
Stoðsending á Eið Smára ein af bestu tilþrifum Ronaldinho í Meistaradeildinni
Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Ronaldinho átti afmæli í gær og það þótti mörgum við hæfi að hendi í tilþrifapakka á samfélagsmiðlum.
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Ronaldinho átti afmæli í gær og það þótti mörgum við hæfi að hendi í tilþrifapakka á samfélagsmiðlum.
Manchester City er sem fyrr sigurstranglegasta liðið í Meistaradeildinni í vor en það eru líka mestar líkur á að tvö lið úr ensku úrvalsdeildinni spili til úrslita í Tyrklandi.
Sannkallaðir stórveldaslagir verða í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Dregið var til átta liða úrslita og undanúrslita í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Vísi í hádeginu.
Chelsea og Bayern komust af miklu öryggi áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta og verða því í skálinni þegar dregið verður á morgun.
Chelsea vann 2-0 sigur á Atletico Madrid í síðari leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Samanlagt vann Chelsea því einvígið 3-0.
Bayern Munchen lenti í engum vandræðum með Lazio í síðari leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Lokatölur 2-1.
„Ég vil þakka mömmunum sem ólu upp þessa stráka með svona stórar hreðjar,“ sagði Diego Simeone í mikilli geðshræringu eftir að hafa stýrt Atlético Madrid til sigurs á Chelsea á Stamford Bridge fyrir sjö árum. Nú þarf Atlético að endurtaka leikinn.
Nöfn Real Madrid og Manchester City verða í skálinni þegar dregið verður í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á föstudaginn. Mörkin úr sigrum liðanna í gærkvöld má nú sjá hér á Vísi.
Pep Guardiola var mjög sáttur með sigur sinna manna. Þá segir hann meiðslaleysi sinna manna vera lykilatriði í góðu gengi Manchester City þessa dagana.
Meistaradeildarsérfræðingar Real Madrid unnu 3-1 sigur á Atalanta í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Unnu þeir einvígið samtals 4-1 en lokatölur einvígisins gefa ef til vill ekki alveg rétta mynd af leikjunum tveimur.
Það tók Manchester City aðeins tuttugu mínútur að gulltryggja sæti sitt í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu er Borussia Mönchengladbach kom til Búdapest og mætti lærisveinum Pep Guardiola. Þeir skoruðu tvisvar, unnu leikinn 2-0 og einvígið þar með 4-0.
Framtíð Cristiano Ronaldo var til umræðu í nýjasta þættinum af Sportinu í dag sem er nú aðgengilegur inn á Vísi.
Sigursælasta lið í sögu Meistaradeildar Evrópu, Real Madrid, er með eins marks forskot fyrir seinni leikinn gegn Atalanta í sextán liða úrslitum keppninnar og treystir á reynsluna til að komast yfir þann hjalla.
Oleksandr Zinchenko segir að Manchester City geti unnið fernuna á þessu tímabili en knattspyrnustjórinn Pep Guardiola er ekki sammála honum.
Hjá þýska félaginu Bayern München er það bara ein bílategund sem skiptir máli og það er eins gott fyrir leikmenn liðsins að hlýða því. Því fær veski Kingsley Coman líklega að kynnast á næstunni.
Fjölmiðlar halda áfram að fjalla um framtíð Cristiano Ronaldo en hann er orðaður burt frá Juventus eftir vonbrigði þeirra í Meistaradeildinni.
Eden Hazard sneri aftur í lið Real Madrid um helgina eftir að hafa verið frá í einn og hálfan mánuð en hann meiddist aftur eftir aðeins fimmtán mínútur.
Fyrrum danski landsliðsmaðurinn Morten Bruun skrifar vikulega pistla á danska miðilinn BT um allt milli himins og jarðar í fótboltanum og þessa vikuna var Liverpool meðal annars til umræðu.
Það verður Íslendingaslagur í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta þegar lið Glódísar Perlu Viggósdóttur og Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur mætast. Sara Björk Gunnarsdóttir fer með Lyon í franskt uppgjör.
Þetta hefur verið sérstakt tímabil fyrir leikmenn Liverpool og ekki síst fyrir leikmann eins og Brasilíumanninn Fabinho.
Á miðvikudaginn varð Asii Kleist Berthelsen fyrst allra Grænlendinga til að leika í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Þó svo að leikurinn hafi tapast þá má með sanni segja að Berthelsen hafi skráð sig á spjöld sögunnar.
Liverpool og Paris Saint-Germain komust áfram í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í gær.
„Þetta eru stór úrslit fyrir okkur. Við komum hingað eftir að hafa tapað nokkrum leikjum í deildinni og liðið er ekki í besta forminu en við viljum berjast í Meistaradeildinni og deildinni og sjá hvað setur,“ sagði Mohamed Salah, einn af markaskorurum Liverpool, eftir 2-0 sigurinn á Leipzig í kvöld.
Lionel Messi og félagar hans í Barcelona duttu út úr Meistaradeild Evrópu í kvöld er liðið gerði 1-1 jafntefli við PSG í síðari leiknum.
Barcelona var með mikla yfirburði gegn PSG er liðin mættust öðru sinni í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Leiknum í París í kvöld lauk þó með 1-1 jafntefli og samanlagt 5-2 fyrir PSG.
Það vantaði ekki færin í síðari leik Leipzig og Liverpool í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Liverpool vann leikinn 2-0 og eru því komnir áfram í átta liða úrslitin, samanlagt 4-0.
Glódís Perla Viggósdóttir og Rosengård eru komnar í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 2-0 sigur á St. Polten í Austurríki.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og stöllur hennar í Bayern Munchen eru örugglega komnar áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Stuðningsmaður PSG ætlaði sér að vera sniðugur í gærkvöldi en það endaði ekki betur en svo að hann gisti fangageymslu í nótt.
Framlengja þurfti leik Juventus og Porto í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Blaðamannafundur knattspyrnustjóra Porto, Sérgio Conceicao, tók hins vegar enga stund. Bókstaflega.