

NBA
Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.

LeBron sagði upp samningnum við Cleveland
Sagður hafa nýtt sér uppsagnarákvæði í samningi sínum en líklegast þykir að hann verði áfram í Cleveland.

Portland byrjað að undirbúa brottför Aldridge?
Körfuboltamaðurinn Mason Plumlee er genginn í raðir Portland Trail Blazers í NBA-deildinni.

Fyrsti Indverjinn sem er valinn í nýliðavalinu
Satnam Singh Bhamara varð í nótt fyrsti Indverjinn til að vera valinn í nýliðavali NBA-deildarinnar.

Með síðustu þrjá sem valdir voru fyrstir
Minnesota Timberwolves er fyrsta liðið sem fékk fyrsta valrétt í nýliðavalslóttóinu eftir að vera með versta árangurinn í NBA-deildinni.

Towns valinn númer eitt | Lakers tók Russell
Nýliðaval NBA-deildarinnar fór fram í Barclays Center í Brooklyn í nótt.

Jordan heldur áfram að skipta á leikmönnum
NBA-liðin Charlotte Hornets og Portland Trail Blazers skiptust á leikmönnum í gær.

Curry sendi móður Drazen Petrovic eina af treyjunum sínum
Stephen Curry, varð á dögunum NBA-meistari í fyrsta sinn, þegar Golden State Warriors vann Cleveland í lokaúrslitunum en áður hafði Curry verið kosinn mikilvægasti leikmaður deildarinnar.

99 prósent líkur á því að Aldridge fari frá Portland
LaMarcus Aldridge, einn besti stóri framherji NBA-deildarinnar, og leikmaður Portland Trail Blazers undanfarin níu tímabil, er á förum frá félagi samkvæmt heimildum bandarískra fjölmiðla.

Love riftir við Cleveland en endar líklega hjá Cleveland
Boston vill búa til lið í kringum Love, eldri Lopez-bróðurinn og Paul Pierce.

Hver er þessi Kristaps Porzingis sem allir í NBA eru að tala um? | Myndbönd
Lettneskur 216 cm hár framherji er huldumaðurinn í nýliðavalinu í NBA-deildinni að þessu sinni.

Curry: Pabbi fær að upplifa þetta í gegnum mig | Sjáið Curry-fjölskylduna fagna
Stephen Curry, leikstjórnandi Golden State Warriors í NBA-deildinni í körfubolta, fagnaði sínum fyrsta NBA-meistaratitli í nótt með alla fjölskyldu sína í kringum sig en skömmu eftir að lokaflautið gall var Curry-fjölskyldan komin öll niður á gólf.

Andre Iguodala einstakur meðal þeirra sem hafa verið kosnir bestir | Myndbönd
Andre Iguodala, leikmaður Golden State Warriors, var í nótt kosinn besti leikmaður NBA-lokaúrslita í ár eftir að Golden State tryggði sér titilinn með því að vinna Cleveland Cavaliers í sjötta leik liðanna.

Golden State NBA-meistari en Curry var ekki valinn bestur | Myndbönd
Golden State Warriors kórónaði frábært tímabil í nótt með því að tryggja sér fyrsta NBA-meistaratitil félagsins í 40 ár þegar liðið vann sjötta leikinn í úrslitaeinvíginu á móti Cleveland Cavaliers.

Vinnur Golden State sinn fyrsta NBA-titil í 40 ár í nótt?
Sjötti leikur Cleveland Cavaliers og Golden State Warriors í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar fer fram á heimavelli Cleveland, Quicken Loans Arena, í nótt.

Jordan gafst upp á Stephenson og sendi hann til Clippers
Lance Stephenson mun spila með Los Angeles Clippers í NBA-deildinni í körfubolta á næsta tímabil eftir að Clippers skipti á honum og tveimur leikmönnum Charlotte Hornets.

Kóngarnir af Akron
Körfuboltakapparnir Stephen Curry og LeBron James hafa slegið hvert metið á fætur öðru í úrslitakeppninni en þeir eiga fleira sameiginlegt en að vera að endurskrifa NBA-söguna og vera komnir með liðin sína alla leið í úrslitaleikina um NBA-meistaratitilinn. Golden State Warriors, lið Currys, getur tryggt sér fyrsta titil sinn í 40 ár með sigri á heimavelli Cleveland í sjötta leiknum í kvöld.

LeBron James: Ég missi aldrei trúna af því að ég er sá besti í heimi
LeBron James hefur ekki stórar áhyggjur þótt að lið hans Cleveland Cavaliers sé komið 3-2 undir og sé aðeins einum tapleik frá því að missa NBA-meistaratitilinn til Golden State Warriors.

Golden State í lykilstöðu | Myndbönd
LeBron James með þrefalda tvennu fyrir Cleveland en Golden State vann og er einum sigri frá titlinum.

Mikilvægi fimmta leiksins er óumdeilt
Það lið sem hefur unnið leik 5 þegar staðan er 2-2 í úrslitaeinvígi hefur unnið titilinn 20 sinnum af 28 skiptum sem þessi staða hefur komið upp.

Kyrie Irving er með Friends-húðflúr | Mynd
Friends er einn vinsælasti sjónvarpsþáttur allra tíma en ekki allir sem elska þáttinn eru með Friends-húðflúr.

Bogut: LeBron James stökk sjálfur á myndatökumanninn
Eftirminnilegasta atvik fjórða leiks Cleveland Cavaliers og Golden State Warriors í nótt var eflaust það þegar LeBron James fékk stóran skurð á höfuðið eftir samstuð við myndatökumann á endalínunni.

Væntanlegur mótherji Íslands til Detroit
Tyrkneski framherjinn Ersan Ilyasova er orðinn leikmaður Detroit Pistons í NBA-deildinni.

Golden State jafnaði metin | Myndbönd
Golden State Warriors jafnaði metin í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar með 21 stiga sigri, 82-103, á Cleveland Cavaliers í fjórða leik liðanna í nótt.

NBA gerir risasamning við Nike
NBA er að skipta um búningaframleiðanda en Nike mun taka við af Adidas leiktíðina 2017-18.

Fór frekar til Kína en í háskólaboltann
Spenna út af 19 ára strák fyrir nýliðaval NBA-deildarinnar þó svo enginn hafi séð hann spila lengi.

Hetja Cleveland er sá launalægsti og keyrir um á Mözdu
Ástralinn Matthew Dellavedova hefur mjög óvænt slegið í gegn í úrslitum NBA-deildarinnar. Hann hefur verið í algjöru lykilhlutverki hjá liðinu. Það sáu fáir fyrir. Þessi strákur er launalægstur allra í báðum liðum úrslitanna.

Annar sigur Cleveland í röð | Myndbönd
Cleveland Cavaliers er komið í 2-1 í einvíginu gegn Golden State Warriors eftir fimm stiga sigur, 96-91, í þriðja leik liðanna í úrslitum NBA-deildarinnar í nótt.

James með þrefalda tvennu þegar Cleveland jafnaði metin | Myndbönd
LeBron James fór á kostum þegar Cleveland Cavaliers jafnaði metin gegn Golden State Warriors í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í nótt.

Irving úr leik | Áfall fyrir Cleveland
Kyrie Irving leikur ekki meira með Cleveland Cavaliers í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta vegna hnémeiðsla.

Mun borða 18 ára gamalt súkkulaðistykki ef Cleveland verður meistari
Það er búið að finna opinbert súkkulaðistykki NBA-úrslitanna í ár.