
Sjálfstraustið í botni hjá Nani þessa dagana
Portúgalinn Nani hefur komið sterkur inn í lið Man. Utd síðan Antonio Valencia meiddist illa. Hann segist vera fullur sjálfstrausts sem hann ætlar að koma með inn í leikinn gegn Valencia í kvöld.
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Portúgalinn Nani hefur komið sterkur inn í lið Man. Utd síðan Antonio Valencia meiddist illa. Hann segist vera fullur sjálfstrausts sem hann ætlar að koma með inn í leikinn gegn Valencia í kvöld.
Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, sá sína menn vinna 2-0 sigur á frönsku meisturnum í Marseille í kvöld. Chelsea skoraði bæði mörkin sín á fyrsta hálftímanum en átti nokkuð undir vök að verjast í seinni hálfleiknum.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal var sáttur eftir 3-1 útisigur Arsenal á Partizan Belgrad í Meistaradeildinni í kvöld. Arsenal komst í 1-0, klikkaði á víti í stöðunni 1-1 en náði að skora tvö mörk eftir að Partizan missti mann útaf.
Ensku liðin Chelsea og Arsenal eru í góðum málum í Meistaradeildinni eftir sigra í kvöld. Real Madrid er einnig með fullt hús eftir tvo leiki þökk sé síðbundu sigurmarki frá Argentínumanninum Ángel Di María. Bastian Schweinsteiger tryggði Bayern Munchen síðan 2-1 útisigur á Basel eftir að þýsku meistararnir lentu undir í leiknum.
Juan Mata, vængmaður Valencia, er afar svekktur að Ryan Giggs skuli ekki spila með Man. Utd á morgun gegn Valencia í Meistaradeildinni.
Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, hefur fulla trú á því að Frakkinn Nicolas Anelka geti leitt Chelsea til sigurs gegn Marseille í Meistaradeildinni í kvöld.
Wayne Rooney verður ekki með Manchester United í Meistaradeildinni í vikunni en liðið er á leiðinni til Valencia á Spáni þar sem liðið mætir heimamönnum á miðvikudaginn. Rooney er meiddur á ökkla samkvæmt tilkynningu frá félaginu.
Manuel Almunia mun ekki standa í marki Arsenal gegn Partizan Belgrad í Meistaradeildinni þar sem hann er slæmur í olnboganum. Lukasz Fabianski mun því verja mark Arsenal í leiknum.
Það er enn nokkuð í það að Frank Lampard spili aftur með Chelsea. Félagið staðfesti það í dag og hann spilar því ekki með liðinu í Meistaradeildinni á morgun gegn Marseille.
Sara Carbonero, kærasta Iker Casillas, fyrirliða Real Madrid og spænska landsliðsins, ætlar að leggja það í vana að komast í fréttirnar vegna tengsla sinna við spænska landsliðsmarkvörðinn.
Allar líkur eru á því að Sölvi Geir Ottesen missi af báðum leikjum FC Kaupmannahafnar gegn spænska stórliðinu FC Barcelona í Meistaradeild Evrópu.
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, var eins og vanalega í essinu sínu þegar hann mætti á blaðamannafund á Santiago Bernabeu í dag en þar talaði hann um að fá að þjálfa spænska stórliðið væri eins og að komast til tunglsins.
Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, segist stefna á það að vera byrjaður aftur að spila eftir tvær vikur en hann meiddist aftan í læri í jafnteflisleiknum á móti Sunderland um helgina.
David Villa líkar lífið vel í Barcelona en spænski landsliðsframherjinn opnaði markareikning sinn í Meistaradeildinni í 5-1 sigri á Panathinaikos á þriðjudagskvöldið.
Zlatan Ibrahimovic var fljótur að breytast úr hetju í skúrk í sjónvarpsþætti eftir 2-0 sigur AC Milan á Auxerre í Meistaradeildinni í gær en Svíinn skoraði bæði mörk AC Milan í leiknum.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var að sjálfsögðu mjög ánægður með Cesc Fábregas eftir 6-0 sigur liðsins á portúgalska liðinu Braga í Meistaradeildinni. Fábregas skoraði tvö mörk og átti einnig tvær stoðsendingar á félaga sína.
Tim Wiese, markvörður Werder Bremen, segir að það sé ekki að marka það sem Jens Lehmann lætur frá sér.
Nicolas Anelka notaði tækifærið í kvöld og sendi franska knattspyrnusambandinu tóninn þegar hann skoraði fyrra mark sitt í 4-0 sigri Chelsea á MSK Zilina í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Arsene Wenger sagði eftir 6-0 sigur Arsenal á Braga í kvöld að hann hafi aldrei efast um hollustu Cesc Fabregas gagnvart fyrrnefnda félaginu.
Kirk Broadfoot var skiljanlega afar brugðið þegar að Antonio Valencia ökklabrotnaði eftir samstuð þeirra í leik Manchester United og Glasgow Rangers í Meistaradeild Evrópu í gær.
Cesc Fabregas á von á því að spila í erfiðari leikjum í vetur en þeim í kvöld er Arsenal vann 6-0 stórsigur á Braga frá Portúgal í Meistaradeild Evrópu.
Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, hrósaði Nicolas Anelka mikið eftir 4-1 sigur liðsins á MSK Zilina í Slóvakíu í F-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Arsenal og Chelsea fóru á kostum í sínum leikjum í Meistaradeild Evrópu í kvöld og unnu stórsigra.
Petr Cech, markvörður Chelsea, er sannfærður um að þetta verði leiktímabilið þar sem Chelsea tekst loksins að vinna Meistaradeildina.
Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að meiðsli Antonio Valencia í kvöld svipi til meiðsla Alan Smith á sínum tíma.
Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, hefur þegar tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn MSK Zilina í F-riðli Meistaradeildar Evrópu annað kvöld.
Harry Redknapp, stjóri Tottenham, var ánægður með sína menn þó svo að þeir hefðu misst 2-0 forystu í jafntefli gegn Werder Bremen í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Alex Ferguson segir að Antonio Valencia verði lengi frá vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í leik Manchester United og Rangers í kvöld.
Fyrstu átta leikirnir í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu fóru fram í kvöld. Bæði ensku liðin sem voru í eldlínunni í kvöld gerðu jafntefli.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að það eina sem standi í vegi fyrir því að Arsenal fari alla leið í Meistaradeildinni sé hugarfarið.