
Sjötíu handteknir í alþjóðlegri aðgerð gegn barnamansali
Lögregla á Íslandi tók þátt í samevrópskum aðgerðum Europol gegn mansali á börnum í júní síðastliðnum.
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.
Lögregla á Íslandi tók þátt í samevrópskum aðgerðum Europol gegn mansali á börnum í júní síðastliðnum.
Tilkynnt var um mann sem var að sveifla kúbeini í allar áttir við Hagkaup í Skeifunni og virtist vera í annarlegu ástandi.
Greint hefur verið frá líkamsárás á Íslending í Frakklandi. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins staðfestir að hún hafi verið í sambandi við manninn.
Maðurinn sem lögreglan lýsti eftir fyrir helgi er fundinn.
Ökumaður bifhjóls missti stjórn á hjólinu.
Reyndist vera maður með startbyssu sem var að þjálfa hundinn sinn.
Áreksturinn átti sér stað á göngustíg í Laugardalnum.
Karlmaður hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna grunaður um stórfellda líkamsárás í heimahúsi í Kópavogi aðfaranótt sunnudags.
Eldur kom upp í endurvinnslugámi við Hlemm á tólfta tímanum í morgun. Farþegi í Strætó við Hlemm heyrði afar háan hvell og í framhaldinu sá hún þrjá lögreglumenn stökkva út af lögreglustöðinni við Hverfisgötu til að athuga hvað hefði gerst.
Lögreglan gerir ekki ráð fyrir að fara fram á gæsluvarðhald yfir manni sem var handtekinn vegna líkamsárásar í Breiðholti í nótt.
Lögregla í Vestmannaeyjum rannsakar nú þrjú kynferðisbrot sem komu upp um helgina á Þjóðhátíð.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns dökkleitrar fólksbifreiðar sem ók á 8 ára dreng á gangbraut á Hjallabraut í Hafnarfirði.
Sá sem fyrir árásinni varð fluttur á sjúkrahús.
Lögmenn mannanna tveggja sem úrskurðaðir voru í tveggja vikna gæsluvarðhald á laugardag vegna fíkniefnafundar á Seyðisfirði kærðu úrskurðina ekki áður en þriggja daga frestur til þess rann út í gær.
Ökumaður stakk af eftir að hafa ekið á níu ára dreng í Hafnarfirði í gær. Drengurinn var á leið yfir gangbraut.
Rannsókn á máli tveggja erlendra karlmanna, sem á laugardag voru úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald fyrir stórfellt fíkniefnasmygl með Norrænu, er enn á viðkvæmu stigi.
Þremenningunum, sem vistaðir voru í fangaklefa eftir aðgerð lögreglu og sérsveitar í Berjarima í Grafarvogi í nótt, hefur verið sleppt úr haldi.
Áttuðu sig ekki á því að leiðin út að vitanum myndi lokast í flóði.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem er farið yfir helstu mál næturinnar.
Maður sem varð fyrir árás í Vestmannaeyjum á sunnudagsmorgun er höfuðkúpubrotinn. Maðurinn liggur á spítala og er undir eftirliti.
Lögreglan á Suðurlandi mun kanna ástand allra ökumanna sem koma akandi frá Landeyjahöfn í dag. Sjö ökumenn á leið frá höfninni hafa verið kærðir fyrir akstur undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna frá því klukkan þrjú í nótt.
Landverðir í Kerlingafjöllum stóðu erlenda ferðamenn að utanvegaakstri. Um minniháttar spjöll var að ræða. Fengu ferðamennirnir kústa og hrífur til þess að lagfæra hjólför sem komið höfðu eftir bifreið þeirra. Lögregla hefur málið til rannsóknar.
Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en um 60 mál komu inn á borð lögreglu frá því klukkan 19 í gær til klukkan 5 í nótt.
Tveir voru fluttir með sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum eftir alvarlegar líkamsárásir í nótt. Alls eru fjórar líkamsárásir til rannsóknar hjá lögreglunni eftir nóttina, þar af tvær alvarlegar. Þrír eru í haldi vegna rannsóknar málanna.
Slysið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglunnar á Suðurlandi
Þrjár líkamsárásir tilkynntar í Eyjum.
Tæplega 70 mál á borði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina.
Tveir erlendir karlmenn voru í morgun úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald fyrir að reyna smygla um fjörtíu kílóum af hörðum efnum inn til landsins með Norrænu.
Tíu fíkniefnamál komu upp og var í öllum nema einu um svokölluð neyslumál að ræða.
Mennirnir voru stöðvaðir af tollvörðum þegar Norræna kom til Seyðisfjarðar á fimmtudag.