Hellisheiðin lokuð til vesturs Hellisheiðin verður lokuð til vesturs í dag vegna malbikunarviðgerða. Innlent 9. október 2026 08:38
Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lóðir sem voru úthlutaðar til annars vegar rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar og hins vegar til Félags múslima á Íslandi verða afturkallaðar. Málinu var fyrst um sinn frestað eftir að félögin komu af fjöllum. Innlent 9. október 2026 08:04
Maður réðst á annan og skemmdi bíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til þar sem maður réðist á annan og skemmdi bíl. Innlent 9. október 2026 06:38
Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Meirihlutinn í borgarstjórn hefur tilkynnt að fimmtán bílastæði í miðborg Reykjavíkur hafi verið eða verði tekin aftur í notkun á næstu dögum. Ýmist fá bekkir, blómapottar eða aðrir hlutir því að fjúka úr stæðunum. Innlent 9. október 2026 06:00
Máttu tæma lónið Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms sem taldi að Orkuveita Reykjavíkur hefði verið í rétti þegar hún lét tæma Árbæjarlón til frambúðar. Rétturinn viðurkenndi þó að íbúi hefði haft lögvarða hagsmuni af tæmingunni enda byggi hann við nyrðri hluta lónsins og ásýnd svæðisins breyttist mikið. Innlent 8. október 2026 21:10
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Ræðukeppni Menntaskólans í Reykjavík og Verslunarskóla Íslands hefur verið frestað fram til sunnudags eftir að knattspyrnuleikur milli skólanna fór úr böndunum í gærkvöldi. Í pósti til nemenda og forráðamanna segir hún atburðina vera með öllu óásættanlega og varpa skugga á gervallt skólasamfélagið. Nemendafélögin segjast munu draga lærdóm af atvikinu. Innlent 8. október 2026 19:45
Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Ekið var á gangandi vegfaranda í hverfi 104 í dag. Ökumaðurinn reyndist undir áhrifum lyfja við aksturinn, að sögn lögreglu, sem handtók hann og færði á lögreglustöð til frekari afgreiðslu. Innlent 8. október 2026 17:33
Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Rektor Menntaskólans í Reykjavík segir það miður hvernig fór á knattspyrnumóti MR og Verslunarskólans í gærkvöldi, sem virðist hafa farið úr böndunum. Einn fékk flösku í hausinn og kjaftshögg voru látin fljúga. Dagskrá í Hljómskálagarðinum í dag hefur nú verið frestað vegna uppákomunnar og skólastjórnendur skoða nú „hvernig við ætlum að afgreiða“ ræðukeppnina sem til stendur að halda á morgun. Innlent 8. október 2026 16:51
Vill fækka borgarfulltrúum um átta Borgarstjórn Reykjavíkur hefur skorað á Alþingi að leyfa sveitarfélögum að ráða fjölda kjörinna fulltrúa sjálf. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill fimmtán borgarfulltrúa aftur og sér ekki að fjölgun þeirra í tuttugu og þrjá hafi bætt málefni borgarinnar. Innlent 8. október 2026 12:21
Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biðlar til fólks um upplýsingar vegna skemmdarverka í Vesturbæ Reykjavíkur. Þrír bílar voru rispaðir. Innlent 8. október 2026 12:14
Skims opnar í Kringlunni Skims, undirfatamerki í eigu raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian, opnar tímabundið útibú í Kringlunni. Eigendur Mathilda standa að opnuninni en um er að ræða afar vinsælt vörumerki. Viðskipti innlent 8. október 2026 11:17
Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri Örtækni, hefur fest kaup á reiðhjólaverkstæðinu Borgarhjól sem var við Hverfisgötu. James Fleatcher, fyrrverandi eigandi, fylgdi með í kaupunum. Reksturinn er kominn í Hátún. Innlent 8. október 2026 10:43
Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Víðtæk bilun varð á ljósastaurum víða á höfuðborgarsvæðinu um áttaleytið í gærkvöldi. Samkvæmt svörum frá Veitum er um að ræða bilun í ljósnema sem nemur birtustigið úti. Samkvæmt svari átti að taka hann úr rekstri um áramótin. Hann verður gerður óvirkur fyrr og verður ljósunum handstýrt þar til nýtt kerfi er komið í notkun. Innlent 8. október 2026 10:16
23? Í Stjórnarskránni segir í 1. málsgrein 78. greinar: Sveitarfélög skulu sjálf ráða málefnum sínum - eftir því sem lög ákveða.Vissulega er ákveðin mótsögn í greininni; sveitarfélög skulu sjálf ráða sínum málum - þegar Alþingi er búið að leggja línur. Skoðun 8. október 2026 09:00
Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Fyrir réttum mánuði sagði Reykjavíkurborg upp leigusamningum við fjölmarga aðila í skapandi rekstri á þeim forsendum að brunavörnum væri ábótavant í þessum byggingum. Við leigjendur í Listhúsinu í Gufunesi höfum ítrekað bent á þessa vankanta undanfarin þrjú ár og boðist til að ráða bót á þeim málum á eigin kostnað í skiptum fyrir langtíma leigusamning. Skoðun 8. október 2026 07:32
Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Einn fékk flösku í höfuðið í kappleik á milli nemenda Menntaskólans í Reykjavík og Verzlunarskóla Íslands. Mikil ölvun og ólæti voru á viðburðinum. Innlent 8. október 2026 06:27
Niðurrif hafið á Laugasól Niðurrif á leikskólanum Laugasól við Leirulæk í Laugardal hófst fyrr í þessum mánuði. Ákveðið var í nóvember árið 2024 að rífa leikskólann en verkið var ekki boðið út fyrr en í sumar. Ekki liggur fyrir endanleg hönnun á nýjum leikskóla né hvenær framkvæmdir geta hafist. Innlent 7. október 2026 22:01
Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ljósastaurar hafa bilað víða um höfuðborgarsvæðið í kvöld. Fregnir hafa borist af bilunum á stofnbrautum og í heilu hverfunum. Innlent 7. október 2026 20:59
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Allar tiltækar stöðvar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru ræstar út að Hringbraut í kvöld þar sem kviknað hafði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í íbúðarhúsnæði. Innlent 7. október 2026 20:36
Bílvelta á Vesturlandsvegi Bíll valt á Vesturlandsvegi við Bauhaus síðdegis í dag í kjölfar áreksturs. Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir ekki mikil slys á fólki. Nokkrar umferðartafir voru á meðan bílunum var komið af veginum. Búið er að opna fyrir umferð. Innlent 7. október 2026 15:46
Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Tveir nýir veitingastaðir, Dom Brasserie & Bar og Lauf Bistro, hafa opnað á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju. Íslandshótel annast rekstur beggja staðanna, sem eru hluti af aukinni áherslu félagsins á veitingarekstur samhliða fjölgun hótela í rekstri þess, að því er fram kemur í tilkynningu. Viðskipti innlent 7. október 2026 13:04
Engar leyniskyttur gættu Rubio Um hundrað lögreglumenn komu að öryggisgæslu í tengslum við komu utanríkisráðherra Bandaríkjanna hingað til lands að sögn yfirlögregluþjóns öryggis- og greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Hann segir ákvörðun um vopnaborð liggja hjá íslenskum yfirvöldum og byggi á áhættumati hverju sinni. Innlent 6. október 2026 18:02
Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, og Fanney Kr. Hermannsdóttir, eiginkona hans, opna á morgun, miðvikudaginn 7. október klukkan 16:30, nýsköpunar- og þekkingarsetrið Arctell Sandvík að Neshaga 16 í Reykjavík. Innlent 6. október 2026 14:52
Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Bjarni Guðjónsson, sem fer fyrir íþrótta- og útilífsráði Reykjavíkurborgar, hefur svarað Brynjari Karli Sigurðssyni körfuboltaþjálfara og segir það úr vegi að verið sé að hrekja íþróttafélagið Aþenu úr Austurbergi. Innlent 6. október 2026 12:49
Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Samtök um bíllausan lífstíl leggjast á móti áformum meirihlutans og Miðflokks í umhverfis- og skipulagsráði um að bæta við hægribeygjuframhjáhlaupi þegar ekið er af Bæjarhálsi yfir á Höfðabakka til norðurs. Innlent 6. október 2026 11:39
Reykjavík beygir af Það er í lagi að vera ósammála. Pólitíkin væri líka frekar gagnslaus ef að kjörnir fulltrúar skiptust ekki reglulega á skoðunum og deildu um þær. Skoðun 6. október 2026 09:31
„Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Rapparinn Gaukur Grétuson, betur þekktur sem GKR, er snúinn aftur til landsins eftir fimm ár í Noregi. Blankheit, iðandi íslensk tónlistarsena og frábær vinna með góðum vini drógu Gauk aftur til landsins og heldur hann tíu ára afmælistónleika plötunnar GKR í Iðnó þann 10. október næstkomandi. Sjálfur á hann von á því að margir séu búnir að gleyma honum en lofar trylltum tónleikum. Tónlist 6. október 2026 07:03
Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur. Einn var handtekinn. Innlent 6. október 2026 06:20
Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Brotist var inn í að minnsta kosti fjóra bíla í þremur hverfum höfuðborgarsvæðisins í dag og í eina verslun. Þá var ráðist á leigubílstjóra í Hlíðunum. Innlent 5. október 2026 23:06
Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Tónlistarkonan Ice Spice og leikkonan Millie Bobby Brown nutu sín á Íslandi ef marka má Instagram-færslur stjarnanna. Saman slökuðu þær á í sjóböðunum í Hvammsvík. Lífið 5. október 2026 22:20