
Toppliðin í Evrópu myndu neita að mæta í nýju FIFA-keppnina
Alþjóða knattspyrnusambandið hefur fengið skýr skilaboð frá toppklúbbunum í Evrópu sem taka ekki vel í nýja og stærri heimsmeistarakeppni félagsliða.
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Alþjóða knattspyrnusambandið hefur fengið skýr skilaboð frá toppklúbbunum í Evrópu sem taka ekki vel í nýja og stærri heimsmeistarakeppni félagsliða.
Einn enskur leikur er í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.
Schalke er þjálfaralaust eins og stendur.
Þetta var vikan þar sem Cristiano Ronaldo og Lionel Messi minntu okkur enn á ný hvað þeir eru rosalega góðir í fótbolta.
Virgil van Dijk er á góðri leið með að verða besti miðvörður heims ef hann er ekki orðinn það nú þegar.
Southampton er ekki beint lið sem þú tengir við Meistaradeildina enda lið sem er að berjast fyrir lífi sínu í ensku úrvalsdeildinni þessa dagana.
Spánverjar hafa fjölmennt í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar undanfarin ár en í ár eru breyttir tímar í bestu deild í heimi.
Virgil van Dijk er elskaður af stuðningsmönnum Liverpool og þeir syngja til hans við hvert tækifæri.
Liverpool er komið í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir að hafa haft betur í tveimur leikjum á móti þýska liðinu Bayern München. Knattspyrnustjórinn Jürgen Klopp hélt þar áfram sigurgöngu sinni í Evrópukeppninni.
Knattspyrnusérfræðingur hjá BBC, sem þekkir mjög vel til hjá Liverpool, var virkilega ánægður með frammistöðu liðsins á móti Bayern München á Allianz Arena í München í gær.
Liverpool varð í kvöld fjórða enska félagið í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar er þeim tókst að slá út Bayern München á Allianz Arena í München.
Barcelona er komið í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir stórsigur á Lyon í kvöld.
Það er allt undir í kvöld þegar tveir leikir fara fram í Meistaradeild Evrópu. Í Barcelona taka heimamenn á móti franska liðinu Lyon og í Bæjaralandi mætir Jürgen Klopp með lærisveina sína í Liverpool á heimavöll Þýskalandsmeistaranna, Bayern München.
Elías Rafn Ólafsson var í marki Midtjylland í Meistaradeild ungmenna í fótbolta í dag þegar danska liðið sló út Manchester United og komst í átta liða úrslit keppninnar.
Aðalstjarnan á bardagakvöldi UFC í London, þar sem Gunnar Nelson berst, er Darren Till. Hann er að telja niður í bardagann sinn en er ekki síður spenntur fyrir leik kvöldsins í Meistaradeildinni.
Pep Guardiola heldur með sínum gömlu lærisveinum í kvöld.
Ensku liðin hafa ekki verið fleiri í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í átta ár og Liverpool fær í kvöld tækifæri til að bæta stöðu enskra liða enn frekar í hópi átta bestu liða Meistaradeildarinnar á þessari leiktíð.
Þetta í fimmta sinn á sex árum sem Atlético Madrid liðið dettur út á móti liðinu hans Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo átti nú alveg rétt á því að vera svolítið hrokafullur eftir 3-0 sigur Juventus á Atletico Madrid í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær. Ronaldo skoraði öll mörkin og tryggði með því Juventus liðinu sæti í átta liða úrslitunum.
Risa próf fyrir Liverpool í kvöld.
Atlético vann fyrri leikinn 2-0 á heimavelli en Juventus snéri við taflinu í kvöld.
Manchester City vann fyrri leikinn 3-2 í Þýskalandi en þeir slógu upp veislu á Etihad í kvöld.
Stuðningsmenn Manchester City vilja að sínir leikmenn heiðri slasaðan stuðningsmann félagsins með því að vinna fernuna á þessu tímabili.
Seinni leikirnir í einvígjum Juventus og Atletico Madrid annars vegar og Manchester City og Schalke 04 hins vegar í Meistaradeild Evrópu fara fram í kvöld áður en sextán liða úrslitunum lýkur á morgun.
Fréttir frá Spáni herma að Zinedine Zidane verði seinna í dag tilkynntur sem næsti þjálfari liðsins.
Í dag eru tvö ár síðan Barcelona vann ótrúlegan sigur á PSG í Meistaradeildinni. Endurkoma sem verður líklega aldrei toppuð.
Norðmaðurinn Tor Henrik Stensland er mikill stuðningsmaður Manchester United og hann hefur upplifað skemmtilegar vikur eftir að landi hans Ole Gunnar Solskjær settist í stjórastólinn á Old Trafford. Stensland bjóst aftur á móti ekki við sigri í París.
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem útskýrt er af hverju Man. Utd fékk dæmda vítaspyrnu undir lok leiksins gegn PSG. Vítaspyrnudómurinn þótti umdeildur en United komst áfram í Meistaradeildinni með því að skora úr vítinu.
Brasilíumaðurinn var brjálaður eftir VAR-vítið sem að sendi United áfram í París.
Stuðningsmaður Manchester United liggur illa haldinn á sjúkrahúsi eftir að hafa verið stunginn af leigubílsstjóra í Parísarborg.