Borgarstjóri lofar einni til tveimur Vínbúðum í miðbænum Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fullyrðir að áfram verði verslun á vegum ÁTVR í miðborg Reykjavíkur. Vínbúðinni í Austurstræti verði ekki lokað nema ein til tvær aðrar minni verslanir hafi verið opnaðar í miðbænum. Neytendur 6. apríl 2022 10:54
Borgarstjóri vaknar í íbúðalausri borg Borgarstjóri skrifar grein í Fréttablaðið í gær sem hlýtur að vekja mikla eftirtekt enda er eins og hann sé að vakna upp af værum svefni þegar kemur að húsnæðismálum. Í grein sinni kallar hann eftir sérstökum húsnæðissáttmála og virðist vera að átta sig á því að staðan á húsnæðismarkaði sé með ólíkindum. Skoðun 6. apríl 2022 09:31
Tennisvöllur Kínverja í Garðastræti má muna sinn fífil fegurri Það er óhætt að segja að umdeildur tennisvöllur við Garðastræti 41 sé kominn til ára sinna. Völlurinn var byggður af kínverska sendiráðinu á Íslandi í upphafi aldarinnar í óþökk nágranna. Lítil starfsemi er í húsinu og enginn sést með tennisspaða í hönd í mjög langan tíma. Innlent 6. apríl 2022 09:00
Allt að 170 flóttamenn borða saman á hverju kvöldi í Guðrúnartúni Samtökin Flottafólk, sem stofnuð voru til að bjóða flóttafólki frá Úkraínu kvöldmat og samkomuaðstöðu, taka á móti allt að 170 manns á hverju kvöldi í mat. Forsvarsmaður verkefnisins segir augljóst að fólkið þurfi á miðstöðinni að halda til að ræða málin. Innlent 5. apríl 2022 22:01
Meirihlutinn í Reykjavík fallinn og Framsókn í stórsókn Meirihlutinn í Reykjavík er fallinn samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna, jafnvel þótt Sjálfstæðisflokkurinn tapi tveimur borgarfulltrúum frá síðustu kosningum. Framsóknarflokkurinn er í stórsókn og fengi þrjá borgarfulltrúa. Innlent 5. apríl 2022 19:31
Undirbúa hátíð vegna hálfrar aldar afmælis einvígis Fischers og Spasskís Heimsmeistarinn í skák, Magnus Carlsen, er meðal þeirra sem ætla að heiðra Ísland í tilefni þess að hálf öld verður liðin frá því Bobby Fischer og Boris Spasskí háðu „einvígi aldarinnar“ í Laugardalshöll. Aldrei áður hafði nafn Reykjavíkur komist eins rækilega í heimsfréttirnar eins og þær vikur sumarið 1972 sem þeir Fischer og Spasskí tefldu um heimsmeistaratitilinn í skák á tíma þegar kalda stríðið milli stórveldanna var í hámarki. Innlent 5. apríl 2022 18:36
Segir að orðræða XD í orkumálum sé „þreytt og hálfóþolandi“ Á fundi borgarstjórnar í dag var tekist á um orkumál en Eyþór Laxdal Arnalds borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins mælti fyrir tillögu sem miðar að því að borgarstjórn álykti um að hvetja Orkuveitu Reykjavíkur til að kanna virkjanamöguleika á starfssvæði OR. Fram undan væru orkuskiptin sem kölluðu á mun meiri raforkuframleiðslu auk þess sem bætt orkuöryggi væri brýnna í ljósi alþjóðamála. Innlent 5. apríl 2022 17:38
Ítrekuð slagsmál og hópslagsmál í miðborginni Ítrekað kom til slagsmála og hópslagsmála í miðborg Reykjavíkur rétt fyrir lokun veitingastaða í gærkvöldi. Innlent 5. apríl 2022 07:08
Innviðaráðuneytið í hart við borgina vegna Skerjafjarðar Innviðaráðuneytið hefur vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Skerjafirði tilkynnt borgarstjóra að hverskyns aðgerðir af hálfu borgarinnar sem skerða rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar séu í andstöðu við tveggja ára gamalt flugvallarsamkomulag samgönguráðherra og borgarstjóra vegna Hvassahrauns. Innlent 4. apríl 2022 22:44
Stærsta herskip sem sést hefur á Íslandi við bryggju í Reykjavík Stærsta herskip sem komið hefur til Íslands og flaggskip breska sjóhersins, flugmóðurskipið Prince of Wales, verður í Reykjavík fram á föstudag. Koma skipsins tengist þó ekki varnaræfingunni Norður-Víkingi heldur er liður í reynslusiglingum skipsins um Norður-Atlantshaf. Innlent 4. apríl 2022 20:42
Hundrað kílómetrar af skjölum útistandandi Þjóðskjalasafnið sér fram á mikla tæknivæðingu á næstu árum og segir öld pappírsins lokið. Fyrst verður þó að innheimta fjölda skjala sem hafa ekki skilað sér til safnsins og gæti safnkosturinn tvöfaldast við það. Innlent 4. apríl 2022 20:08
Ný móttökumiðstöð fyrir flóttafólk var opnuð í Reykjavík Ný móttökumiðstöð fyrir flóttafólk hefur opnað í Reykjavík þar sem Domus Medica var áður til húsa. Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra segir mikilvægt að flóttafólkið geti leitað allrar nauðsynlegrar þjónustu á einum stað. Innlent 4. apríl 2022 19:58
Landsréttur klofinn í bótamáli vegna blöðruboltaslyss leikskólakennara Landsréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms í máli leikskólakennara sem hlaut alvarlega áverka í september 2016 en ágreiningur var milli aðila málsins um hvort slysið hafi átt sér stað í vinnutíma eða frítíma. Tveir af þremur dómurum við Landsrétt töldu að ekki væri um vinnuslys að ræða en einn skilaði sératkvæði þar sem hann taldi að fallast ætti á kröfu konunnar. Innlent 4. apríl 2022 12:20
Þessar götur verða malbikaðar í Reykjavík á árinu Malbikað verður alls fyrir 1.340 milljónir króna í Reykjavíkurborg í sumar. Er það hækkun um 200 milljónir frá því sem var áður gert ráð fyrir í áætlun. Ástæða þess er aukið niðurbrot slitlaga, einkum vegna veðurfars í vetur. Innlent 4. apríl 2022 11:59
Besta-spáin 2022: Meðvindurinn breyttist í mótvind Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fram tólfta og neðsta sæti Bestu deildar karla í sumar. Íslenski boltinn 4. apríl 2022 10:01
270 metra langur prins leggur að bryggju í Reykjavík Breska flugmóðurskipið HMS Prince of Wales siglir nú inn til hafnar í Skarfabakka. Vera skipsins er alls ótengd varnaræfingunni Norður-Víkingi sem stendur yfir hér á landi. Innlent 4. apríl 2022 08:51
Kviknaði í tveimur bílum í Árbænum Nokkur erill hefur verið hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðasta sólarhringinn en dælubílar voru sex sinnum kallaðir út. Innlent 4. apríl 2022 07:19
Framhaldsskólaleikarnir: Sjáðu Tækniskólann tryggja sér titilinn annað árið í röð Tækniskólinn tryggði sér sigur á Framhaldsskólaleikum Rafíþróttasamtaka Íslands með sigri gegn FVA í úrslitaviðureigninni síðastliðinn fimmtudag. Rafíþróttir 3. apríl 2022 23:00
Með skilaboð til Íslendinga: „Hjálpin sem þið hafið veitt okkur gleymist aldrei“ Vesturbæingar og fyrirtæki í nágrenninu hafa tekið höndum saman við að útvega úkraínskum flóttamönnum sem dvelja á Hótel Sögu ýmsar nauðsynjar, þar á meðal sundkort. Við hittum flóttamann sem var með skilaboð til íslensku þjóðarinnar. Innlent 3. apríl 2022 20:31
Mikill hasar á lokaðri Sæbraut Sæbraut var lokað í dag fyrir hádegi, sem er vel því mikill hasar skapaðist þar í dag við tökur á kvikmyndinni Heart of stone. Lífið 3. apríl 2022 18:46
Líkamsárás í Kópavogi eldsnemma í morgun Töluverður erill var hjá lögreglu í dag, til að mynda var tilkynnt um líkamsárás í Kópavogi klukkan fimm í morgun. Árásarþoli var fluttur á bráðamóttöku. Innlent 3. apríl 2022 18:19
Hjálmar harmar skerta þjónustu strætó Strætó skerðir í dag þjónustu sína við farþega með því að draga úr tíðni ferð á nokkrum leiðum og hætta akstri þeirra fyrr á kvöldin. Stjórnarformaður skilur ósætti farþega vel og vonast til að skert þjónusta verði aðeins tímabundin. Innlent 3. apríl 2022 16:01
„Það stenst enginn þetta augnaráð“ Það mun vanta sjö leiðsöguhunda fyrir blinda og sjónskerta á landinu á næstu árum. Við hittum Kela, eiganda leiðsöguhunds, í miðbæ Reykjavíkur í gær sem lýsti afar nánu sambandi sínu við besta vin sinn - Gaur. Innlent 3. apríl 2022 13:28
Fyrsta sinn sem einstaklingur vinnur Músíktilraunir Tónlistarkonan Kolbrún Óskarsdóttir bar sigur úr bítum í Músíktilraunum 2022 sem fóru fram í Hörpu í gær. Þetta er fyrsta sinn sem einstaklingur sigrar keppnina, sem hefur verið haldin árlega í fjörutíu ár. Tónlist 3. apríl 2022 11:46
„Þetta er ekki bara vinna heldur líka það að vera innan um fólk“ Maður á áttræðisaldri sem fékk vinnu á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur segir það ljótt af vinnuveitendum að segja fólki upp sökum aldurs. Hann segir mikinn félagsskap fólginn í vinnu og hlakkar til að takast á við ný verkefni. Innlent 3. apríl 2022 09:01
Vesturbæingar sjá um hundrað flóttamönnum á Hótel Sögu fyrir nauðsynjum Tæplega eitt hundrað úkraínskir flóttamenn, konur og börn, hafa fengið þak yfir höfuðið í Bændahöllinni, þar sem Hótel Saga var þar til nýlega. Svo virðist sem fólkið fái ekki mikið meira en þak yfir höfuðið enda hafa íbúar Vesturbæjar tekið það á sig að verða fólkinu úti um helstu nauðsynjar. Innlent 2. apríl 2022 23:03
Úkraínsk börn dönsuðu þjóðdansa til fjáröflunar Glatt var á hjalla í menningarmiðstöðinni í Gerðubergi í dag þar sem haldin var fjáröflun til styrktar fjölskyldum sem komnar eru hingað til lands frá Úkraínu. Innlent 2. apríl 2022 21:11
Vonar að atvinnurekendur taki flóttafólkinu opnum örmum Móttaka flóttamanna hér á landi fer vel af stað og hafa herbergi á Hótel Sögu meðal annars verið tekin undir þá. Innlent 2. apríl 2022 16:20
Meinað að drekka kaffi, reykja og fara út Samtökin Geðhjálp segja ljóst að daglega sé brotið á mannréttindum fólks inni á geðdeildum landsins. Fólki er sums staðar meinað að drekka kaffi, fara í símann, reykja sígarettu eða rölta út undir bert loft. Innlent 2. apríl 2022 12:05
Breyta Strætóleiðum sem aka nú styttra eða með lengra millibili Breytingar hafa verið gerðar á kvöldferðum Strætóleiða númer 7, 11, 12, 15, 19, 22, 23, 28, 35 og 36. Breytingarnar spara rúmlega 200 milljónir í rekstri Strætó sem hefur verið mjög þungur á tímum heimsfaraldurs. Innlent 2. apríl 2022 11:24