
Tryggvi kom ekki við sögu í fyrsta leik Toronto
Tryggvi Snær Hlinason kom ekkert við sögu í fyrsta leik Toronto Raptors í sumardeild NBA. Toronto tapaði fyrir New Orleans Pelicans í fyrsta leik.
Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.
Tryggvi Snær Hlinason kom ekkert við sögu í fyrsta leik Toronto Raptors í sumardeild NBA. Toronto tapaði fyrir New Orleans Pelicans í fyrsta leik.
Tryggvi Snær Hlinason, landsliðsmaður í körfubolta, mun hefja leik með Toronto Raptors í Summer League (sumardeildinni) í kvöld.
ESPN hefur tekið saman skemmtilega grein um Sumardeild NBA í körfubolta sem fer fram í Las Vegas frá 6. til 17. júlí.
Það mun kosta sitt að reka NBA-lið Oklahoma City Thunder á komandi keppnistímabili. Nýjasti samningur liðsins þýðir að liðið fer yfir 300 milljónir dollara í laun og launatengdra skatta.
LeBron James hefur yfirgefið lið Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfubolta og samið við lið Los Angeles Lakers. Við þesssa ákvörðun James verður ekki bara breyting á Cavaliers liðinu heldur einnig mikil breyting á miðbæ Cleveland borgar.
Virkilega óvænt tíðindi bárust úr NBA deildinni í nótt.
Los Angeles Lakers styrkja sig enn frekar fyrir komandi tímabil í NBA deildinni með komu Rajon Rondo. Julius Randle yfirgefur liðið en fyrr í morgun var LeBron James tilkynntur sem nýr leikmaður liðsins.
LeBron James spilar með Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta á næsta tímabili eftir að hafa samþykkt að gera fjögurra ára samning við Lakers. En hverjir verða með honum í liði?
Væntanleg koma LeBron James í borg englanna hefur sprengt Twitter umræðuna vestanhafs.
Skærasta stjarna NBA deildarinnar hefur samþykkt fjögurra ára samning við Los Angeles Lakers.
Félagsskiptagluggi samningslausra leikmanna í NBA opnaði að miðnætti á bandarískum tíma og voru læti strax frá fyrstu mínútu.
Tryggvi Snær Hlinason mun spila með Toronto Raptors í sumardeild NBA. Liðið staðfesti fimmtán manna leikmannahóp sinn í dag.
LeBron James er laus allra mála eftir að hann nýtti sér ákvæði í samningi sínum um að spila ekki síðasta árið af samningnum sínum hjá Cleveland Cavaliers.
James Harden var í nótt kosinn mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta á síðustu leiktíð en hann átti frábært tímabil með liði Houston Rockets. Við sama tilefni voru verðlaunaðir þjálfari ársins, nýliði ársins, varnarmaður ársins, besti sjötti maður ársins og sá leikmaður sem bætti sinn leik mest.
Mikið um dýrðir í nýliðavalinu í NBA í nótt þó okkar maður, Tryggvi Snær Hlinason, hafi ekki verið valinn.
Nýliðaval NBA fór fram í nótt í New York í Bandaríkjunum.
Tryggvi Snær Hlinason bíður eftir einu mikilvægasta kvöldi ferils síns en nafn hans er í pottinum í nýliðavali NBA deildarinnar.
Friðrik Ingi Rúnarsson segir að þeir sem þekkja vel til í NBA-deildinni telja líkur á að Tryggvi Snær Hlinason verði valinn í nýliðavali NBA-deildarinnar í nótt.
Tryggvi Snær Hlinason fær að vita það í kvöld hvort hann verði valinn í nýliðavali NBA-deildarinnar en íslenskir körfuboltaáhugamenn bíða margir spenntir eftir niðurstöðu kvöldsins.
Nafn Tryggva Snæs Hlinasonar verður í nýliðavalinu í NBA deildinni á morgun þar sem 60 nýliðar verða valdir inn í deildina.
„Á hverjum degi ferðast ég til nýrrar borgar til að sýna NBA þjálfurum hvað í mér býr.“
Nýliðavalið í NBA körfuboltanum fer fram þann 21. júní næstkomandi í Brooklyn. Íslenski landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason er á meðal þátttakenda.
Varnarmenn NBA-deildarinnar eiga oft í miklum vandræðum með fylgja Steph Curry eftir inn á vellinum og það er því kannski hægt að fyrirgefa öryggisvörðunum fyrir að hafa misst af bakverði NBA-meistara Golden State Warriors.
Nýliðavalið í NBA deildinni fer fram í næstu viku og eru liðin á fullu að skoða leikmenn fyrir það.
11. júní 1997 var einn af mörgum merkilegum dögum á ótrúlegum körfuboltaferli Michael Jordan en í dag er 21 ár liðið frá hinum fræga "flensuleik“ besta körfuboltamanns allra tíma.
Nafn Tryggva Snæs Hlinasonar verður í nýliðavali NBA deildarinnar í körfubolta í næstu viku. Sérfræðingurinn Jonathan Givony hjá Draft Express staðfestir þetta á Twitter í dag.
Golden State Warriors sópuðu Cleveland Cavaliers, 4-0, í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta.
LeBron James hafði litla ástæðu til að brosa eftir leik næturinnar í lokaúrslitum NBA-deildarinnar og skipti þar litlu þótt að hann hafi þar bætt met Michael Jordan og verið sá fyrsti til að ná tíu þrennum í úrslitaeinvígi um titilinn.
Meistarar Golden State Warriors eru aðeins einum sigri frá því að sópa Cleveland Cavaliers í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar eftir 102-110 sigur í Cleveland í nótt. Staðan í einvígi liðanna er því 3-0.
Stærstu körfuboltastjörnur Bandaríkjanna eru sammála um að það komi ekki til greina hjá þeim að heimsækja Donald Trump Bandaríkjaforseta ef boðið kemur frá forsetanum.