið hætti að ganga á eftir ábyrgðarmönnum námslána Ekki verður lengur gengið á eftir ábyrgðarmönnum námslána til innheimtu skuldar ef nýtt frumvarp háskólaráðherra nær fram að ganga. Ráðherra segir sanngjarnt að lántakandinn sjálfur beri ábyrgð á sínum skuldum og vill afnema ábyrgðarmannakerfið í heild sinni. Innlent 14. mars 2024 18:31
Fimmtíu milljónir árlega í rekstur bílastæða við HÍ Gjaldtaka á bílastæðum við Háskóla Íslands hefst í haust. Rektor háskólans segir tilganginn að draga úr bílaumferð um svæðið og auka kostnaðarvitund starfsfólks og nemenda um bílastæðin en Háskólinn hefur borgað fimmtíu milljónir árlega fyrir rekstur stæðanna. Innlent 14. mars 2024 14:07
„Mjög slæmt“ ef upphlaupið hefði neikvæð áhrif á vinnumarkaðssátt Ekki er ljóst hvort öll sveitarfélög landsins muni bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir í haust eins og samið var um í nýgerðum kjarasamningum, eftir „óvænt upphlaup“ Sjálfstæðismanna, að sögn formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hún telur það þó liklegt en hvert og eitt sveitarfélag eigi eftir að útfæra framkvæmdina. Innlent 14. mars 2024 12:15
„Óvænt upphlaup Sjálfstæðisfólks“ Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir gagnrýni 26 oddvita Sjálfstæðisflokksins á aðkomu hennar að gerð kjarasamninga söguskoðun sem ekki standist. „Þetta er óvænt upphlaup Sjálfstæðisfólks myndi ég segja.“ Innlent 14. mars 2024 08:51
Oddvitar Sjálfstæðisflokksins um allt land krefja Heiðu skýringa Tuttugu og sex oddvitar Sjálfstæðisflokksins í sveitarfélögum út um allt land gagnrýna formann Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir að fara gegn vilja sveitarfélaganna í aðkomu sinni að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Innlent 14. mars 2024 06:34
Gjaldtaka hefst á bílastæðum HÍ í haust Gjaldtaka mun hefjast á bílastæðum við Háskóla Íslands í haust. Gjald verður tekið fyrir notkun bílastæða milli átta og fjögur á virkum dögum og verður bílastæðum skipt í tvö gjaldsvæði. Innlent 13. mars 2024 18:16
Fjárfestum í öflugum rannsóknarinnviðum Mikilvægi vísindastarfs hefur orðið ljóst í áskorunum síðustu ára, þar sem helst má nefna eldsumbrot á Reykjanesskaga og veirufaraldur. Við höfum orðið vitni að viðbrögðum sem hafa skipt sköpum og byggja á vísindalegri nálgun. Skoðun 13. mars 2024 11:31
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir stórt framfaraskref í þágu barna Grunnskóla er ætlað það hlutverk að leggja grunn að virkri þátttöku barna í lýðræðissamfélagi og veita viðeigandi undirbúning og fjölbreytt tækifæri fyrir frekara nám eða störf á vinnumarkaði. Skoðun 12. mars 2024 11:01
Milljarðaplástur Það tókst! Aðilar vinnumarkaðarins og breiðfylkingin (fyrir utan VR) komust að samkomulagi og undirrituðu kjarasamninga. Til að það tækist þurfti samt aðkomu frá ríkisstjórninni upp á 80 milljarða króna - og hún svaraði kallinu. Skoðun 12. mars 2024 09:00
Innlit inn í furðuhúsið sem gleypti Grillið Furðulegt hús, sem risið hefur ofan á Hótel Sögu í stað Grillsins sögufræga, er aðeins til bráðabirgða. Inni í húsinu er verið að endurreisa Grillið í upprunalegri mynd eftir að miklar skemmdir komu í ljós á byggingunni sem fyrir var. Innlent 11. mars 2024 08:01
Heilaþveginn af því að peningar byggju til hamingjuna Eyvindur Ágúst Runólfsson hafði lokið námi í lögfræði við Háskóla Íslands en fann á sér að hann var ekki á réttri hillu í lífinu. Röð atvika leiddi til þess að hann hóf störf sem aðstoðarmaður á bráðamóttöku Landspítalans og þar með var ekki aftur snúið. Í kjölfarið breytti Eyvindur algjörlega um kúrs, sagði skilið við lögfræðina og stefnir á að hefja nám í hjúkrunarfræði næsta haust. Lífið 9. mars 2024 08:00
Meirihluti á bláþræði Bæjarstjórnarmeirihluti, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokks, Í Hafnarfirði hékk á bláþræði í gær, fimmtudaginn, 7.febrúar. Ástæðan var andstaða fulltrúa Sjálfstæðisflokksins við það hliðarákvæði kjarasamninga, að börnum í grunnskólum yrði boðnar gjaldfrjálsar máltíðir í skólum. Skoðun 8. mars 2024 15:30
Eins og verið sé að bæta kjör örvhentra umfram rétthentra Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir almenna mótstöðu hjá sveitarfélögum að gera skólamáltíðir fríar í grunnskólum landsins. Honum hugnast aðrar leiðir til að bæta kjör allra frekar en að taka afmarkaðan hóp fjölskyldna barna í grunnskóla út fyrir sviga. Það hafi verið hugmynd forsætisráðherra. Sveitarfélögin fari sínar eigin leiðir til að mæta tilmælum í kjarasamningi. Innlent 8. mars 2024 11:04
„Ekki fleiri íbúafundi!“ Hundruð grindvískra barna komu saman á fundi í Laugardalshöll í dag, þar sem þau ræddu stöðu sína vegna jarðhræringanna við heimabæinn. Innlent 7. mars 2024 22:15
Segir sveitarfélögin ekki græða þrátt fyrir auka tíu milljarða Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir gjaldfrjálsar skólamáltíðir í nýjustu kjarasamningum hafa staðið einna mest í sveitarfélögunum en það verði útfært með ríkinu. Þrátt fyrir að samningarnir feli í sér tíu milljarða auka fyrir sveitarfélögin segir hún þau ekki hagnast sérstaklega frekar en aðrir. Innlent 7. mars 2024 21:06
Aðgerðapakki stjórnvalda: Fríar skólamáltíðir, sérstakur vaxtastuðningur og hærri barnabætur Húsaleigulögum verður breytt og skýrari rammi settur um ákvörðun og fyrirsjáanleika leigufjárhæðar. Þá verður sérstakur vaxtastuðningur kynntur heimilunum á þessu ári. Þetta er meðal þeirra aðgerða sem stjórnvöld leggja til í aðgerðapakka til að koma til móts við aðila vinnumarkaðarins í gerð kjarasamnings, sem undirritaður var síðdegis. Innlent 7. mars 2024 18:24
Sjálfstæðismenn vilja ekki frían hádegismat Borgarráð samþykkti í dag að taka þátt í yfirlýsingu ríkisins og sveitarfélaga við gerð kjarasamninga til fjögurra ára sem felur meðal annars í sér að halda aftur af hækkunum á gjaldskrám þjónustu sem snýr að barnafjölskyldum og tryggja að skólamáltíðir verði gjaldfrjálsar. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja gjaldfrjálsar skólamáltíðir ekki góða leið til að tryggja barnafjölskyldum kjarabætur. Innlent 7. mars 2024 14:00
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir Ég er sammála ályktun sveitarstjórnarráðs Framsóknar sem kemur inn á að sveitarfélög tryggi gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum eins og ríkisstjórnin hafi samþykkt, enda er það í anda Framsóknar að setja fjölskyldufólk í forgang. Skoðun 7. mars 2024 07:31
Framsókn hvetur sveitarfélög til að styðja gjaldfrjálsar skólamáltíðir Sveitarstjórnarráð Framsóknarflokksins hvetur sveitarstjórnarfólk um land allt til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á vinnumarkaði, sem hafi það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum í landinu. Í ályktun ráðsins sem samþykkt var á fundi í gærkvöldi segir að lækkun vaxta auki kaupmátt allra heimila. Innlent 6. mars 2024 08:11
Er talmeinafræðingur í þínu teymi? Miðvikudaginn 6. mars halda talmeinafræðingar upp á Evrópudag talþjálfunar. Á þeim degi munu talmeinafræðingar um alla Evrópu leggja sitt af mörkum til að auka vitund almennings um störf sín og stöðu sinna skjólstæðinga. Yfirskrift dagsins þetta árið er „Talmeinafræðingar í teymi“. Skoðun 6. mars 2024 07:00
Foreldrar ungra reykvískra barna geta nú spáð fyrir um stöðuna á biðlistum Reykjavíkurborg hefur hleypt af stokkunum sérstökum Leikskólareikni sem ætlað er að sýna stöðu umsókna í leikskóla borgarinnar og geti foreldrar þannig fengið áætlaða spá um stöðu barna sinna á biðlista. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir gott að fá fram reikninn sem sýni þó jafnframt fram á þá alvarlegu stöðu sem uppi sé í leikskólamálum. Innlent 5. mars 2024 14:29
Sammæltust um starfslok í kjölfar rasískra ummæla Samkomulag um starfslok hefur verið gert við Helga Helgason, kennara við Menntskólann að Laugarvatni, vegna ummæla hans á samfélagsmiðlum. Helgi kallaði Bashar Murad meðal annars „grenjandi illa skeindan Palestínuaraba.“ Skólameistari segir starfsfólk og nemendur afar slegna vegna málsins og að Helgi hafi viðurkennt að hafa orðið á mistök. Innlent 5. mars 2024 10:48
Er menntakerfið okkar sprungið? Í síðustu viku heimsótti þingflokkur Viðreisnar grunnskóla og framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Suðurnesjum. Skoðun 5. mars 2024 08:01
Funda með nemendum vegna ummæla kennara: „Við erum eiginlega slegin yfir þessu“ Jóna Katrín Hilmarsdóttir, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni, segist slegin yfir ummælum kennara skólans, Helga Helgasonar, um framlag Bashar Murad í Söngvakeppni sjónvarpsins. Málið sé litið alvarlegum augum og dagur skólastjórnar ML hefur að sögn Jónu farið í að funda um ummælin. Innlent 4. mars 2024 22:17
Fjórtán sagt upp í einu hópuppsögn mánaðarins Fjórtán manns var sagt upp í einu hópuppsögn til tilkynnt var til Vinnumálastofnunar í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 4. mars 2024 12:45
Frír matur í skólum og lausn eftir fæðingarorlof til umræðu Leiðtogar breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins segja það ráðast af viðbrögðum sveitarfélaganna hvort hægt verði að skrifa undir nýja kjarasamninga á næstu tveimur sólarhringum. Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun Eflingar hefst að óbreyttu klukkan fjögur í dag. Innlent 4. mars 2024 11:47
Leggjast gegn álklæðningu á tveimur hliðum Laugalækjarskóla Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur lagst gegn umsókn byggingarfulltrúa borgarinnar þar sem sótt er um leyfi til að klæða suðausturgafl og suðvesturhlið Laugalækjarskóla með sléttri álklæðningu. Er vísað í að að setja klæðningu á hús þar sem ekki hafi verið gert ráð fyrir henni í upphafi hafi oft neikvæð áhrif á útlit húss. Þannig geti helstu stíleinkenni tapast. Innlent 4. mars 2024 11:12
Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent