Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Louis Van Gaal var þjálfari Manchester United á árunum 2014-2016 en var látinn fara eftir að gengi liðsins var ekki nægilega gott. Hann segir svindl Manchester City hafa leitt til þess að hann hafi ekki náð Meistaradeildarsæti með Manchester United sem er ástæðan fyrir því að hann var rekinn frá félaginu á sínum tíma. Enski boltinn 15.10.2026 16:30
Mamdani skaut á Man City Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, segir Manchester City ekki eiga heima í ensku úrvalsdeildinni. Hann skaut á félagið á viðburði vestanhafs í gær. Enski boltinn 15.10.2026 11:01
Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Önnur umferð Meistaradeildar Evrópu kláraðist í gær er sjö leikir fóru fram. Aldrei hafa eins mörg mörk verið skoruð á einum leikdegi í keppninni en mörkin voru alls 46 mörk í níu leikjum. Fótbolti 15.10.2026 10:05
Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Liverpool tók á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn var jafn til að byrja með en eftir að Liverpool varð manni færri tóku gestirnir yfir leikinn og unnu 3-0. Enski boltinn 11. október 2026 14:32
Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Tilraun til að ná sátt í máli ensku úrvalsdeildarinnar gegn Manchester City, í máli sem deildin höfðaði gegn félaginu fyrir umfangsmikil brot á fjárhagsreglum, fór út um þúfur. Enski boltinn 9. október 2026 20:07
„Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Ian Holloway segir að Manchester City sé að skemma enskan fótbolta með svindli sínu. Hann var þjálfari Blackpool á tímabilinu 2010-11 þar sem liðið féll með einu stigi úr ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 9. október 2026 15:30
Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Erling Haaland er fæddur og uppalinn stuðningsmaður Manchester City og er með skýr skilaboð til annarra stuðningsmanna nú þegar félagið hefur verið dæmt fyrir umfangsmikil brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. City mætir Liverpool á sunnudaginn í fyrsta leik eftir dóminn. Enski boltinn 9. október 2026 08:02
Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Erling Haaland hefur sagt stuðningsmönnum Manchester City að standa saman eftir að félagið var dæmt sekt fyrir að brjóta fjárhagsreglur ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 8. október 2026 19:02
Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Búist er við að Pep Guardiola, fyrrverandi þjálfari Manchester City, muni mæta á næsta heimaleik liðsins sem verður í næstu viku þegar liðið fær PSG í heimsókn í Meistaradeild Evrópu. Þetta verður einnig fyrsti heimaleikur liðsins síðan liðið var dæmt sekt í 114 kæruliðum þar sem félagið braut fjárhagsreglur deildarinnar. Enski boltinn 8. október 2026 07:01
Manchester City-goðsögn hættir við að hætta David Silva, fyrrum leikmaður Manchester City, hefur tekið skóna af hillunni en hann hefur gengið til liðs við Sha Tin sem leikur í úrvalsdeildinni í Hong Kong. Fótbolti 7. október 2026 23:00
Meiddist í Portúgal Erling Haaland olli áhyggjum þegar hann haltraði af velli í 2-1 tapi Noregs gegn Portúgal í Þjóðadeildinni í gærkvöld. Enski boltinn 5. október 2026 08:02
Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn Rui Pinto, maðurinn á bakvið vefsíðuna Football Leaks sem lak meðal annars gögnum sem komu upp um brot Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar, óttast morðtilræði gegn sér og ætlar að láta sig hverfa. Enski boltinn 2. október 2026 18:57
Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Uppljóstarinn Rui Pinto, maðurinn á bakvið vefsíðuna Football Leaks sem lak meðal annars gögnum sem komu upp um brot Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar, mun ekki njóta verndar í heimalandi sínu mikið lengur. Hann óttast um öryggi sitt og er staða hans sögð grafalvarleg. Enski boltinn 2. október 2026 17:06
City-menn búnir að áfrýja Forráðamenn Manchester City greindu frá því í dag að búið væri að áfrýja úrskurði óháðrar nefndar ensku úrvalsdeildarinnar um að félagið hefði brotið af sér í öllum ákæruliðum tengdum brotum á fjármálareglum deildarinnar. Enski boltinn 2. október 2026 11:14
Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Khaldoon Al-Mubarak, stjórnarformaður Manchester City, nýtur diplómatískrar friðhelgi í Bretlandi vegna samstarfsverkefna stjórnvalda Bretlands og Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Bresk yfirvöld gætu því ekki kært hann vegna brota City á reglum ensku úrvalsdeildarinnar, kæmi til þess. Enski boltinn 1. október 2026 12:45
Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Jürgen Klopp, landsliðsþjálfari Þýskalands og fyrrverandi þjálfari Liverpool, sagði á blaðamannafundi í gær að hann myndi bíða og sjá hvernig málin þróuðust áður en hann tjáði sig um tilkynningu ensku úrvalsdeildarinnar um veigamikil fjármálabrot Manchester City. Enski boltinn 1. október 2026 09:33
Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, segir það mikið áhyggjuefni skyldi enska úrvalsdeildin missa eigendur Manchester City úr deildinni vegna brota þeirra á fjármálareglum. Burnham naut í fyrra starfi góðs af fjárfestingum þeirra í Manchester-borg og dómur City gæti þá haft mikil áhrif á veigamikil viðskiptatengsl Bretlands og Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Enski boltinn 1. október 2026 09:02
Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Etihad Airways, sem hefur verið aðalstyrktaraðili Manchester City síðan árið 2009, er að hugsa um að lögsækja ensku úrvalsdeildina vegna ásakana um að Manchester City hafi brotið fjárhagsreglur deildarinnar. Enski boltinn 1. október 2026 07:02
Myndi henda öllum medalíum í ruslið Roy Keane segir ekkert að marka leikmenn Manchester City sem segist hafa átt skilið að vinna þá titla sem þeir unnu með félaginu, vegna framgöngu sinnar innan vallar. Sjálfur myndi hann kasta medalíunum í ruslið. Enski boltinn 30. september 2026 13:32
Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Pep Guardiola, einn þeirra sem nutu góðs af umfangsmiklu svindli Manchester City í ensku úrvalsdeildinni, hvetur City-fólk til að standa saman í þeim stormi sem félagið er nú í. Enski boltinn 30. september 2026 13:17
Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Micah Richards, fyrrverandi leikmaður Manchester City, segist niðurbrotinn eftir að hafa lesið fordæmandi sektardóm ensku úrvalsdeildarinnar yfir uppeldisfélagi hans. Enski boltinn 30. september 2026 12:01
„Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Framkvæmdastjóri Manchester City, Ferran Soriano, hefur haldið því fram að sektardómurinn yfir félaginu sé afleiðing „samsæri ensku úrvalsdeildarinnar“ og að félagið muni áfrýja úrskurðinum. Enski boltinn 30. september 2026 08:44
Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Nick Harris, fréttamaður hjá Sky News í Bretlandi, reyndi að taka Ferran Soriano, framkvæmdastjóra Manchester City, tali á fundi stjórnarmanna Evrópufélaga í Kaupmannahöfn. Úr urðu heldur vandræðaleg samskipti. Enski boltinn 29. september 2026 18:00
Harðorð yfirlýsing Manchester City Forráðamenn Manchester City hafa gefið út yfirlýsingu þar sem að þeir lýsa vonbrigðum sínum og undrun á yfirlýsingu ensku úrvalsdeildarinnar eftir að sekt félagsins í umfangsmiklu máli var í dag staðfest. Enski boltinn 29. september 2026 16:55