
Lýsa yfir vantrausti á skipstjóra sinn
Skipverjar á togaranum Júlíusi Geirmundssyni hafa lýst yfir vantrausti á skipstjórann Svein Geir Arnarsson.
Skipverjar á togaranum Júlíusi Geirmundssyni hafa lýst yfir vantrausti á skipstjórann Svein Geir Arnarsson.
Enn ríkir óvissa um stöðu útflutnings á íslenskum fiski til til Bretlands til langframa eftir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu um áramót. Bráðabirgðasamkomulag gildir fram á mitt næsta ár.
Sveinn Geir Arnarsson, skipstjóri togarans Júlíusar Geirmundssonar, segist vera með stöðu sakbornings í rannsókn lögreglu á hópsmiti Covid-19 sem kom upp um borð í togaranum í síðasta mánuði.
Ákveðið var að sjópróf skyldi fara fram vegna hópsýkingar kórónuveiru um borð í togaranum Júlíusi Geirmundssyni þegar mál vegna þess var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Stéttarfélög áhafnarinnar fóru fram á sjópróf.
Samgöngumálin brenna á Vestfirðingum sem aldrei fyrr. Umræðan hefur enn og aftur blossað upp eftir óhapp á Hjallahálsi um síðustu helgi þar sem vöruflutningabíll valt. Á sunnanverðum Vestfjörðum vilja samtök atvinnurekenda fá nýjan Baldur strax.
Fiskibátur sem strandaði í Tálknafirði á sjöunda tímanum í kvöld er kominn á flot með aðstoð annars fiskibáts og heldur nú til hafnar í Tálknafirði.
Samherji er nú að láta breyta uppsjávarskipi á þann hátt að hægt verður að dæla fiski um borð og geyma lifandi í tönkum.
Í vor kynnti ASÍ áherslur sínar til uppbyggingar betra samfélags eftir Covid undir yfirskriftinni Rétta leiðin.
Hákarlar við Ísland virðast verða elstir allra hryggdýra á jörðinni, 200-300 ára gamlir. Og það sem meira er: Rannsókn á heila eins þeirra sýndi engin merki öldrunar þótt sá væri orðinn 245 ára gamall.
Þórður Snær segir ekki fara saman hljóð og mynd hvað varðar hegðun sumra þeirra sjávarútvegsfyrirtækja sem hafa ritað undir stefnu um samfélagsábyrgð.
Seðlabankinn var í dag sýknaður af 316 milljóna króna kröfu Samherja vegna Samherjamálsins svokallaða.
Baader hefur gengið frá samningum um kaup á meirihluta í Skaganum 3X. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskiptin eru háð venjubundnum fyrirvörum um samþykki opinberra aðila. Ráðgert er að þeim fyrirvörum verði aflétt í ársbyrjun 2021.
Gert er ráð fyrir að tekjur af veiðigjaldi á næsta ári verði um 7,5 milljarðar á næsta ári, samanborið við 4,8 milljarða áætlaðar tekjur á þessu ári.
Áætlað er að tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi verði 7,5 milljarðar króna á næsta ári. Sjávarútvegsráðherra segir þetta til marks um að veiðigjaldskerfið sé að virka.
Formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða segist búast við því að niðurstaða um hvort sjópróf verði haldin í tengslum við smit um borð í vestfirskum frystitogara muni liggja fyrir mjög fljótlega.
Stéttarfélög áhafnarinnar á Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270 hafa ákveðið að kæra framgöngu Hraðfrystihússins Gunnvarar til lögreglu vegna meðferðarinnar á skipverjunum í síðasta veiðitúr togarans. Stéttarfélögin vilja að sjópróf verði haldin.
Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar sem gerir út frystitogarann Júlíus Geirmundsson, nýtur traust stjórnar til að takast á við þau verkefni sem eru fram undan.
Lögreglan á Vestfjörðum mun ræða við áhöfn frystitogarans Júlíusar Geirmundssonar.
Mæti Ísland ekki kröfum Bandaríkjanna fyrir þann 1. mars næstkomandi lokast á útflutning flestra íslenskra fiskiafurða til Bandaríkjanna í byrjun árs 2022.
Þrír kafarar Landhelgisgæslunnar könnuðu ástand togarans Drangs ÁR 307 sem sökk í höfninni í Stöðvarfirði í morgun. Þá kom áhöfn varðskipsins Þórs upp mengunarvarnargirðingu til að hafa hemil á mögulegri olíumengun frá skipinu.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra segir það sorglegt hvernig í pottinn var búið um borð í frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni.
Yfirvélstjóri á togaranum Júlíusi Geirmundssyni kannast ekki við lýsingar á því að skipverjar sem voru veikir af Covid-19 hafi verið skikkaðir til að vinna um borð. Þá segist hann ekki hafa orðið var við að margir úr áhöfninni hafi orðið fárveikir.
Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar, segir að hópsmit áhafnar togarans Júlíusar Geirmundssonar hafi verið áfall.
Framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar segir fyrirtækið biðjast afsökunar á mistökum sem voru gerð þegar nær öll áhöfn togarans Júlíusar Geirmundsonar veiktist af Covid-19. Í yfirlýsingu segir hann þó „þungbært“ að sitja undir ásökunum um að ekki hafi verið hugað nógu vel að heilsu eða öryggi starfsmanna.
21 árs háseti á frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni, þar sem nær allir smituðust á Covid-19 á þriggja vikna túr, segir hegðun útgerðarinnar í veikindum skipverja í takti við fyrri hegðun gagnvart starfsmönnum hvað öryggi og heilsu starfsmanna snertir.
Lögreglan á Vestfjörðum skoðar nú hvort ástæða sé til að rannsaka mál skipverjanna um borð í togaranum Júlíusi Geirmundssyni.
Umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum segir að hún hefði viljað hafa frystiskipið Júlíus Geirmundsson nálægt höfn eftir að skipverjar tilkynntu henni um grun um kórónuveirusmit um borð.
Skipverjar á frystiskipinu Júlíusi Geirmundssyni segjast margir hverja hafa verið alvarlega veikir í þriggja vikna túr á miðunum. Þeir hafi verið með mikinn hita, öndunarörðugleika auk fleiri þekktra einkenna Covid-19 sjúkdómsins.
Helgi Seljan reynir ekki lengur að leyna andstöðu sinni gagnvart Samherja. Framganga hans á samfélagsmiðlum er með þeim hætti að hann virðist ekki hafa neinn áhuga á því að reyna að virðast hlutlaus út á við og skeytir þannig engu um trúverðugleika Ríkisútvarpsins.
Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum, segir tilmæli sín mjög einföld þegar komi að einkennum vegna Covid. Skipti þá engu hvort menn séu á sjó eða í landi. Menn eigi að koma í sýnatöku.