Þrettán þúsund hafa skrifað undir Rúmlega þrettán þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til stjórnvalda um verndun Seyðisfjarðar og verða undirskriftalistar afhentir Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í dag klukkan ellefu. Innlent 12.10.2026 07:22
Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Fjöldi fólks kom saman til að mótmæla sjókvíaeldi Kaldavíkur á Seyðisfirði í dag, bæði á Seyðisfirði og í Reykjavík en mótmælin fóru fram samtímis. Breiður hópur náttúruverndarsamtaka stóð fyrir mótmælunum. Innlent 11.10.2026 21:53
Hafi verið beggja vegna borðsins Deildarstjóri fiskeldisdeildar Matvælastofnunar segir fyrrverandi starfsmann Fiskeldis Austfjarða ekki hafa komið að áhættumati vegna fyrirhugaðs eldis félagsins í Seyðisfirði. Honum hafi aðeins verið beint tiltekinni spurningu um staðal fyrir eldisbúnað. Katrín Oddsdóttir lögmaður gagnrýnir að leitað hafi verið til hans þrátt fyrir reglu um að hann kæmi ekki að málinu. Innlent 11.10.2026 15:32
Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Tveir létust í fjögurra bíla árekstri sem varð rétt fyrir hádegi í gær á Jökuldalsheiði við Háreksstaðakvísl. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum. Þeir látnu voru erlendir ferðamenn á sjötugsaldri. Innlent 4. október 2026 09:38
Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Hópslysaáætlun var virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal við Háreksstaðakvísl í dag. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum og einhverjir alvarlega slasaðir. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitarmenn, lögregla, sjúkralið og Rauði krossinn taka þátt í aðgerðum. Slysið er talið alvarlegt. Innlent 3. október 2026 12:00
Austurland margborgar sig Austurland leggur meira til ríkissjóðs en það fær til baka. Tekjur ríkissjóðs sem rekja má til landshlutans eru áætlaðar 54,2 milljarðar króna á ári en útgjöldin 45,5 milljarðar. Nettóframlag Austurlands er því 8,7 milljarðar króna á ári. Skoðun 1. október 2026 13:31
Hvað veistu um… Djúpavog? Djúpivogur er lítið og fallegt þorp á sunnanverðum Austfjörðum, þekkt fyrir rólegt yfirbragð, fallegt umhverfi og sterka tengingu við sjávarútveg. Lífið 21. september 2026 20:02
„Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Benedikta Guðrún Svavarsdóttir er hláturmildur framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, hún gerir góðan mat og hefur gaman af því að bjóða fólki í gusur. En hún er einnig grjótharður nagli, formaður Vár – félags um verndun fjarðar og berst nú með oddi og egg gegn ráðabruggi um að koma niður sjókvíum í Seyðisfirði. Þar hefur dregið til tíðinda á undanförnum vikum og dögum. Innlent 20. september 2026 10:02
Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Forseti sveitarstjórnar Múlaþings segir að nýjar tillögur um að færa þingsæti á milli kjördæma geti þaggað niður rödd heilu byggðasvæðanna. Það að öll atkvæði gildi jafnt sé ekki endilega sanngjarnt. Innlent 16. september 2026 20:00
Ók of hratt í hálku þegar banaslys varð á Fjarðarheiði Ökumaður bifreiðar sem fór yfir á gagnstæðan vegarhelming og lenti framan á öðrum bíl á Fjarðarheiði í desember er talinn hafa ekið of hratt miðað við aðstæður. Karlmaður á níræðisaldri í bílnum sem ekið var framan á lést. Innlent 16. september 2026 12:42
Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Heilbrigðisráðherra hefur skipað Þórörnu Gró Friðjónsdóttur forstjóra Heilibrigðisstofnunar Austurlands (HSA) til fimm ára. Þórarna var áður framkvæmdastjóri mannauðs og hefur verið settur forstjóri frá því í sumar. Innlent 14. september 2026 15:50
„Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Formaður heimastjórnar Múlaþings segir það hafa komið sér og öðrum fulltrúum Múlaþings í opna skjöldu að starfsleyfi hafi verið gefið út til fiskeldis í firðinum. Það séu vonbrigði að frumvarp um breytingar á lögum um lagareldi hafi ekki gengið í gegn á síðasta vorþingi. Innlent 14. september 2026 12:01
Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Yfirhafnarstjóri í Múlaþingi lýsir hruni í komum skemmtiferðaskipa og segir það þungt högg fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Skipafélög beini skipum sínum annað vegna hringlandaháttar í gjaldtöku. Innlent 13. september 2026 22:01
„Þetta er fullkomið áfall“ Félag um vernd Seyðisfjarðar er hvergi nærri af baki dottið þrátt fyrir að Kaldvík AS hafi fengið rekstrar-og starfsleyfi í gær til fiskeldis í firðinum. Formaður segir undirskriftarsöfnun hafa sýnt fram á að meirihluti bæjarbúa vilji fara aðrar leiðir til atvinnuuppbyggingar í firðinum. Innlent 12. september 2026 14:35
Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Er það táknrænt eða tilviljun að ríkisvaldið tók hafnarsvæði Seyðisfjarðar, siglingaleið að samevrópskri ferjuhöfn undir mengandi stóriðju þann 11.09.2026? Skoðun 12. september 2026 14:01
Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Félagið Kaldvík AS hefur fengið rekstrar- og starfsleyfi til að ala tíu þúsund tonn af laxi frá Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun í Seyðisfirði. Í tilkynningu til Kauphallar segir forstjóri það mikilvægan áfanga. Viðskipti innlent 11. september 2026 12:45
Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Skattahækkun á baðlón bítur fastast á landsbyggðinni, segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings. Hún segir Vök við Egilsstaði hafa gjörbylt ferðaþjónustu á Austurlandi og óttast að áform ríkisstjórnarinnar leiði til lokunar baðlónsins hluta úr ári og stöðvi frekari uppbyggingu. Innlent 2. september 2026 19:24
Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Andarnefja varð innlyksa í háflóði á Djúpavogi í morgun, rak á land í Brandsvík og hefur verið föst þar síðan. Íbúar hafa staðið í ströngu við að ausa yfir andarnefjuna sjó og standa vonir til að hún komi sér sjálf út í flóði. Um tíma virtist hvalurinn of örmagna til að bjarga sér sjálfur en er byrjuð að sprikla. Innlent 1. september 2026 15:14
Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Maðurinn sem lést í Stuðlagili á mánudag hét Piotr Sójka og var 39 ára gamall pólskur ríkisborgari. Piotr var búsettur í Póllandi en var á ferðalagi hérlendis. Innlent 28. ágúst 2026 10:12
Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Karlmaður á fertugsaldri sem lést þegar hann féll út í Jökulsá á Brú í Stuðlagili í vikunni er sagður hafa verið pólskur. Pólskur fjölmiðill greinir frá þessu. Innlent 27. ágúst 2026 10:24
Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Öryggismál við Stuðlagil hafa verið í brennidepli eftir að ferðamaður lést þegar hann féll ofan í gilið á mánudag. Var það annað banaslysið við gilið á tæplega tveimur árum en sveitarstjóri Múlaþings segir fyrsta viðbragð þegar svona sorglegt mál komi upp vera að hlúa að fólki. Innlent 26. ágúst 2026 22:27
Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir leiðsögumaður á Austurlandi varð vitni að því í gær þegar ferðamaður drukknaði við Stuðlagil. Hún fer daglega með ferðamenn en segir aðstæður óöruggar og verulega þörf á betri fallvörnum sem og björgunartækjum við gilið. Ferðamaðurinn féll ofan í ána. Innlent 25. ágúst 2026 22:57
„Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Kafarar fundu lík manns, sem féll í Stuðlagil í gærkvöldi, í hyl í Jöklu skömmu eftir að þeir fóru ofan í ána. Lögreglustjórinn á Austurlandi segir gott að maðurinn hafi fundist áður en myrkur skall á. Innlent 25. ágúst 2026 14:51
Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Maðurinn sem féll út í Jöklu við Stuðlagil í gær fannst látinn í ánni á tíunda tímanum í gærkvöldi. Hann var erlendur ferðamaður á fertugsaldri. Innlent 25. ágúst 2026 07:35